Fréttatíminn - 23.08.2013, Síða 38
38 ferðir Helgin 23.-25. ágúst 2013
Ferðaþjónusta Gaman Ferðir bjóða alls konar skemmtiFerðir
k y n n i n g
Fótbolti í London, tónleikar
eða julefrokost í Köben
Gaman Ferðir sérhæfir sig í fótboltaferðum, tónleikaferðum og alls konar skemmtiferðum fyrir einstaklinga og hópa.
Fram að jólum býður fyrirtækið Julefrokost-ferðir til Kaupmannahafnar.
Ánægðir viðskiptavinir:
Harri og Ormar Þór
fóru á leik með Arsenal á Emirates Stadium í
London. „Ferðin var í einu orði sagt frábær,
hótelið mjög gott og vel staðsett. Allt til
fyrirmyndar og ekki spillti veðrið fyrir,“ sagði
Harri.
Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir
Við vorum alsæl með ferðina, allt stóðst
eins og stafur á bók og svo fengum við
auðvitað frábæran leik með 3 mörkum á
síðustu mínútunum. Ég, sem er nú ekki mikil
fótboltaáhugamanneskja, var alveg upprifin
yfir stemmningunni og fjörinu, fórum líka
daginn eftir leik og skoðuðum völlinn og
það var alveg frábært. Við förum örugglega
aftur!!!
Guðlaug Sigríksdóttir
Ferðin gekk mjög vel. Allt stóðst eins og
stafur á bók. Við höfum áður farið í nokkrar
ferðir á Arsenalvöllinn, þær ferðir hafa
gengið upp og ofan varðandi skipulag. Við
höfðum því ekki miklar væntingar varðandi
þessa ferð en hún stendur upp úr hvað
varðar skipulag. Eina sem við getum kvartað
yfir er að leikurinn tapaðist :-)
Óskar Freyr Pétursson
Ferðin var stórkostleg upplifun fyrir okkur
feðga og þjónustan var frábær hjá ykkur í
alla staði.
Konráð Guðjónsson
Mig langaði bara til að þakka fyrir okkur. Allir
voru gríðarlega sáttir með túrinn, leikinn og
úrslitin. Það var líka frábært að prófa að fá
svona Executive miða og fá aðgang að Club
500. Kærar þakkir.
Jóhannes Þór Ævarsson
Það stóðst allt eins og stafur á blaði. Hótelið
var mjög fínt og frábær staðsetning, ég gæti
vel hugsað mér að nota þetta hótel aftur
síðar. Svo á leiknum vorum við óvissir um
hvernig sætin mundu verða. En maður minn
kær – við vorum í VIP boxi á frábærum stað á
vellinum og fengum magnaða upplifun! Þetta
var eðal ferð í alla staði og við komum mjög
sáttir heim.
Hilmar Sverrisson
Ég vil þakka fyrir frábæra Wembley-pakka-
ferð á undanúrslitaleikinn, úrslitin máttu
verða öðruvísi en frábær pakki hjá þér, takk
fyrir mig.
Krístin Ásgeirsdóttir
Ferðin til London var frábær í alla staði og
allt stóðst 100 prósent, mjög góð staðsetning
á hótelinu og flugið var mjög fínt. Tónleikarn-
ir voru meiriháttar, við höfum farið á nokkra
og þetta var toppurinn :) Takk kærlega fyrir
okkur.
Hafdís Ingvarsdóttir
Ferðin var frábær í alla staði. Ferðin út
með WOW air var stórkostlega skemmtileg.
Tónleikarnir æðislegir og gyðjan stóðst
væntingar og rúmlega það. Kærar þakkir
fyrir okkur.
G aman Ferðir er nýlegt fyrirtæki sem byggir á langri reynslu af því að skipuleggja alls konar skemmtiferð-
ir fyrir hópa og einstaklinga. Þór Bæring
Ólafsson og Bragi Hinrik Magnússon hafa
verið í ferðabransanum frá 2003 þegar þeir
stofnuðu saman ferðaskrifstofuna Mark-
menn sem lét mikið að sér kveða í fótbolta-
ferðum á sínum tíma. Árið 2007, tveimur
árum eftir að Iceland Express keypti fyrir-
tækið og breytti nafninu í Expressferðir,
hættu stofnendurnir hjá fyrirtækinu.
