Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Page 15

Fréttatíminn - 23.08.2013, Page 15
 Gestir Menningarnætur eru hvattir til að skilja bílinn eftir heima eða við stærri bílastæði utan miðbæjarins og nýta sér ókeypis ferðir með Strætó. Afar skynsamlegt er að leggja bílnum þar sem eru stór og rúmgóð stæði, svo sem við skóla, stóra vinnustaði eða íþróttamannvirki. Nánari upplýsingar um akstur Strætó á Menningarnótt færðu á strætó.is Þar eru t.d. kort, afstöðumyndir sem sýna hvar vögnum verður lagt og nýjar akstursleiðir sem sjá um að tæma miðbæinn. Á Menningarnótt verður stór hluti miðbæjarins lokaður fyrir umferð og því verður akstursleiðum Strætó breytt. Strætó mun aka allan daginn og um kvöldið að og frá Hlemmi og BSÍ. Allar leiðir sem aka venjulega um miðbæinn munu stöðva framan við BSÍ, á Gömlu Hringbrautinni. Hefðbundið leiðakerfi Strætó verður gert óvirkt kl. 22:30 á Menningarnótt. Þá verður öll áhersla lögð á að flytja gesti heim úr miðbænum og verða allir strætisvagnar settir í það verkefni. Síðustu ferðir verða eknar frá BSÍ og Hlemmi að lokinni flugeldasýningu kl. 00:30. Leiðakerfi höfuðborgarsvæðisins óvirkt eftir kl. 22:30 á höfuðborgarsvæðinu Akstur hefst upp úr kl. 7:30. frítt í 24

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.