Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 66
66 skák og bridge Helgin 23.-25. ágúst 2013 Á rlega fer fram í Bandaríkjunum Spingold keppni þar sem margir af sterkustu spilurum heims eru meðal þátttakenda. Keppnin fór fram að þessu sinni í Atlanta og dramatíkin í úr- slitaleiknum vakti mikla athygli. Í úrslitum áttust við sveitir Joe Grue og Rafal Jag- niewskies sem var pólsk. Fyrir lokaspilið í leiknum var Grue með 10 impa forystu. En í lokaspilinu græddi sveit Pólverjanna 10 impa sem þýddi að staðan var jöfn. Efnt var til 8 spila bráðabana sem fór 22-1 fyrir Pólverjana og Spingold-sigurinn var þeirra. Þetta 10 impa sveifluspil hefur fengið mikla umræðu og sitt sýnist hverjum. Á öðrum salnum sátu Peter Berthau og Thomas Bessis úr sveit Grue í AV, gegn Jagniewski og Wojciech Gaval í NS. Bessi í austur hélt á: ♠10974 ♥94 ♦64 ♣ÁK875. Heyrði makker passa í vestur, norður (Jag- niewski) opna 2 tígla multi (veikir tveir í öðrum hvorum hálitanna), sagði pass og heyrði suður (Gaval) segja 4 tígla sem bað norður að segja hálit sinn. Vestur doblaði, norður pass og austur einnig. Gawal sagði þá 4 hjörtu sem voru pössuð út. Berthau spilaði út laufgosa og blindur birtist: ♠8 ♥KG10876 ♦753 ♣D64 Drottning í blindum, Bessis tók laufás, suður setti þrist og níu þegar laufkóngur var tekinn en Berthau setti lauftvist. Nú þurfti Bessis að velja framhald. Hvort átti hann að reyna laufstungu eða spila tígli í dobluðum lit félaga. Var hann með tvíspil í laufi G3 eða G103 þríspil? Hann valdi tígul sem nægði sagnhafa til vinnings. Allt spilið var svona: ♠ 8 ♥ KG10876 ♦ 753 ♣ D64 ♠ ÁKD ♥ Á52 ♦ KDG9 ♣ 1093 ♠ G6532 ♥ D3 ♦ Á1082 ♣ G2 ♠ 10974 ♥ 94 ♦ 64 ♣ ÁK875 N S V A Einhverjir eru þeirrar skoðunar að vestur eigi að setja tíuna með þrjú spil sem bendi frekar til að ekki sé stunga. Vegna þess að það var ekki gert, eigi austur að spila upp á laufstungu. Pólverjarnir í sveit Jagniewski voru auk hans, Gaval, Jacek Kalita og Michael Nowosadski. Með Grue voru auk hans, Bessis, Brad Moss, Jacob Morgan, Leslie Amoils og Beter Berthau. Á hinu borðinu opnaði norður á tveimur hjörtum og suður sagði 4 hjörtu. Vörninni lauk fljótt af, ÁK í laufi, vestur sýndi tvíspil, stunga og tígulás nægðu til að hnekkja spilinu. 8 sveita úrslit í bikarkeppni Dregið var í 8 sveita úrslit Bikarkeppni BSÍ og skal leikjum lokið fyrir 1. september. Drátturinn er þannig:  Hvar er Valli? - SFG  Rimi - J.E. Skjanni  Grant Thornton - Lögfræðistofa Íslands  Hjördís Sigurjónsdóttir – Stilling Áfram góð aðsókn í sumarbridge Miðvikudagskvöldið 7. ágúst var aðsókn- ing mikil og 40 pör mættu til leiks. Loka- staða 5 efstu varð þannig: 1. Magnús Sverrisson - Halldór Þorvaldsson 64,0% 2. Guðrún Kr Jóhannesdóttir - Arngunnur Jónsdóttir 62,7% 3. Árni Hannesson - Oddur Hannesson 60,3% 4. Ingibjörg Guðmundsdóttir - Sólveig Jakobsdóttir 59,2% 5. Hulda Hjálmarsdóttir - Unnar Atli Guðmundsson 58,6% Mánudagskvöldið 12. ágúst var aðsóknin 20 pör. Lokastaða 5 efstu para varð þannig: 1. Oddur Hannesson - Sigurjón Ingibjörnsson 61,3% 2. Guðrún Kr Jóhannesdóttir - Haraldur Ingason 60,2% 3. Hafliði Baldursson - Kristján Snorrason 55,3% 4. Kjartan Jóhannsson - Hjálmar S Pálsson 54,3% 5. Guðrún Jörgensen - Guðlaugur Sveinsson 54,2% Miðvikudagskvöldið 14. ágúst var að- sóknin 38 pör. Lokastaða 5 efstu para varð þannig: 1. Þorvaldur Pálmason - Jón Viðar Jónmundsson 64,9% 2. Bergur Reynisson - Stefán Stefánsson 61,6% 3. Guðmundur Snorrason - Birkir Jón Jónsson 60,0% 4. Kristján Snorrason - Jón Hákon Jónsson 59,7% 5. Gunnar B Helgason - Ragnar Magnússon 57,3% Mánudagskvöldið 19. ágúst var þátt- takan 24 pör. Lokastaða 5 efstu para varð þannig: 1. Soffía Daníelsdóttir - Hermann Friðriksson 59,9% 2. Gabríel Gíslason - Sigurður Steingrímsson 58,9% 3. Sigurjón Karlsson - Baldur Bjartmarsson 56,0% 4. Erla Sigurjónsdóttir - Guðni Ingvarsson 55,0% 5. Halldór Þorvaldsson - Magnús Sverrisson 54,9%  