Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Qupperneq 28

Fréttatíminn - 23.08.2013, Qupperneq 28
Húðflúr Guðlaugs vekja einmitt athygli allra sem komast í tæri við hann. Öll vinstri höndin er flúruð og meira til. „Ég var að byrja á þeirri hægri. Þetta er bara sjúkdómur og ekkert annað þegar maður er byrj- aður.“ Mikil hvatning frá fósturpabba Eins og áður sagði er pabbi Guð- laugs Portúgali. Hann hefur ekki haft mikið af föður sínum að segja og veit ekki hvort fótboltahæfileik- arnir komi þaðan. „Mig minnir nú að hann hafi sagt mér að frændi hans, og þar með væntanlega frændi minn, hafi spilað fyrir Porto í gamla daga. Ég þekki fjölskyldu hans eiginlega ekki neitt, hann hefur eiginlega aldrei verið til staðar í mínu lífi. Hann flutti ungur til Íslands og fór að vinna í fiski úti á landi. Svo flutti hann til Reykja- víkur og var að vinna í næturlíf- inu. Hann kynntist mömmu minni en þau voru ekki saman eða gift. Hann hefur svo bara verið út úr lífi mínu og ég veit ekki hvort einhverjir hæfileikar séu frá honum komnir. Ég hreinlega veit það ekki.“ Guðlaugur eignaðist síðar fóstur- föður sem hefur reynst honum afar vel. „Þegar ég er tíu ára kynnist móðir mín Marteini Þorkelssyni og hann varð mér, og er enn, eins og pabbi minn. Hann stóð með mér í einu og öllu og það er honum að þakka að ég er í fótbolta. Hann var ekki nema 22 ára þegar hann kynnt- ist mömmu minni og tók mig alveg að sér frá fyrsta degi. Hann fór á æf- ingar hjá mér og mætti á öll mótin. Hann hvatti mig áfram í þessu öllu og ég á honum mikið að þakka. Þau voru saman í tíu ár og eignuðust dóttur saman. Þau skildu svo akk- úrat á þeim tíma þegar ég fór út til AGF og þá fluttu móðir mín og systir með mér til Danmerkur. Þær voru með mér í eitt og hálft ár en síðan byrjaði allt þetta ævintýr. Þá byrjaði heimsreisan.“ Einn á hótelherbergi á jólunum í óveðri Á ferli atvinnumannsins geta skipst á skin og skúrir. Þó Guðlaugur Vic- tor sé enn ungur að árum og hafi fengið að reyna ýmislegt er hann ekki vafa þegar hann er beðinn að nefna lágpunktinn á ferli sínum. „Það var þegar ég fór frá Liver- pool á láni til Dagenham & Red- bridge. Ég man vel hvernig þetta kom til. Ég var að fara að keppa varaliðsleik og í rútunni hringdi umboðsmaðurinn minn og sagði mér frá þessu. Ég skoraði í þessum leik og fannst rosa spenn- andi að vera að fara á lán því að Roy Hodgson hafði sagt að ég þyrfti að fá reynslu. Fótboltinn gekk vel í fyrstu. Ég spilaði FA Cup-leik á móti Leyton Orient og við gerðum jafntefli og svo annan leik sem við unnum. Svo var ég bara á bekknum. Stjórinn hét John Still man ég. Þetta var tveggja mánaða lán og á þeim tíma voru átta leikir. Ég endaði á að spila þrjá leiki og var á bekknum í þremur en hinum var aflýst vegna veðurs. Ég bjó á hóteli í Austur- London í „middle of nowhere“. Það bjargaði mér að góður vinur minn var í heimsókn hjá mér og endaði á að vera með mér mestallan tímann. Þú getur rétt ímyndað þér að þetta var ekki skemmtilegt, fastur í Austur-London í óveðri og fá ekki að spila. Ég hélt meira að segja jólin inni á þessu hótelherbergi. Aleinn. Það var heldur betur eftirminni- legt.