Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 60
60 heilsa Helgin 23.-25. ágúst 2013  Heilsa Hugarfarsleg markþjálfun Hugsum um ávinninginn og þá nást markmiðin  mataræði kókosolían sögðHollasta fita í Heimi Það er ekki gott að vera fastur í gömlum vana því hann er staðfesting á því að við höfum gefið okkur á vald fortíðinni. Ingólfur Snorrason þjálfari í Hreyfingu og NLP fræðingur hefur þjálfað og mótað áætlanir fyrir fjölda íþróttafólks og fólks sem hefur þurft að taka nýja stefnu í lífinu, til dæmis eftir alvarleg slys. Ingólfur segir mikilvægt að flækja ekki hlutina heldur gera sér grein fyrir því hvað þurfi til að framkvæma og hverju það muni skila. þ egar við erum að fara af stað með lífstílsbreytingar er mikilvægt að huga að því í upphafi hvað við þurfum að gera til að framkvæma það sem okkur langar og ekki síður hver ávinning- urinn verður,“ segir Ingólfur Snorrason, þjálfari sem beitir hugarfarslegri mark- þjálfun í störfum sínum. Ingólfur vinnur með fólki sem er að æfa upp styrk eftir alvarleg slys eða veikindi og einnig afreks- fólki í íþróttum og þeim sem vilja komast í betra líkamlegt form. Ingólfur byggir á svipuðum grunni hjá öllum hópunum sem byggir á því að fólk hafi einfalda val- möguleika og flæki ekki hlutina heldur íhugi hvað þurfi til að framkvæma og hver ávinningurinn verði. „Til dæmis fæ ég fólk til að ímynda sér hvernig það yrði að losna við hækjur eða verða heimsmeistari í sinni íþrótt. Það kemur ferlinu af stað,“ segir hann. Ingólfur segir mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því hvað til þurfi til að ná mark- miðum sínum og einnig hver ávinningur- inn verði og nefnir sem dæmi að þegar fólk byrji í líkamsræktarátaki skrái það sig á til dæmis morgunnámskeið og þurfi að vakna einum og hálfum til tveimur tímum fyrr en vanalega. Í fyrstu gangi yfirleitt vel og fólk láti sig hafa það að vakna snemma en fer svo smátt og smátt að falla aftur í sama farið og hætti að vakna í ræktina. Svo slíkt gerist ekki þurfi fólk að vera meðvitað um það fyrirfram hvað togar það til baka í gamla vanann. „Áður en við hefjum átakið þurfum við að velta veikleikum okkar fyrir okkur því þessar hraðahindranir koma alveg örugglega,“ segir hann. Í slíkum tilvikum sé mikilvægt að fólk viðurkenni fyrir sjálfu sér að það hafi tilhneigingu til að gefa eftir á morgnana og ákveða fyrir- fram að gera það ekki, heldur harka af sér og halda áfram að mæta á morgunæfingar. Þannig sé hægt að brjótast út úr gömlum vana og búa til nýjan. „Lífið er þannig að annaðhvort þroskumst við eða stöndum í stað. Það er ekki gott að vera fastur í gömlum vana. Hann er staðfesting á því að við höfum gefið okkur á vald fortíðinni,“ segir hann. Ingólfur segir gott ráð að útbúa spjald sem er nógu lítið til að passa í vasa eða seðlaveski og skrifa á aðra hliðina mark- miðin og hafa dagsetningu með. Á hina hliðina skal svo skrifa hvað það gefi að ná markmiðunum. „Þetta skrifar maður sem þakklætisvott um það sem maður á eftir að fá þegar markmiðunum verður náð. Svo er gott að lesa oft yfir spjaldið og virkilega tengjast því sem maður ætlar sér. Það færir fólk í nýtt hugarástand, nýja hegðun sem færir það nær markmiðinu.