Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 17

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 17
Litavalið var líka svo smekklegt árið 1985 og þetta er tíminn áður en goritexið og flísið kom og þessi buff höfuðföt í neon- litum. www.kia.com ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3- 22 17 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum. *M.v. 50% útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílasamning ERGO í 84 mánuði. 9,7% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 11,71%. Öflugur sportjeppi Kia Sportage er öflugur sportjeppi sem hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Á kraftmiklum og fjórhjóladrifnum Sportage kemstu þangað sem þú ætlar þér jafnt sumar sem vetur. Hann er umhverfis- mildur og eyðir frá 5,5 l/100 km í blönduðum akstri. 7 ára ábyrgð er á nýjum Kia Sportage líkt og á öllum nýjum Kia bílum. Eigum bíla til afgreiðslu strax! Komdu og reynsluaktu. Verð frá 5.990.777 kr. 2,0 dísil, beinskiptur 6 gíra, 4wd Aðeins 51.777 kr. á mánuði í 84 mánuði* Verð frá 4.990.777 kr. 1,7 dísil, beinskiptur 6 gíra, 2wd Aðeins 47.677 kr. á mánuði í 84 mánuði* H ross í oss fjallar um fólk sem girnist hvort ann- að og hesta sem girnast hvorn annan og dauðans óvissa tíma og örlögin sem fléttast þarna á milli,“ segir Benedikt Erlings- son, leikari og leikstjóri, um fyrstu kvikmynd sína í fullri lengd sem frumsýnd verður um næstu helgi. Sögusvið myndar- innar er dalur í íslenskri sveit árið 1985. Charlotte Böving, eiginkona Benedikts, leikur eitt aðalhlutverkanna í myndinni og segir hún myndmálið fá njóta sín vel og ekki mikið um langar samræður. „Ég segi nú ekki mikið í myndinni,“ segir Char- lotte. „Jú, jú, þú segir „sælt veri fólkið“ og „ég er vel ríðandi“ og svo í lok myndarinnar „komdu og farðu úr,“ segir Benedikt sannfærandi. Blaðamaður hitti þau hjónin einn góðviðrisdag vikunni í og ræddi við þau um kvikmyndina sem verið hefur draumur Benedikts að gera í nær tvo áratugi. Kvikmyndin Hross er oss er innansveitarkróníka sem í grunninn fjallar um mann sem elskar konu sem er nýorðin ekkja. Maðurinn elskar líka merina sína sem hann er mjög stoltur af. „Á hverjum sunnu- degi ríður hann um sveitina og menn dást að honum. Þennan sunnudag, sem myndin gerist, stendur mikið til því ekkjan hefur boðið honum í heimsókn og hann mætir í sínu fínasta pússi á fínu merinni og sveitin fylgist með og það glampar víða á kíki en það eru fleiri ástfangn- ir en þau tvö,“ segir Benedikt leyndardómsfullur á svip. Í Hrossum í oss fléttast örlagasögur manna og hesta saman. Form myndarinnar er því líkt og kvikmyndanna Magnolia og Shortcuts og segir Benedikt það fela í sér að aðal sögupersóna myndar- innar sé samfélagið eða sveitin sem heild. Hestar leika stór hlutverk í myndinni og fjórir fyrstu leikararnir á kreditlist- anum eru þau Ingvar E. Sig- urðsson, Gammur frá Hemlu, Charlotte Böving og Myrra frá Vindheimum. Þegar viðtalið var tekið voru aðstandendur myndarinnar að leggja loka- hönd á hljóðvinnslu en mikið er um hófadynki og náttúru- hljóð. Benedikt og Charlotte segja myndina lofa mjög góðu eftir að hafa séð hana án full- komins hljóðs. „Hún minnir mig á konfektkassa frá Nóa og Síríus. Svona fallega landslags- mynd, til dæmis af Eiríksjökli og blóðberg í forgrunni og svona hvítur jökulskalli og blár himinn,“ segir Benedikt. „Nei, er hún ekki meira eins og konfektkassi frá Anton Berg,“ segir Charlotte sem greinilega er hrifnari af danska konfekt- inu. Níundi áratugurinn var góður Benedikt segist hafa verið upp á sitt besta árið 1985 og því ger- ist myndin þá. „Fólk var líka í svo fallegum fötum á þeim tíma og reið ekki með hjálma eins og í dag. Litavalið var líka svo smekklegt og þetta er tíminn áður en goritexið og flísið kom og þessi buff höfuðföt í neon- litum. Það er engin sveitaróm- antík eftir lengur þegar fólk klæðir sig eins og það gerir nú- tildags,“ segir hann. Charlotte er ósammála og segir leikbún- ing sinn í myndinni hafa verið allt annað en kynþokkafullan. „Það er stundum sagt að leik- arar verði að vera kynþokka- fullir til að fá aftur hlutverk. Við þurfum í það minnsta ekki að hafa áhyggjur af því að hafa verið of kynþokkafull í fötunum frá 1985,“ segir hún og brosir. Benedikt bætir við að ein- hver gylltur ljómi sé yfir tímabilinu 1985 til 1990. Þá hafi hann verið ungur drengur að kynnast hestamennskunni og er sögusvið myndarinnar fantasía inn í þann heim. „Á þessum tíma var til eitthvað sem var kallað Kodak Golden Moment. Þá tók maður Kodak myndir og á þeim voru fjalls- topparnir svo gylltir og fallegir. Reyndar var ömurlegt veður allan þennan áratug en ég hafði engan samanburð á þeim tíma,” segir hann. Margra ára undirbúningur Benedikt ólst upp í miðbæ Reykjavíkur en Charlotte í Ár- ósum í Danmörku. Í æsku hafði hún mikinn áhuga á hestum en datt af baki og hætti þá hesta- iðkuninni um tíma. Nokkrum árum síðar, þegar hún var orðin leikkona, byrjaði hún aftur að stunda hestamennskuna og kynntist þá íslenska hestinum hjá gamalli konu í þorpi, nálægu Árósum. „Svo fór ég til Íslands í fyrsta sinn árið 1996 í tíu daga hestaferð með Eldhestum. Ég varð svo hrifin af landinu að ég ákvað að kom aftur. Þá skoðaði ég leikhús og var stödd á Kaffi list í hópi nokkurra leikara, meðal annarra Steins Ármanns, Hilmis Snæs og Steinunnar Ólínu, þegar ég hitti Benedikt fyrst.“ Um það leyti er þau Benedikt og Charlotte kynntust var hann að byrja að skrifa fyrsta hand- ritið að Hrossum í oss. „Þá bjó ég í íbúð Friðriks bróður míns og þangað bauð ég Charlotte eftir kvöldið á Kaffi list,“ segir hann. „En það sko gerðist ekk- ert þá,“ skýtur Charlotte inn í og hlær. Benedikt hafði alltaf hugsað sér að gera kvikmynd um hesta og fólk og sá jafnvel fyrir sér að myndin yrði stutt- mynda þríleikur en eftir að hafa gert tvær stuttmyndir komst Framhald á næstu opnu viðtal 17 Helgin 23.-25. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.