Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 20
Í ris Ólafsdóttir rafmagnsverkfræðingur stofn-aði fyrirtækið Kula Inventions Ltd en Íris hefur fundið leið til þess að gera fólki kleift að taka þrívíddarmyndir á stórar myndavélar með einföldum hætti. Til þess hefur hún hannað tæki sem heitir Kula Deeper og hægt er að festa á svokallaðar SLR mynda- vélar og taka þrívíddarmyndir sem og þrívíddarmynd- skeið. „Hugmyndin sjálf kom bara úr heiðskíru lofti fyrir löngu, ég vaknaði einn morguninn og ákvað að þann daginn ætlaði ég að prófa að taka myndir hlið við hlið, sía þær í photoshop, rauðar og bláar og athuga hvort að ég gæti búið til þrívíddarmyndir. Ég gerði það og það kom mjög vel út,“ segir Íris. Íris segir upplifunina við að skoða þrívíddarmyndir mun sterkari en við að skoða venjulegar ljósmyndir. „Þegar ég byrjaði að vinna að þessu verkefni tók ég þrívíddarmyndir af stelpunni minni og í dag finnst mér ennþá ótrúlega gaman að skoða þær. Það er erfitt að skýra út upplifunina þegar maður hefur aðeins aðgang að tvívíðum miðlum. Ég vonast til þess að fólk átti sig á því hversu skemmtilegt það er að eiga þrívíddarmyndir af vinum og fjölskyldu. Jafn- vel skemmtilegra en að skoða einhverjar geimverur í þrívídd,“ segir Íris og hlær. Íris segir að þrívíddarmiðlarnir eigi eftir að batna og það geti verið ástæða þess að fólk sé ekki tilbúið til að kaupa dýrar þrívíddargræjur. Vöruna sína mun hún kynna á frumkvöðlasíðunni Karolina- fund.com á þriðjudaginn í næstu viku. Íris hóf nám í rafmagnsverkfræði heima á Íslandi en lauk meistarnámi sínu í Danmörku. „Ég ætlaði ekki að klára raf- magnsverkfræði, ætlaði bara að klára eitt ár og fara svo í listaháskóla. Ég stóð mig ekki svakalega vel á fyrsta árinu, það var aðallega gaman en svo ákvað ég að klára masterinn,“ segir Íris. Eftir að hún lauk námi starfaði Íris hjá dönsku nýsköpunarfyrirtæki og vann að ýmsum spennandi rannsóknum. Fyrir- tækið þurfti að hætta rekstri og þá missti Íris vinnuna. Á meðan hún var í 50% starfi hjá danska fyrirtækinu hafði hún verið að velta fyrir sér einföldu speglakerfi í tengslum við þrívíddarmyndatöku og sótti um forverkefnisstyrk hjá Tækniþróunar- sjóði. Vildi hún kanna hvort hægt væri að framkvæma þá hugmynd að varpa tveim sjónarhornum inn í eina linsu. Útkoman úr verkefninu reyndist vera mjög góð og hefur Íris síðan fengið fleiri styrki hjá Tækniþróunarsjóði sem og aðra styrki og náð að þróa vöruna að fullu. „Fyrst var ég bara ein en margir hafa komið að verkefninu með einum eða öðrum hætti. Árið 2011 stofnaði ég Kulu Inventions og það hefur verið rekið á styrkjum,“ segir Íris. Mjög stór markhópur Íris segir að markhópur hennar séu allir þeir sem eiga SLR myndavél og hafa áhuga á þrívídd. Segir hún að undirtektir hafi verið góðar hjá öllum þeim sem hafa áhuga á ljósmyndun og hafa prófað vöruna. „Margt er varðar markhópinn mun reyndar koma í ljós á næstunni þegar við kynnum verkefnið á frum- kvöðlasíðunni Karolinafund.com. Það munum við gera til þess að fá fjármagn fyrir fyrstu framleiðsluna á vörunni Kulu Deeper,“ segir Íris. Íris telur það góða aðferð til að kanna áhugann á vörunni áður en farið verði í framleiðslu. „Það sem er svo skemmtilegt við Kula Deeper er að fólk mun geta notað myndavélina sína til að taka þrívíddarmyndir og mun geta skipt auðveldlega í venjulega myndatöku,“ og segir Íris þann kost mun ódýrari en að kaupa sér- staka þrívíddarmyndavél. Íslensk framleiðsla Íris segir að partarnir í Kulu Deeper verði keyptir er- lendis en varan sjálf verði sett saman á Íslandi. „Spegl- arnir og tækin eru frá Evrópu sem og öðrum löndum en verða sett saman og pakkað á Íslandi þannig að hér er um að ræða íslenska framleiðslu samkvæmt skil- greiningunni.