Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 22

Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 22
synt i eldborg i horpu Sýningardagar: Frumsýning: 19. 10. 2013 2. sýning: 25. 10. 2013 3. sýning: 2. 11. 2013 4. sýning: 10. 11. 2013 5. sýning: 16. 11. 2013 6. sýning: 23. 11. 2013 www.opera.iS eftir georgeS bizet Hanna dóra Sturludóttir · Sesselja Kristjánsdóttir Kolbeinn Jón Ketilsson · garðar Thór Cortes Hrólfur Sæmundsson · Kristján Jóhannesson Hallveig rúnarsdóttir · Þóra einarsdóttir Bjarni Thor Kristinsson · Viðar gunnarsson Lilja guðmundsdóttir · Valgerður guðnadóttir Snorri wium · Ágúst Ólafsson · Jóhann Kristinsson Kór og hljómsveit Íslensku óperunnar Hljómsveitarstjóri: guðmundur Óli gunnarsson · Leikstjóri: Jamie Hayes Leikmynd: will Bowen · Lýsing: Björn Bergsteinn guðmundsson Búningar: Helga i. Stefánsdóttir 19. okt. 2013 FRUMSYNING Haraldur Jónasson hari@ frettatiminn.is Karlmennskan er ekkert grín Mjúki maðurinn er dauður og nú skal karl- mennskan ein ríkja. Þá er hvorki verið að tala um karlrembur, riddaramennsku eða getuna til þess að horfa á Armageddon án þess að gráta. Heldur getuna til þess að opna krukkur án þess að hleypa lofti undir lokið. Við erum að tala um líkamlegan styrk. Karlmennsku! H ingað til hefur það tíðkast að spyrja menn hvað þeir taka í bekk til að flokka sauðina frá höfrunum en það er ekki alltaf besta leiðin. Því sú æfing styrkir aðallega brjóstkassann og það þarf að vera ansi harður til að opna Ora-rauðkál með kassanum. Nei, við erum að tala um þrjár æfingar sem allar snúa að því að lyfta eigin líkamsþyngd; upphífingar, dýfur og armbeygjur eru þær æfingar sem þarf að ná tökum á til að geta talist karlmaður. Hnébeygjur með þung lóð á öxlunum sitja svo í fjórða sætinu. En það er önnur saga. Armbeygjur Armbeygjur og -réttur eru náttúrlega elsta og besta æfingin sem hægt er að gera. Það eru líka til ótal afbrigði. Það er hægt að hafa vítt grip, þröngt grip, olnbog- arnir geta verið samsíða eða vísað aðeins út. Klapparmbeygjur eru góðar og Spidermann á meira að segja sína eigin beygju. Sem sagt ótal útgáfur. Það þykir þó ekki karlmannlegt að gera armbeygjur á hnjánum. Svo það sé á hreinu. Til þess að vera flokkaður með mestu karlmennum þarf að geta tekið góðar 30 armbeygjur í beit. Þegar þær svo fara yfir 40 er komið yfir í ofurflokk með þyngdum dýfum. Svona er best að gera hefð- bundna karlmennskubeygju: Byrja í plankastöðu með líkamann alveg beinan frá öxlum niður í ökkla. Hendurnar eru aðeins víðari en axlir og hálsinn hlutlaus. Maga- vöðvarnir eru virkir og tærnar þétt við gólfið. Beygja hendurnar þangað til þær mynda 45 gráður um olnbogann. Sprengja svo líkam- anum frá gólfinu upp í plankastöð- una. Anda inn á leiðinni niður og út á leiðinni upp. Endurtaka svo 40 sinnum og krukkurnar fara að opna sig sjálfar af hræðslu. Dýfur Til að teljast karl- mannlegur þarf að taka að lágmarki 10 góðar dýfur. Þær þjálfa þríhöfðann sem er mjög mikil- vægur þegar þarf að opna krukkur með mjög föstu loki. Svona á að fara að: Hífa sig upp þannig að líkaminn sé beinn upp frá gólfinu. Bannað að halla fram því þá er verið að æfa brjóstvöðvann meira en þríhöfðann. Dýfa svo niður hægt og rólega þangað til axlirnar síga aðeins niður fyrir olnbog- ana. Hífa svo upp aftur og þá er komin ein dýfa. Gott að krossa ökklunum fyrir gott jafnvægi. Þegar karl- mennskulágmarkinu er náð er um að gera að reyna við ofurkarlmennskuna og hengja lóð í þar til gert belti og dýfa. Aðrir í salnum munu líta í gaupnir sér og ganga jafnvel fljótlega til búningsherbergja. Upphífingar Þessi æfing er sú allra karlmannleg- asta. Hún skapar líka gott grip sem er nauðsynlegt þegar opna á krukk- ur. Til að byrja með munu margir ströggla við að gera eina almenni- lega upphífingu en með æfingu og réttu tökunum kemur þetta. Aftur er lágmarkið 10 endurtekningar. Til að upphífingin sé sem karlmannlegust þurfa lófarnir að snúa frá líkamanum á stönginni. Snúi þeir að er um upp- tog að ræða. Það mikilvægasta er að nota bakvöðvana sem heita á latnesku latissimus dorsi. Á karlmennsku heita hins vegar latsar og það þarf að virkja þá í upphífingunum. Svona á að fara að: Hanga úr stöng með sæmilega vítt grip. Ekki læsa olnbogunum alveg en svona eins ná- lægt því og hægt er. Hífa líkamann svo upp með fyrrnefndum bakvöðvum. Kannski með smá hjálp frá tvíhöfða- num. Sem þekkjast betur undir karl- mennskuheitinu: byssur. Hakan á að ná upp fyrir stöngina. Um leið og það þarf að rykkja líkaman- um til þess er kominn tími til að hætta og reyna aftur á morgun. 22 líkamsrækt Helgin 23.-25. ágúst 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.