Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 75

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 75
að mæta mótmælum og kröfugerð af hörku. Ronald Reagan, fylkis- stjóri í Kaliforníu, naut hylli fyrir að siga þjóðvarðliðinu á hippana í San Francisco. Hipparnir misstu líka trú á pólitíska þátttöku og að samfélagslegar breytingar gætu bætt líf okkar; þeir urðu æ sjálf- hverfari og enduðu flestir í inn- hverfum pælingum og sjálfdekri; það varð almennt viðhorf að besta leiðin til að breyta samfélaginu væri að breyta sjálfum sér; fara í jóga eða svett. Undir lok áttunda áratugarins urðu sjónarmið Ronald Reagan og ný-íhaldsmanna ofan á — hugmyndir fólks sem allt eins mætti kalla ný-félags-Darwinista. Samfélögin misstu trú á að hið opinbera gæti stuðlað að mannúð (því var haldið fram að opinberir starfsmenn hefðu ætíð aðeins eig- in hag að leiðarljósi), að mögulegt væri að styðja illa statt fólk til lífs- bjargar (yfir okkur rigndi bókum sem áttu að sanna að félagsleg aðstoð eða þróunarhjálp gagnað- ist ekki og væri frekar til skaða) og að það væri miklu affarasælla fyrir samfélögin að styðja hinu ríku og sterku með skattaívilnun- um og fríðindum en hina veiku og illa settu. Kenningin var í stuttu máli sú að öllu samfélaginu liði vel ef hinn sterkasti fengi að móta það eftir eigin hagsmunum. Það tók síðan um þrjátíu ár fyrir þessa stefnu að valda allsherjar hruni á Vesturlöndum og um heim allan; ekki aðeins siðferðislegu hruni og menningarlegu; heldur líka efnahagslegu og pólitísku. Í dag veit í raun enginn hvaða hug- myndalega lím á að halda sam- félögum okkar saman. En um það fæ ég kannski að fjalla í næstu viku. Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is að meinsemd í samfélaginu. Meinsemd sem nauðsynlegt var að skera burt. Auðvitað gengu engin önnur stjórnvöld eins langt og ríkis- stjórn Adolf Hitlers gerði síðar. Annars staðar var ekki byggður upp iðnaður til að útrýma hinum veiku. En alls staðar var reynt að útrýma hinum veiku með vanrækslu (þeim var meinaður aðgangur að eðlilegri samfélags- hjálp), með því að halda kynjunum aðskyldum (geðveikir, þroska- heftir, áfengissjúkir o.fl. voru fluttir á kynjaskipt hæli fjarri þétt- býli til að tryggja að þeir eignuð- ust ekki börn) eða þá að fólk var sett í ófrjósemisaðgerðir. Og þar sem þetta var ríkjandi heilbrigðisstefna á Vesturlönd- um gerði enginn athugasemdir við það að Adolf Hitler var val- inn maður ársins 1938 af Time magazine; þegar þýsk stjórnvöld voru þegar búin að drepa um 200 þúsund geðsjúklinga, þroskahefta og alvarlega veikt fólk. Skammlíf seinni bylgja mannúðar Þetta breyttist hins vegar í stríðs- lok. Þá tóku bandarískir blaða- menn myndirnar úr útrýmingar- búðunum og báru þær saman við myndir sem teknar höfðu verið á geðveikrahælum í Bandaríkj- unum. Líkindin voru sláandi. Og þessi samanburður hratt af stað mannúðarbylgju í meðferð og um- önnun geðsjúkra, þroskaheftra og annarra sjúklinga sem áður höfðu í raun lifað utan samfélagsins. Og þessi mannúðarbylgja (misskiln- ingurinn um að stríðið hafi snúist um mannúð og að hið góða hafi unnið) hratt líka af stað mannrétt- indabaráttu svartra í Bandaríkj- unum, annarri bylgju kvenfrelsis- baráttunnar og réttindabaráttu fjölda annarra hópa sem höfðu verið kúgaðir eða haldið utan við áhrif á samfélagið. Segja má að toppurinn á þeirri baráttu hafi verið þegar Lyndon B. Johnson hélt ræðu við skólaslit í Ann Arbor 1964 og hélt því fram að einu gildu rökin fyrir að halda saman skipulögðu samfélagi millum okkar væri sá að rétta við aðstöðumun sem fólk byggi við og bæri ekki ábyrgð á. Mannúðar- hyggja var orðin að þungamiðju stjórnmálanna og réttlæting stjórn kerfisins. En þessi hugmynd sem John- son hampaði í Ann Arbor varð ekki langlíf. Okkur er gjarnt að horfa til sjöunda áratugarins sem kveikju samfélagslegra umbóta en það má allt eins líta á þennan ára- tug sem endalok mannúðarbylgj- unnar. Þrátt fyrir að Johnson gæfi kröfum um róttækar samfélags- legar breytingar undir fótinn þá varð sú stefna á endanum ofan á Lyndon B. Johnson sagði það einu rétt- lætingu þess að halda uppi skipulögðu mannfélagi að bæta aðstöðumun sem fólk byggi við en ætti ekki sök á sjálft. Ronald Reagan sigaði þjóðvarðliðinu á hippanna sem fylkisstjóri og hafði litla trú á að það gagnaðist að hjálpa hinum veiku. Hann vildi styðja þá sterku. í ábyrgð Verð 6.990 kr. PC Skin - Fartölvuumslög Verndaðu tölvuna þína með stæl. Walk on Water gæðaumslög fara vel með tölvuna þína. Verð 7.990 kr. Valuun Vibro ferðahátalari Vibro er seur á harðan flöt sem magnar hljómburðinn. Tengist með snúru eða Bluetooth. Verð 11.990 kr. Urbanears Plaan heyrnartól Frábær hljómur í léri umgjörð. Hægt að brjóta þau saman í lófastærð og raðtengja við önnur heyrnartól til að deila tónlistinni. og töff aukahlutir Verð 89.990 kr. Ódýr og góður kostur Dell Inspiron (3521) 15 - Celeron Með 15,6" skjá, nægu gagnaplássi, Windows 8 stýrikerfi og öllu því helsta sem góð tölva ber að hafa. Spræk vél fyrir hagsýna. Verð 114.990 kr. Skörp og skemmtileg Dell Inspiron (3521) 15 - i3 Vél með 15,6" skjá, floum örgjörva, nægu gagnaplássi og Windows 8 stýrikerfi. Vél sem klárar málin með þér. Verð 134.990 kr. Snaggaraleg með snertiskjá HP Pavilion TouchSmart - AMD Nálgastu vefinn á áþreifanlegan há með skemmtilegum snertiskjá og Windows 8 stýrikerfi. Verð 134.990 kr. Dell Inspiron (5521) 15R - i3 Verð 159.990 kr. Dell Inspiron (5521) 15R - i5 Dell Inspiron 15R er nú þynnri og lé ari með 3ju kynslóð Intel Core örgjörva og Windows 8 stýrikerfi. Litir í boði: Silfur, blár, bleikur og rauður. advania.is/skoli Verið velkomin í verslun okkar að Guðrúnartúni Reykjavík og Tryggvabraut Akureyri. Litríkar fartölvur H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 3 -2 2 1 6 Win 8 ÖRNÁMSKEIÐ FYLGIR FRÍTT samtíminn 75 Helgin 23.-25. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.