“ Kula Deeper mun vera til sölu á vef- síðu fyrirtækisins kula3d.com ef og þegar nægileg fjármögnun á framleiðslunni fæst. Hjá Kulu Inventions starfa tveir aðrir fastráðnir starfsmenn, einn grafískur hönnuður úr Listaháskólanum og innan- hússarkitekt sem hefur einnig lært margmiðlun. Sumarstarfsmaðurinn hjá fyrirtækinu nemur stærðfræði og hug- búnaðarverkfræði við Háskóla Íslands en hann hefur nú þegar komið að hönnun hug- búnaðarins sem þarf við tölvuvinnsluna úr KuluDeeper. Íris segir það mikla viðurkenningu að hafa fengið styrk frá Tækniþróunarsjóði. „Umsóknir fara í gegnum mikla síu. Mjög hæft fólk situr í matsnefnd, fer yfir verk- efnin og tekur ákvörðun um styrkina. Það hefur verið mjög mikil hvatning fyrir mig að fá styrki og getað lokið við þróun vörunnar,“ segir Íris. „Það er frábært að síðasta ríkisstjórn hafi ákveðið að tveir milljarðar af veiði- gjaldinu skyldu renna til Rannsóknarsjóðs og Tækniþróunarsjóðs. Það er ástæðan fyrir því að styrkirnir hafa verið hærri og veglegri sem mun skipta verulega miklu máli fyrir nýsköpun í landinu,“ segir Íris. Íris segir að hún hafi aldrei efast um það sem hún var að vinna að. „Þetta er búið að vera mitt verkefni og núna þegar það fer að líta dagsins ljós getur verið að einhver fari að gagnrýna það sem ég hef verið að gera,“ segir Íris. „Þróunarferlinu er nú lokið sem hefur verið unnið í mjög vernduðu umhverfi. Núna er komið að því að berjast fyrir því að koma vörunni út og sannfæra aðra um ágæti hennar,“ segir Íris. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Núna er komið að því að berjast fyrir því að koma vörunni út og sannfæra aðra um ágæti hennar. Sterkari upplifun að skoða þrívíddarmyndir Íris Ólafsdóttir rafmagnsverkfræðingur hefur hannað aðferð til að taka þrívíddarmyndir með venjulegum myndavélum. Hún segir ótrúlega gaman að skoða þrívíddarmyndir af fjölskyldumeð- limum, jafnvel skemmtilegra en að skoða geimverur í þrívídd. „Hugmyndin sjálf kom bara úr heiðskíru lofti fyrir löngu, ég vaknaði einn morguninn og ákvað þann daginn ætlaði ég að prófa að taka myndir hlið við hlið, sía þær í photoshop, rauðar og bláar og athuga hvort að ég gæti búið til þrívíddar- myndir. Ég gerði það og það kom mjög vel út,“ segir frumkvöðullinn Íris Ólafsdóttir. Ljósmynd/Hari Einstök Ævintýraferð Verð á mann í tveggja manna herbergi . Kr. 464.329,- Innifalið: Flug, hótel, allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri www.transatlantic.is Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralí og hinum forna menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. hin þekkta píramída Tulum, gamlar menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims og upplifum regnskóginn. Við tökum svo nokkra daga á lúxus hóteli við Karabíska hað þar sem allt er innifalið 20 viðtal Helgin 23.-25. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.