Fréttatíminn - 23.08.2013, Síða 12
Orðaskakið og átökin sem birtist almenningi í ræðustól
Alþingis hafa grafið undan nauðsynlegu trausti á þessa
veigamiklu stofnun lýðræðisins.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
T
Tveir af hverjum hundrað Íslendingum
bera fullkomið traust til Alþingis. 98 gera
það því ekki. Hluti þeirra ber hins vegar
„frekar mikið traust” - og samanlagt ná
þessir tveir hópar fjórtán prósentum. Það
er ekki hátt hlutfall. Þrír af hverjum fjórum
Íslendingum, samkvæmt könnun sem Fé-
lagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði
fyrir Alþingi, bera ekki traust til þingsins.
En hver er skýringin á vantraustinu? Jú,
mikill meirihluti þeirra sem
svöruðu könnuninni kenna
þingmönnunum sjálfum um.
Samskiptamáti og framkoma
þeirra sé þess eðlis að draga
úr trausti á stofnunina sem
slíkri.
Þingmönnum hefur
sjálfum verið tíðrætt um þann
slæma sið sem skapast hefur í
orðræðu þeirra á milli. Mikið
hefur verið rætt um „íslensk
átakastjórnmál” þar sem
stóryrði eru hvergi spöruð á
kostnað málefnalegrar og hófstilltrar um-
ræðu. Stjórnmálafræðingar eru sammála
um að þó svo að átakahefðina megi reka
langt aftur hafi persónuníð, ómálefnaleg
umræða og átakagaspur færst í aukana í
stjórnmálaumræðu á Íslandi síðastliðin 20
ár.
Dvínandi traust á Alþingi og umræðan
um átakastjórnmálin varð beinlínis til þess
að nýr stjórnmálaflokkur, Björt framtíð,
var stofnaður fyrir síðustu kosningar sem
hafði það að meginmarkmiði að bæta ís-
lenska stjórnmálamenningu. Sá flokkur
náði hvorki fleiri né færri en sex mönnum
á þing.
Átakahefðin í íslenskum stjórnmálum er
mjög gömul og á sér djúpar rætur í íslensku
samfélagi. Íslendingar eiga litla rökræðu-
hefð og hafa tilhneigingu til þess að mála
hlutina með einföldum táknum, farið er í
manninn en ekki boltann.
Vilhjálmur Árnason heimspekiprófessor
hefur lýst muninum á málefnalegri og
ómálefnalegri stjórnmálaumræðu þannig
að í málefnalegri umræðu mætist menn í
viðfangsefni eða málefni sem þeir leitast
við að lýsa upp og öðlast skilning á. Komi
upp ágreiningur verði hann leiddur til lykta
með röksemdum og úrlausnum. Höfuð-
atriðið sé að nálgast bæði málefnið og
viðmælandann af sæmilegri viðrðingu því
einungis þannig sé hægt að hafa það sem
sannara eða réttara reynist.
Andstæða málefnalegrar umræðu er
hins vegar kappræða, eða umræða sem
einkennist af hernaðarlist og klækjum
þar sem farið er í manninn í stað þess að
gera tilraun til að lýsa upp viðfangsefnið
og öðlast skilning á því í ljósi röksemda. Í
klækjaumræðunni skiptir meira máli hver
hefur máls á einhverju, hvaðan tillagan
kemur en hversu góð hún er. Í stað þess að
taka hinn málefnalega punkt er farið inn í
huga eða bakgrunn andstæðingsins og mál
hans rakið til einhverra annarlegra áhrifa
eða hagsmuna.
Íslensk stjórnmálaumræða einkennist
einmitt af hernaðarlist og klækjum. Davíð
Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra,
lýsti á eftirminnilegan hátt herkænsku
sinni sem hann nefndi smjörklípuað-
ferðina, sem felst í því að beina athyglinni
frá eigin vanda með því að benda á annan
verri. Hugtakið hafði Davíð frá frænku
sinni fyrir vestan sem hafði þann sið að
klína smá smjörklípu á heimilisköttinn
þegar halda þurfti honum uppteknum um
hríð.
Átakahefð íslenskra stjórnmála er talin
tengjast því hvernig íslenskir stjórnmála-
flokkar hafa þróast. Þeir einkenndust hér
áður fyrr af fyrirgreiðslupólitík þar sem
málefnin eru ekki það sem raunverulega
skiptir máli heldur er pólitíkin barátta um
völd og áhrif sem fylgir óhjákvæmilega
ákveðin hernaðarlist.
Þó svo að stefnuágreiningur sé óhjá-
kvæmilegur hluti stjórnmálaumræðunn-
ar og stjórnmálamönnum beri að veita
hverjum öðrum aðhald má klækjaumræðan
ekki ganga svo langt að hún beinlínis grafi
undan allri málefnalegri umræðu.
Slíkt virðist nú hafa gerst – smám saman
– á undanförnum áratugum. Orðaskakið
og átökin sem birtist almenningi í ræðustól
Alþingis hafa grafið undan nauðsynlegu
trausti á þessa veigamiklu stofnun lýð-
ræðisins. Þeir einu sem geta endurheimt
traustið eru þingmennirnir sjálfir. Og þeir
eiga ærið verk fyrir höndum.
98 prósent þjóðarinnar ber ekki fullkomið traust til Alþingis
Þingmenn geta sjálfum sér um kennt
Sauðsvartur almúginn
Þið tveir eruð moldríkir og
hafið aldrei þurft að hafa
neitt fyrir lífinu.