Bridge SterkuStu Spilarar heimS Dramatík í Spingold  SkÁkakademían Fimm íSlendingar eru launaðir atvinnumenn í SkÁk Í þjónustu skákgyðjunnar ... S ú var tíð að Íslendingar áttu fleiri stórmeistara í skák en hinar Norðurlandaþjóðirnar samanlagt. Við getum reyndar verið stolt af því að eiga nú 12 stórmeistara, og getum þar með gert tilkall til þess að vera mesta skákþjóð í heimi – miðað við höfðatölu auðvitað. Svíar eiga nú 18 stórmeistara, Danir og Norð- menn 10, og Finnar 5. Við getum verið bærilega ánægð með fjölda íslenskra stórmeistara, en á móti vegur að sumir af okkar bestu mönnum sjást sjaldan við skákborðið í seinni tíð. Fjórmenningaklíkan svonefnda, sem skaut Íslandi í fremstu röð, um og upp úr 1990, hefur fyrir löngu snúið sér að öðr- um verkefnum. Jóhann Hjartar- son er lögfræðingur deCode, Jón L. Árnason er í hópi yfirmanna Arion banka og Margeir Péturs- son sinnir viðskiptum í Úkraínu. Aðeins Helgi Ólafsson heldur ennþá fullri tryggð við skákgyðj- una, sem skólastjóri Skákskóla Ís- lands og landsliðseinvaldur. Fleiri íslenskir stórmeistarar eru að mestu horfnir úr faðmi skákgyðjunnar: Guðmundur Sig- urjónsson og Þröstur Þórhallsson stunda fasteignaviðskipti og Helgi Áss Grétarsson hefur getið sér orð sem lögspekingur. Af hinum „gömlu“ stórmeisturum okkar hefur Friðrik Ólafsson verið virkastur síðasta árið: Frá septem- ber 2012 til ágúst 2013 tefldi þessi goðsögn íslenskrar skáksögu alls 28 kappskákir. Og þá eigum við bara eftir at- vinnumennina okkar, sem þiggja laun úr launasjóði stórmeistara sem stofnaður var með lögum árið 1990 í kjölfar frækilegra afreka fjórmenninganna. Um þessar mundir eru fimm stórmeistarar á launum hjá sjóðnum: Héðinn Steingrímsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Henrik Danielsen, Stefán Kristjánsson og Lenka Ptacnikova, sem er stórmeistari kvenna. Atvinnumennirnir okkar hafa síðasta ár verið mjög mis- duglegir að tefla og taka þátt í skákmótum. Skoðum tímabilið frá september í fyrra þangað til í ágúst á þessu ári. Henrik Danielsen (2500 stig) 114 skákir Lenka Ptacnikova (2239) 90 skákir Hannes Hlífar Stefánsson (2526) 75 skákir Héðinn Steingrímsson (2549) 39 skákir Stefán Kristjánsson (2491) 34 skákir Til samanburðar má geta þess að stigahæsti skákmaður heims, Magnus Carlsen, tefldi 73 kapp- skákir á sama tímabili, en mörg dæmi eru um að stórmeistarar tefli vel á annað hundrað skákir á ári. Fróðlegt er að skoða virkni ungra íslenskra titilveiðara, til samanburðar. Þeir fá engin laun úr stórmeistarasjóðnum og búa því við allt önnur skil- yrði til að sinna skákíþróttinni. En það merkilega er, að ungu ljónin okkar eru mun duglegri en atvinnumennirnir. Þannig tefldi Guðmundur Kjartansson (2434) hvorki fleiri né færri en 176 skákir á tímabilinu, sem ber dugnaði hans og metnaði fagurt vitni. Dag- ur Arngrímsson (2385) tefldi 104 skákir og Hjörvar Steinn Grétars- son (2505) 100. Allir leggja þessir ungu menn leggja mikið á sig til að ná markmiðum sínum, einsog þessar tölur bera með sér. Bræðurnir Bragi (2493) og Björn (2403) Þorfinnssynir, sem báðir hafa náð stórmeistaraáfanga siðasta árið, eru ungir fjölskyldu- menn og eiga því óhægt um vik að tefla út um allar koppagrundir á eigin kostnað. Bragi tefldi 26 kappskákir á tímabilinu en Björn 24. Fjöldi tefldra kappskáka segir vitanlega ekki alveg alla söguna um dugnað eða styrk íslenskra skákmanna – en gefur vissulega mjög sterka vísbendingu um metnað og áherslur atvinnu- manna okkar, sem eru í þjónustu skattgreiðenda og skákgyðjunn- ar... Guðmundur Kjartansson. Stefnir að stórmeistaratitli og teflir langmest íslenskra skákmanna. Henrik Danielsen. Duglegastur ís- lenskra atvinnumanna. Landsliðskonurnar Anna Ívarsdóttir og Guðrún Óskarsdóttir etja kappi við Anton Haraldsson og Karl Sigurhjartarson. SKEIFUNNI | KRINGLUNNI | SPÖNGINNI | SÍMI 5 700 900 | PROOPTIK.IS frá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.