Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 6
ÞOLÞJÁLFUN - LYFTINGAR - STEMNING - ÁRANGUR Ný námskeið að byrja B iðlistar eftir þjónustu Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL) eru almennt langir og nú er 151 á biðlista göngudeildar. „Fjöldinn skýrist meðal annars af gríðarlegum fjölda barna og unglinga sem hafa þurft á bráðaþjónustu BUGL að halda,“ segir Linda Kristmunds- dóttir, hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar BUGL. Fyrstu sex mánuði ársins þurftu 196 börn og unglingar á bráðaþjónustu BUGL að halda „Yfirleitt er um að ræða börn með sjálfsvígshótanir eða sjálfsvígshugsanir en einnig börn sem talin eru vera með geðrofs- einkenni,“ segir hún. Algengast að það séu eldri börn sem þurfa á bráðaþjónustu að halda, á aldrinum 12-18 ára, en inn á milli eru yngri börn allt niður í sex ára. „Ef um sjálfsvígshættu er að ræða fær viðkomandi tíma samdægurs þar sem sjálfsvígshætta er metin. Það bíður enginn sem vill ekki lifa lengur. Byggt á niðurstöðu viðtals er ákveðið hvort barn fer í innlögn eða fær göngudeild- arþjónustu, “ segir Linda. Nokkur fjölgun hefur orðið á milli ára á bráðatilvikum en 140 börn og unglingar fengu bráðaþjónustu fyrstu sex mánuði ársins í fyrra. Hvað biðlistann varðar er hann nú öllu lengri en árið 2011 þegar 80 börn biðu eftir þjónustu BUGL en örlítið styttri en árið 2007 þegar börn á biðlista voru 170. Linda segir fjölda á biðlista yfirleitt sveiflast og erfitt að skýra sveiflurnar til hlítar. „Við erum oft spurð um þetta en það er erfitt að skýra þetta. Núna hefur vissulega áhrif þessi fjöldi sem hefur þurft á bráðaþjónustu að halda. Síðan hefur göngudeildin verið lokuð í júlí þannig að biðlistinn í byrjun ágúst er oft lengri fyrir vikið,“ segir hún. Linda segir að aukið fjármagn myndi vissulega vera til bóta fyrir starfsemina. „Hér er mikið álag allt árið um kring eins og annars staðar á Landspítalanum,“ segir hún. Tæplega 4 þúsund komur voru á BUGL fyrstu sex mánuði ársins. Stefna BUGL er að auka samstarf við heilsugæslu, skóla-og félagsþjónustu, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. „Hlutverk BUGL sem deild á háskólasjúkra- húsi er að taka við erfiðustu málunum, þar sem meðferð í heimabyggð hefur ekki borið nægilegan árangur. Þá er oft um að ræða flókinn vanda, með langvinnum geðrænum erfiðleikum oft samfara þroskavanda,“ segir Linda. Æskilegt er að sem flestir geti fengið þjónustu í heimabyggð. „Það á ekki síður við um börn. Við reynum því að vera í samvinnu við aðila í heimabyggð,“ segir hún. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  Heilsa aukning meðal Barna sem þurfa Bráðaþjónustu á Bugl Eitt barn á dag þarf bráðaþjónustu geðdeilda Það bíður enginn sem vill ekki lifa lengur. Gríðarlegur fjöldi barna- og unglinga þurfti á bráðaþjónustu BUGL að halda fyrstu sex mánuði ársins, eða 196. Flest þeirra voru í sjálfsvígshugleiðingum. Bráðatilvik eru tekin framfyrir biðlista en á almennum biðlista BUGL er nú 151. Linda Kristmundsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar BUGL og Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir göngudeildar BUGL. Mynd/Hari Komur á BUGL Fyrstu sex mánuði ársins 2013 3917 2012 3498  utanríkismál lögfræðiálit um að ríkisstjórnin sé óBundin af þingsályktunum síðasta kjörtímaBils Íhugar að leysa samninganefnd við ESB frá störfum Gunnar Bragi Sveinsson, utan- ríkisráðherra, kynnti utanríkis- málanefnd Alþingis í gær lögfræði- álit sem hann hefur aflað sér en þar kemur fram að núverandi ríkisstjórn sé óbundin af þeirri þingsályktun sem samþykkt var á síðasta kjörtímabili og var forsenda þess að síðasta ríkisstjórn sótti um aðild að Evrópusambandinu fyrir Íslands hönd í júlí 2009. Eftir fundinn með utanríkismála- nefnd í gær greindi Gunnar Bragi svo frá því í yfirlýsingu að vegna niðurstöðu lögfræðiálitsins væri nú að íhuga þann möguleika að leysa frá störfum samninganefndina sem leitt hefur aðildarviðræður Íslands við Evr- ópusambandið og þá málefnahópa sem starfað hafa á vegum samn- inganefndarinnar. Lögfræðiálitið hefur verið birt á vef mbl.is en ekki kemur fram þar hver er höfundur þess. Í álitinu segir meðal annars að skýr laga- leg og réttarpólitísk rök standi gegn því að ætla þingsályktunum lagalega þýðingu eða bindandi lagaleg áhrif gagnvart stjórnvöldum. „Þingsályktanir lýsa fyrst og fremst póli- tískum vilja meirihluta þess þings sem sam- þykkir þær og geta sem slíkar haft mikil pólitísk áhrif,” segir þar. „Þingsályktun fellur ekki beinlínis niður eða er úr gildi við kosningar eða þegar þingstyrkur að baki henni breytist en varði hún umdeild póli- tískt stefnumál getur framkvæmd hennar undir því komin að stefnumálið njóti áfram tilskilins pólitísks stuðnings í þinginu.“ „Ef þingstyrkur að baki þingsályktun breytist eða hverfur hlýtur pólitísk þýðing slíkra fyrirmæla að dvína í samræmi við það og eftir atvikum fjara út, t.d. ef meiri- hlutinn missir umboð sitt í kosningum. Pólitísk þýðing þingsályktunar helst þannig í hendur við þann meirihluta sem er í þinginu hverju sinni og tryggir að völd og ábyrgð fari saman,” segir í lögfræðiá- litinu. Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra Fararstjóri: Hlín Gunnarsdóttir Gardavatn & Feneyjar Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Sp ör e hf . Gardavatn hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til margra ára. Farið verður í áhugaverðar skoðunarferðir, m.a í siglingu á Gardavatni, til Feneyja drottningar Adríahafsins og Verónu elstu borgar Norður Ítalíu. Verð: 209.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! 5. - 15. októberHaust 10 74,6% ... kvenna 35 - 49 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 35 – 49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent jan - mars 2013 850 svör 6 fréttir Helgin 23.-25. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.