Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 4
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 www.grillbudin.is Er frá Þýskalandi 79.900 VELDU GRILL SEM EN DIST OG ÞÚ SPARA R Frábært grill fyrir íslenskar aðstæður 16,5 KW 40 gerðir gasgrilla 20 gerðir kolagrilla ALLT FYRIR GRILLIÐ Á EINUM STAÐ Opið til kl. 14 laugardag veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Vætusamt á landinu, síst þó n-lands. HöfuðborgarsVæðið: Rigning fRaman af, styttiR síðan upp. strekkingsVindur af sV. að mestu þurrt og léttsk. n- og a-til. HöfuðborgarsVæðið: skúRiR af og til, en sól á milli. aftur rigning um mest allt land, einkum s- og V-til. HöfuðborgarsVæðið: Rigning og síðaR skúRiR. sleppur til í reykjavík sjaldan hefur spáin í þessum dálki verið jafn rigningarleg og nú. á laugardag styttir þó upp að mestu. í Reykjavík ætti að haldast þurrt fram- an af degi en síðan einhverjar skúrir þegar frá líður. strekk- ingsgola verður hins vegar. Vætusamt verður á morgun, föstudag og aftur á sunnudag með fremur óvenjulegum og rakaþrungnum lægðum sem báðar fara beint yfir landið. 11 11 16 10 12 10 9 14 16 11 10 10 11 13 10 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is É g valdi þennan leikskóla því ég fékk ekkert annað,“ segir móðir barns á Leikskólanum 101 sem hefur verið lokað tímabundið á meðan rannsókn Barnaverndarnefndar Reykja- víkur á meintu harðræðu starfsfólks í garð barna stendur yfir. Þrettán dagfor- eldrar eru starfandi í hverfinu og fullt er hjá þeim öllum. Móðirin byrjaði að hafa samband við dagforeldra í Vesturbæ þegar sonur hennar var 3ja mánaða en var þá tjáð að það væri um árs bið eftir plássi. Hún segist hafa haft slæma til- finningu fyrir leikskólanum þegar hún sá starfsfólkið úti að reykja á vinnutíma en hafði ekki kost á annarri dagvistun. „Nú er ég búin að fá símtöl frá foreldrum sem hættu með börnin sín þarna því þau grétu svo mikið,“ segir hún. Á þriðjudagskvöldið fengu foreldrar barna í Leikskólanum 101 símtöl frá fullt- rúm barnaverndarnefndar Reykjavíkur þar sem þeim var greint frá því að tveir sumarstarfsmenn hafi komið myndbönd- um til nefndarinnar þar sem sjá megi börnin beitt ýmiss konar harðræði, þau rasskellt, mat haldið frá þeim og þau lok- uð inni ef þau grétu. „Við erum auðvitað bara í áfalli,“ segir móðirin. Leikskólinn er sjálfstætt rekinn ungbarnaleikskóli fyrir börn á aldrinum 9-18 mánaða og var þar 31 barn í gæslu þegar honum var lokað á miðvikudag. Hann hefur starfað frá árinu 2004. Framkvæmdastjóri Vesturgarðs, þjón- ustumiðstöðvar Vesturbæjar, segir að foreldrar barna á Leikskólanum 101 hafi leitað þangað til að fá upplýsingar um hvar er hægt að fá daggæslu. Það eina sem hægt er að benda þeim á eru dag- foreldrar í öðrum hverfum. Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst eru engin laus pláss hjá dagforeldrum í miðbænum eða í Hlíðum og næstu hverfi sem foreldrar í Vesturbæ geta fundið dagforeldra með laus pláss eru í Laugardalnum, Háaleiti og Bústaðahverfi. Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, segir það vissulega erfiða stöðu þegar 31 barn er skyndilega án dagvistunar. Vistun ungbarna er ekki lögbundin skylda borgarinnar. „Engu að síður er verið að reyna að finna leiðir til að milda þetta högg. Það er verið að reyna að aðstoða fólk við að finna dag- vistun en ekki er víst að það sé hægt,“ segir hann. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur- borgar, svo og Heilbrigðiseftirlit Reykja- vikur, sinna lögbundnu eftirliti með sjálf- stætt starfandi leikskólum í borginni. Við reglubundið eftirlit í Leikskólanum 101 á þessu ári hafa engar athugasemdir verið gerðar við aðbúnað barnanna. Foreldrakönnun sem gerð var á vegum sviðsins meðal forsjármanna barna í leik- skólanum í vor gaf heldur ekki ástæðu til athugasemda eða frekara eftirlits. Foreldrar barna á leikskólanum eru boðaðir á fund í þjónustumiðstöð Vestur- bæjar, klukkan 17.30 á mánudag á vegum Reykjavíkurborgar. Í framhaldinu verður haldinn annar fundur með foreldrum barna ákváðu að hætta með börn sín þar en hann hefur ekki verið tímasettur. erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Nú er ég búin að fá símtöl frá foreldrum sem hættu með börnin sín þarna því þau grétu svo mikið.  samFÉlagsmál 31 barn er án daggæslu eFtir að leikskólinn 101 lokaði Neyddist til að velja Leikskólann 101 móðir barns á leikskólanum 101 valdi skólann því engin önnur dagvistun stóð til boða. árs bið var eftir lausu plássi hjá dagforeldrum þegar hún leitaði eftir því. foreldrar barna á leikskól- anum eru boðaðir á fund á vegum Reykjavíkurborgar eftir helgina og í framhaldinu verður haldinn fundur með for- eldrum sem tóku börnin sín úr leik- skólanum. óvíst er hversu lengi leikskólinn 101 við Vesturgötu í Reykjavík verður lokaður vegna rannsóknar barna- verndaryfirvalda á meintu harðræði. Mynd/Hari selja íbúð en vilja njóta leiðréttra lána margir seljendur fasteigna setja um þessar mundir fyrirvara í kaupsamninga til að tryggja að seljandinn en ekki kaupandinn hagnist á hugsanlegri leiðréttingu áhvílandi lána. ingibjörg Þórðardóttir, formaður félags fasteignasala, sagði við RúV að það væri ekki sanngjarnt, ef kaupandi hagnaðist á lánaleiðréttingu. “Það væri afar óréttlátt að viðkomandi seljandi sem er búinn að taka á sig kannski margar milljónir í hækkunum á lánum, vegna óðaverðbólgu og ytri aðstæðna, hann fái ekki þá leiðrétt- ingu sem verið er að ræða um heldur þriðji aðili sem kemur að samningi hugsanlega núna á þessu ári eða á síðustu dögum,“ segir hún. 69 vændismál hjá saksóknara saksóknarar hafa nú til ákærumeðferðar 69 mál sem snerta kaup á vændi og hafa verið til rannsóknar á höfuðborgar- svæðinu. 86 vændismál hafa komið til rannsóknar á svæðinu síðasta árið. sex mál eru enn í rannsókn en rannsókn fjögurra mála var hætt hjá saksóknara. 59 einstaklingar eru grunaðir um vændiskaup í málunum 69 og geta því átt yfir höfði sér ákæru. Þetta kemur fram á mbl.is, sem aflaði nánari upplýsinga um rannsóknir vændismála eftir að fram kom í skýrslu greiningardeildar Ríkislögreglustjóra að um 100 vændismál hefðu komið til kasta lögreglu á síðasta ári. kjarninn er fyrsta staf- ræna fréttatímaritið Ný fjölmiðill leit dagsins ljós í gær, kjarninn, fyrsta stafræna fréttatímarit landsins. meðal efnis er úttekt á fyrir- huguðum viðræðum við kröfuhafa föllnu bankanna og frétt um að tveir fjár- festahópar frá Hong kong og kína muni á næstunni gera tilboð í íslandsbanka. einnig er meðal annars fjallað um svarta leyni- skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins PwC um Sparisjóðinn í Keflavík. Kjarninn er gefinn út í appi fyrir iPad- spjaldtölvur og iphone-snjallsíma og er það aðgengilegt ókeypis í app store. einnig er kjarninn aðgengilegur fyrir venjulegar tölvur í pdf-útgáfu á vefsíðunni kjarninn.is. kjarninn er í eigu starfsmanna. Ritstjóri er Þórður snær Júlíusson. þjófnuðum fækkar en slysum fjölgar mun færri innbrot og þjófnaðir voru til- kynntir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í júlímánuði en í sama mánuði í fyrra. fækkun þjófnaðarmála er 9% en innbrota 18% frá síðasta ári. eignarspjöllun fækkaði einnig um 13% og ofbeldisbrotum um 3%. Þetta er fjórða mánuðinn í röð sem þjófn- uðum og innbrotum fækkar milli mánaða, samkvæmt tölfræði lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu. Hins vegar voru 36 umferðarslys tilkynnt, næstum tvöfalt fleiri en í sama mánuði í fyrra. 4 fréttir Helgin 23.-25. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.