Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 36
Glútenfrí og sykurlaus kökublanda með marga möguleika!
Nafn: David Moyes
Lið: Manchester United.
Aldur: 50 ára.
Þjóðerni: Skoskur.
Fyrri störf: Everton, Preston North End.
Ráðinn: 2013.
Heimir: „Hann hef-
ur yfirleitt byrjað
tímabilið illa
hjá Everton.
Það gengur
ekki upp á
Old Trafford,
ekki ef hann
ætlar að
vinna deildina.
Moyes er fara
í erfiðustu skó
sem hægt er að
fara í, skó Fergusons.
Því miður fyrir aðdáendur Manchester
United þá held ég að hann muni ekki fylla
þá. Hann verður þarna í einhver ár en
það verður ekki sama titlasöfnun og verið
hefur undanfarin ár hjá liðinu.“
Ólafur: „Mér líst vel á David Moyes. Ég held
að hann hafi verið eini kosturinn í stöðunni
fyrir Manchester United miðað við kúltur
félagsins og rætur Moyes. Ferguson var
þarna í 26 ár og hjá klúbbnum var stöðug-
leiki, mikil festa og ákveðin gildi höfð í
heiðri. Moyes hefur að sama skapi verið
lengi með Everton þar sem hann vann eftir
sinni fílósófíu. Honum svipar um margt
til Fergusons og hann er samþykktur af
Ferguson. Moyes mun því fá þann tíma
sem hann þarf en hann ætlar ekki að vera
það byltingarsinnaður að hann umbylti
neinu þarna. Hann virðir þær grunnstoðir
sem búið er að byggja upp.“
Nafn: Manuel Pellegrini.
Lið: Manchester City.
Aldur: 59 ára.
Þjóðerni: Frá Chile.
Fyrri störf: Malaga, Real Madrid, Villareal,
River Plate.
Ráðinn: 2013.
Heimir: „Mér líst gríðarlega vel á hann.
Hann náði eftirtektarverðum árangri
með Villareal sem er ekki stórt lið á
Spáni og líka með Malaga í Meistara-
deildinni. Yfirleitt hafa liðin hans
orðið sterkari þegar líður á mótið og
hann er með gott
skipulag á þeim.
Villareal spilaði
til dæmis mikið
með tígulmiðju.
Hann hefur
fengið sterka
leikmenn til
City og ég held
að það taki
smá tíma að
móta liðið.“
Ólafur: „Ég sagði við
harðan City-stuðnings-
mann að Pellegrini hefði heillað mig á
hliðarlínunni í fyrsta leiknum. Mér hefur
fundist hann sýna að hann ráði við þennan
leikmannahóp og þennan risaklúbb sem
City er orðið. Ég held að þeir verði góðir
í vetur, þeir hafa gert klók kaup, losað
sig við vandræðagemlingana Tevez og
Balotelli og hann heldur áfram með þann
grunn sem var kominn. Það hefði ekki
verið gott að taka inn ungan og óreyndan
stjóra. Þetta var góð mjög ráðning.“
Nafn: José Mourinho.
Lið: Chelsea.
Aldur: 50 ára.
Þjóðerni: Portúgalskur.
Fyrri störf: Real Madrid, Inter, Chelsea,
Porto.
Ráðinn: 2013.
Heimir: „Chelsea verður meistari í vor. Það
hefur sýnt sig að undir stjórn Mourinho
gengur liðum alltaf vel fyrstu tvö árin.
Eiður Smári talaði um það þegar hann var
hjá Chelsea að hann væri mjög góður að
ná til leikmanna og væri með gott skipulag
á hlutunum. Hann veit hvernig á að vinna
deildir og það skiptir hann ekki máli í
hvaða landi það er. En svo eftir tvö eða
þrjú ár þegar hann er búinn að fá alla
upp á móti sér, þá er þetta bara búið.“
Ólafur: „Ég veit ekki alltaf hvað mér
finnst um Mourinho. Hann sveiflast
á milli þess að vera snillingur og
trúður. Hann er náttúrlega uppfullur
af sjálfum sér og það getur verið gott
á stundum. Hann
er góður að taka
pressu af leik-
mönnunum,
hann myndar
skjöld utan
um hópinn og
það verður til
þess að menn
eru fúsir að
vaða eld og
brennistein fyrir
hann. Hópurinn
er sterkur. Í fyrra
vantaði fremsta
senterinn og það er spurning hvort þeir fái
nýjan mann þar. Ég held að eftir óróatíma
sé Chelsea að fara inn í stöðugleikatímabil.
Þeir hefðu kannski getað fengið það með
öðrum knattspyrnustjóra en ekki eins fljótt
og hjá Mourinho.“
Nýir menn í brúnni
Keppni hófst í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Öll topp-
liðin nema Arsenal unnu sína leiki og fyrsta umferðin þótti lofa
góðu um framhaldið. Mikil hreyfing hefur verið á knattspyrnu-
stjórum liðanna í sumar, fjögur af sjö efstu liðunum á síðustu leik-
tíð eru með nýja stjóra og tvö til viðbótar skiptu um mann í brúnni
í fyrra. Fréttatíminn fékk tvo þrautreynda íslenska þjálfara,
Heimir Guðjónsson í FH og Ólaf Kristjánsson í Breiðabliki, til að
meta kosti og galla knattspyrnustjóra stærstu liðanna.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Hollendingurinn Robin van Persie byrjaði leiktíðina með
sömu látum og hann lauk þeirri síðustu. Hann skoraði tvö
mörk á móti Swansea í fyrsta Úrvalsdeildarleik David Moyes
sem stjóri Manchester United. Ljósmynd/Nordicphotos/Getty
36 fótbolti Helgin 23.-25. ágúst 2013