Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 30

Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 30
30 bílar Helgin 23.-25. ágúst 2013 Vinsælasti bíll í heimi Toyota Corolla er mest seldi bíll í heimi. Frá því hann kom fyrst á markað árið 1966 hafa selst rúmlega 40 milljón Corollur víðs vegar um heiminn. Í hverjum mánuði seljast að jafnaði hundrað þúsund Corollur sem þýðir að tvær seljast á hverri einustu mínútu. Alls hefur Toyota sett á markað ellefu kynslóðir Corollu, en talað er um nýja kynslóð þegar bíllinn er endurhannaður. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is 1966 Fyrsta kynslóð Corollu kom á markað í Japan í október 1966. Hún var afturhjóladrifinn, með 1,1 lítra vél, fjögurra gíra beinskiptingu og var seldur í þremur útgáfum: tveggja dyra, fjögurra dyra og sem hlaðbakur (e. Station). 1970 Önnur kyn-slóðin kom á markað árið 1970 og var með ávalari línur en fyrirrennar- inn. Hún var með stærri vél, 1,4 og 1,6 lítra og varð næstsöluhæsti bíllinn það árið. Minniháttar útlitsbreytingar voru gerðar árið 1971 með nýju grilli, stefnuljósum og afturljósum.1974 Þriðja kynslóðin leit dagsins ljós árið 1974 og var stærri, þyngri og straumlínulagaðri. Þetta var langlífasta kyn- slóðin af Corollu en talið er að kreppan á áttunda áratugnum hafi spilað þar inn í. 1979 Fjórða kynslóðin kom á markað í mars 1979 og var með mun beinni línum en kynslóðin á undan. Milljónasta Corollan var af þessari kynslóð, framleidd í febrúar 1983. 1987 Sjötta kynslóð Coroll- unnar kom á markað 1987 og var mun rúnnaðri og straumlínulagaðri en fyrirrennarinn. Hún var nú fáanleg með fjórhjóladrifi á Ameríkumarkaði. 1991 Sjöunda kyn-slóðin kom á markað árið 1991 og var stærri, þyngri og enn straumlínulagaðri líkt og hönnunartíska tíunda áratugarins gaf tilefni til. Þessi kynslóð naut ekki jafnmikilla vinsælda og hinar fyrri og má þar meðal annars kenna um óhagstæðu gengi jensins gagnvart öðrum gjaldmiðlum. 1995 Áttunda kynslóðin kom á markað árið 1995 og var útlitið nokkuð áþekkt kynslóðinni á undan. Miklar tækniframfarir buðu þó upp á nýja og léttari vél. Þessi kynslóð fékk and- litslyftingu árið 1999 þar sem framhlutanum var breytt. 2000 Níunda kynslóðin kom á markað aldamótaárið 2000. Hún var öll nútímalegri í útliti og tæknilegri í anda 21. aldarinnar sem nú var runnin upp. 2006 Tíunda kynslóð kom á markað í Japan árið 2006. Hún bauð upp á ýmsar tækninýjungar líkt og bakkmyndavél, fjar- lægðarskynjara og aðstoð við að leggja í stæði. 2013 Nýjasta kynslóðin kom á mark-að nú í sumar og er nokkuð breytt. Stærsta nýjungin felst í því að nú fæst Corollan með svokallaðri Hybrid-vél sem gerir hana að einum sparneytnasta bílnum í sínum flokki. Ný hönnun miðaðist að því að gera bílinn sportlegri og hefur það tekist með miklum ágætum. 1983 Fimmta kynslóðin kom á götuna 1983 og var sú fyrsta sem var framhjóladrifin. Hún náði miklum vinsældum og varð mest seldi bíll sinnar tegundar, seldist í 3,3 millj- ónum eintaka. Building a company with heart stofnandi Build-A-Bear Workshop „ Not dreaming big enough is one of the biggest mistakes you can make.“ - Maxine Clark MAXINE CLARK Konan sem breytti smásölumarkaðnum með innsæi og frumleika. Build-A-Bear Workshop þróaðist frá því að vera ein lítil búð yfir í keðju rúmlega fjögur hundruð verslana í fjórtán löndum. Viðskiptavinir hafa búið til rúmlega fimmtíu milljónir bangsa. Hádegisverðarfundur með Maxine Clark ásamt Jóni Björnssyni, forstjóra Orf líftækni og Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, framkvæmdarstjóra og annars eiganda Ígló&Indí. nánari upplýsingar á imark.is 05/09/2013 kl. 11 00 – 13 00 Hilton Reykjavík Náðu 5 stjörnu formi Breyttu línunum og tónaðu líkamann í sitt fegursta form. Ný námskeið að byrja.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.