“ Guðlaugur segir að síðasta tímabil, hans fyrsta með NEC í Hol- landi, sé hápunktur ferilsins. „Ég á reyndar margar skemmtilegar minningar líka frá Liverpool. Til dæmis þegar Steven Gerrard spilaði varaliðsleik með okkur. Hann stóð í réttarhöldum þar sem hann var sakaður um líkamsárás og var ekk- ert með aðalliðinu á meðan. Þetta var leikur á móti Tranmere Rovers og ég var fyrirliði liðsins. Það er skemmtilegasta minningin.“ Kærastan flytur út í haust NEC er í borginni Nijmegen sem er nálægt landamærunum við Þýska- land. Guðlaugur segir að þetta sé mikill háskólabær sem sé afskap- lega passlegur, hvorki of stór né of lítill. Hann býr í ágætu húsi sem hann greinilega passar vel upp á því þegar viðtalið fór fram hafði hann nýlokið við að þrífa. Hvað gerirðu svo utan fótboltans og að þrífa? „Ég spila golf og svo á ég hund sem þarf að sinna. Hún er labrador og þarf að fá mikla hreyfingu. Svo er maður bara að slappa af, maður kannski finnur sér góða bók ein- staka sinnum. Ég er líka alltaf að verða betri og betri í eldhúsinu. Maður er farinn að hafa áhuga á því að elda sér góðan mat, að krydda aðeins hlutina.“ Þótt Guðlaugur búi einn er hann síður en svo einmana. Hann á kærustu, Andreu Röfn Jónasdóttur tískubloggara, sem dvelst stundum hjá honum. Andrea Röfn flytur á næstunni út til Guðlaugs. En þangað til hefur hann félagsskap af öðrum íslenskum fótboltamönnum sem leika í Hollandi, Aroni Jóhanns- syni, Kolbeini Sigþórssyni og Al- freð Finnbogasyni. „Ég og Aron erum bestu vinir og reynum að hittast eins oft og hægt er. Sama með Alfreð, við erum vinir úr Grafarvoginum. Það er mikilvægt að geta hitt vini sem maður ólst upp með og helst að tala um eitthvað allt annað en fótbolta. Við Alfreð höfum til dæmis skellt okkur á tónleika en svo horfum við kannski á myndir, glápum á fótbolta eða förum út að borða. Þetta er bara „Quality“-tími með strákunum.“ Safnaði 4,2 milljónum fyrir Barnaspítalann Athygli hefur vakið að Guðlaugur Victor leggur sig fram að láta gott af sér leiða. Í sumar hélt hann góð- gerðarkvöldverð og gaf ágóðann til Barnaspítala Hringsins. „Þegar ég var 18 ára fékk ég allt Liverpool-liðið til að árita treyju og fór með hana upp á Barnaspítala. Eftir þá heimsókn, þegar ég fékk að hitta krakkana, þá ákvað ég að gera meira. Svo hélt ég uppboð á netinu á treyjum og safnaði 300 þúsund kalli en fannst það ekki nógu gott. Mark- miðið með góðgerðarkvöldverð- inum var að safna 2,5 milljónum en það söfnuðust 4,2 milljónir sem var alveg frábært. Mér finnst þetta mjög mikilvægt.“ Hættur að láta sig dreyma Hvað með sjálfan þig og ferilinn sem fótboltamaður? Áttu þér ein- hverja drauma eða markmið sem þú ætlar að ná? „Þegar maður var að byrja var maður alltaf með drauma. Í dag vil ég bara eiga góðan feril. Ég vil spila bara spila fótbolta og gera það í eins góðri deild og ég get. Auðvitað væri gaman að fara aftur til Eng- lands eða prófa að spila í Þýskalandi og ef ég held áfram að standa mig svona þá gæti það vel gerst. En ég á mér enga drauma eða draumalið. Tíminn verður bara að leiða í ljós hvað verður.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Guðlaugur er á föstu með Andreu Röfn Jónasdóttur tískubloggara. Hún flytur út til hans í næsta mánuði. Guðlaugur Victor hefur farið víða þrátt fyrir ungan aldur. Hér sést hann í búningum Liverpool, New York Red Bulls og NEC. Guðlaugur var stuðningsmaður Manchester United áður en hann fór til Liverpool. Nú segist hann vera hlutlaus. 28 viðtal Helgin 23.-25. ágúst 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.