Svanur Már Snorrason
vandar forsætisráðherra ekki
kveðjurnar í pistli á Vísi.
Kjarni málsins
Virðist vera gert
fyrir snjallsíma eða
spjaldtölvur.
Jónas Kristjánsson,
ritstjóri átti í erfiðleikum
með að flétta pdf formi
Kjarnans, nýs fréttamiðils.
Skrítnar umferðarreglur
í Rússlandi
Rússar fara kannski ekkert mikið eftir
einhverjum umferðarreglum, nema
þetta séu þeirra reglur.
Knattspyrnumaðurinn Sölvi Geir Ottesen
er fluttur til Rússlands og genginn til liðs
við rússneska úrvalsdeildarliðið FC Ural.
Bless Siggi!
Ég held að allir haft gott
af því að Sigurður fari
að snúa sér að öðru
núna.
Knattspyrnukonan
Edda Garðarsdóttir
var ekki valin í þann
landsliðshóp sem lék á
Evrópumótinu í Svíþjóð
og fékk tilkynningu þess efnis frá
þjálfaranum símleiðis.
Eiður Guðnason hrósar Stöð 2
Molaskrifara hefur svona á
heildina litið þótt sem
fréttirnar á Stöð tvö
hafi heldur verið í
sókn að undanförnu.
Eiður Guðnason
er ánægður með
umfjöllun fréttastofu
Stöðvar tvö um olíuleit
og rannsóknir á þeim
vettvangi frá Kristjáni Má Unnarssyni.
Ætli það verði ekki einhver ráð
með það
Við erum bara í einhverju reiðuleysi
hérna, vitum ekki hvað við eigum að
gera.
Pétur Björnsson MR-ingur lýsti þeirri kvöl
og pínu að heimför útskriftarhóps hans
frá Krít seinkaði lítillega.
Segir fasteignasala þiggja
mútur
Fasteignafélög geta tryggt
sér forkaupsrétt að álit-
legum íbúðum með
ríflegri aukagreiðslu
til fasteignasala.
Ásdís Olsen
háskólakennari er
orðin þreytt á því
að finna ekki íbúð
og segir mútur líðast á
fasteignamarkaði.
Vikan sem Var
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Galieve Cool Mint mixtúra, dreifa /skammtapoki / Galieve Peppermint tuggutöflur.. Innihaldslýsing:
Hver 10 ml skammtur af Galieve Cool Mint inniheldur 500 mg af natríumalgínati, 267 mg af
natríumhýdrógenkarbónati og 160 mg af kalsíumkarbónati. Hver tafla Galieve Peppermint
inniheldur: 250 mg af natríumalgínati, 133,5 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 80 mg af
kalsíumkarbónati. Ábendingar: Meðferð við einkennum maga- og vélindabakflæðis, svo sem nábít
(sýrubakflæði), brjóstsviða og meltingartruflunum (tengdum bakflæði), t.d. eftir máltíðir eða á
meðgöngu. Skammtar og lyfjagjöf: Galieve Cool Mint mixtúra: Til inntöku. Fullorðnir og börn 12 ára
og eldri: 10-20 ml (eða 1-2 skammtapokar) eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum
sinnum á dag). Galieve Peppermint tuggutöflur: Til inntöku, eftir að hafa verið tuggin vandlega.
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Tvær til fjórar töflur eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að
fjórum sinnum á sólarhring). Frábendingar: Ekki má nota lyfið hjá sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir
virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna, eða ef grunur er um slíkt. Sérstök varnaðarorð og
varúðarreglur við notkun: Galieve inniheldur natríum. Þetta þarf að hafa í huga þegar þörf er á mjög
saltsnauðu fæði, t.d. í sumum tilvikum hjartabilunar og skerðingar á nýrnastarfsemi. Galieve
inniheldur kalsíumkarbónat. Gæta þarf varúðar við meðferð sjúklinga með blóðkalsíumhækkun,
nýrnakölkun og endurtekna nýrnasteina sem innihalda kalsíum. Verkun er hugsanlega skert hjá
sjúklingum með mjög lága þéttni magasýru. Ef einkenni batna ekki eftir sjö daga, skal endurmeta
klínískt ástand. Yfirleitt er ekki mælt með meðferð hjá börnum yngri en 12 ára, nema samkvæmt
læknisráði. Galieve Cool Mint mixtúra/skammtapokar inniheldur metýlparahýdroxýbenzóat (E218)
og própýlparahýdroxýbenzóat (E216) sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum (hugsanlega
síðbúnum). Galieve Peppermint tuggutöflur má ekki gefa sjúklingum með fenýlketónmigu, þar sem
þær innihalda aspartam.. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi:
Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
1. V Strugala er. Al. The journal of international medical research, vol 38 (2010) A randomized,
Controlled, Crossover trial to Investigae Times of onset of the perception of soothing and cooling
by Over-the-Counter Heartburn Treatments.
2. B.Chevrel, MD. Journal of International Medical Research, vol 8 (1980) A comparative Cross-over
Study on the Treatment of heartburn and Epigastric Pain; Liquid Gaviscone and Magnesium-
Aluminum Antacid Gel.
Ert þú með
brjóstsviða?
• Dregur úr brjóstsviða á 3 mínútum 1
• Virkar í allt að 4 tíma 2
Mixtúra Cool Mint 300 ml
Mixtúra með Cool Mint bragði og lykt.
Galieve Peppermint
Tuggutöflur með piparmintu bragði
12 viðhorf Helgin 23.-25. ágúst 2013