“ Ingólfur segir þessa aðferð mjög góða til að knýja fram breytingar. „Velferð er ferðalag en ekki eitthvað sem við fáum heldur það sem við erum að verða og því er hún ekk- ert annað en sköpun og árangur er engin tilviljun.“ Ingólfur Snorrason þjálfari hjá Hreyfingu segir mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir veikleikum sínum því þannig sé hægt að brjótast út úr gömlum vana og búa til nýjan. Mynd/Hari. Kókosolía allra meina bót Hrein jómfrúar kókosolía er holl fita - sú hollasta í heimi að margra mati. Eigin- leikum hennar er oft líkt við hreina töfra. Í Kyrrahafslöndunum hefur kókosolían alla tíð, verið hluti af nær- ingu innfæddra. Þar er hún oftast fljót- andi, því hitastig þar er oftast 24°C eða meira. Ef hún er í lægra hitastigi, líkist kókosolían meira fitu, þykk og aðeins stökk. Hún er því bæði kölluð olía eða fita eftir því í hvaða formi hún er. Auð- velt og mjög fljótlegt er að mýkja fituna upp. Við miklar rannsóknir á kókosolí- unni sem að gerðar hafa verið hin síðari ár, hefur komið í ljós að hún eykur brennslu í líkamanum og gefur aukna orku, ásamt því að vera græðandi. Margir afburða íþróttamenn hafa góða reynslu af því að nota kókosolíu og hrósa henni mikið, bæði fyrir aukna orku og minni bólguviðbrögð í vöðvum og liðum. Kókosolían styrkir ónæmis- kerfið og veitir þannig vörn gegn ýms- um sýkingum og er talin geta komið í veg fyrir alvarlega sjúkdóma. Hún eykur upptöku og nýtingu af Omega 3 og 6 fitusýrum og hefur góð áhrif á húð og hár, gefur hvorutveggja aukinn gljáa, eins vinnur hún gegn flösu og er sérstaklega góð á exem, ásamt öðrum húðkvillum. Hún er góð fyrir líkam- ann, bæði innvortis og útvortis. Kókosolían er til- valin til matargerðar og það fæst ekki betri eða hollari olía til steikingar, hvort heldur ef verið er að elda kjöt, fisk, egg eða grænmeti. Hún er mjög hitaþolin og skemmist ekki við hitun eins og flestar aðrar olíur. Tilvalið er líka að setja matskeið af kókosolíu í morg- unorkudrykkinn og að nota hana sem dressingu á salatið. Eins bara sem álegg á brauðsneiðina í stað smjörs. Hægt er að skipta henni út fyrir allar aðrar olíur og eða fitur í uppskriftum, s.s. smjör, smjörlíki og allar olíur. Tekið af heilsubankinn.is Ómissandi á pizzuna, í ofn- og pastaréttina, á tortillurnar og salatið. Heimilis RIFINN OSTUR ÍSLENSKUR OSTUR 100% Lyfjaval.is • sími 577 1160 Bílaapótek Hæðasmára Mjódd Álftamýri 15% afsláttur Afslátturinn gildir út ágúst. Nýtt og uppfært átaksnámskeið fyrir þær sem vilja taka heilsuna og útlitið föstum tökum. Allar upplýsingar á hreyfing.is 6-vikna námskeið fyrir þær sem vilja losna við aukakílóin á öruggan og heilbrigðan máta og komast í sitt besta form. Nýtt og enn betra. Endurnýjað fræðsluefni. Sérhannað æfingakerfi sem miðar að því að ögra líkamanum, komast út úr stöðnun, byggja upp grunnbrennslu líkamans og losna varanlega við aukakílóin Aðhald, hvatning, fróðleikur og hollar og léttar uppskriftir. ÁSKORUN Öflugt gegn blöðrubólgu ROSEBERRY Virkar innan 24 tíma 2-3 töflur fyrir svefn Fæst í apótekum, heilsubúðum og í heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.