„Þá ákváðum við báðir að fara báðir út í
heim að læra og leika okkur og en komum
síðan aftur og sáum tækifæri á markaðnum
og fórum í samstarf við WOW Air á síðasta
ári. Við erum duglegir að útbúa pakkaferð-
ir til þeirra borga sem WOW air er að fljúga
til,“ segir Þór Bæring.
Julefrokost virkjar jólaskapið
Sérgreinar fyrirtækisins eru fótboltaferðir
og tónleikaferðir og fjölmargar slíkar
ferðir eru nú í boði hjá fyrirtækinu. Einnig
er Gaman Ferðir að selja tveggja daga
Julefrokost-ferðir þar sem fólk upplifir jóla-
stemmninguna í Kaupmannahöfn. Fyrsta
ferðin verður farin föstudaginn 15. nóvem-
ber og síðan verða ferðir alla föstudaga
næstu fimm helgar fram til 13. desember.
„Þessar ferðir eru frábær skemmtun og
tilvaldar til að virkja jólaskapið,“ segir Þór
Bæring.
„Það er einstök stemmning sem fylgir
því að vera í Kaupmannahöfn fyrir jólin.
Danir eru frægir fyrir julefrokost og Ís-
lendingar hafa lengi sótt þangað til að njóta
jólastemningarinnar,“ segir Þór Bæring.
Hægt er að velja um tvo veitingastaði.
Annar þeirra er Gröften í Tívolíinu sem
fullkomnar stemminguna enda yndislegt
að rölta um eftir matinn í Tívolígarðinum
innan um ljósin og jólastemminguna sem
þar skapast. Hinn staðurinn er Wallmans, í
gömlu sirkusbyggingunni frægu.
„Þar erum við að tala um matarveislu
ásamt frábærri sýningu þar sem söngur,
gleði og æðislegir fjöllistamenn ráða
ríkjum. Þetta er sannkölluð upplifun,“
segir Þór Bæring. „Við hjá Gaman Ferðum
þekkjum báða þessa staði vel og höfum
skipulagt julefrokost ferðir fyrir hundruð
Íslendinga sem eiga það allir sameiginlegt
að hafa komið ánægðir heim.“
Í góðu samstarfi við liðin í úrvals-
deildinni
„Gaman Ferðir elska fótbolta“, segir Þór
Bæring og hann og Bragi eru algjörir sér-
fræðingar í fótboltaferðum til London.
Þeir félagar hleyptu nýju lífi í samkeppn-
ina á þeim markaði þegar þeir stofnuðu
Markmenn árið 2003 og vilja gera allt sem
í þeirra valdi stendur til þess að leyfa Ís-
lendingum að upplifa það að sjá leik í ensku
úrvalsdeildinni.
„Það að vera á staðnum er einstök upp-
lifun,“ segir Þór Bæring. Viðskiptavinir
fyrirtækisins voru á fimm leikjum í fyrstu
umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem
leikin var um síðustu helgi.
„Gaman Ferðir eru í samstarfi við flest
liðin í ensku úrvalsdeildinni og við kaupum
miðana beint af viðkomandi félagi. Einnig
erum við með ferðir á leiki á Spáni, í Þýska-
landi, á Ítalíu og í Skotlandi og auðvitað
líka á leiki í Meistaradeild Evrópu og Evr-
ópudeildinni.“
Ánægðir gestir á tónleikum Rolling
Stones og Rihönnu
„Svo erum við með ferðir fyrir hópa og
fyrirtæki, til dæmis árshátíðarferðir,
við höfum verið að stækka mikið á
þeim markaði. Sömuleiðis erum við
með með borgarferðir á alla áfanga-
staði WOW Air. Það eru líka alltaf
spennandi tónleikaferðir í boði hjá okk-
ur og þær hafa verið vinsælar, til dæmis
vorum við með fjölmarga viðskipta-
vini á tónleikum hjá Rolling Stones og
Rihönnu í sumar.“
Fjölmargar aðrar ferðir eru í boði hjá
fyrirtækinu og hægt er að sjá nánari
upplýsingar um þær og verðlista á
heimasíðunni gaman.is. Einnig taka
þeir félagar ásamt sínum samstarfs-
mönnum að sér að útbúa sérstakar
pakkaferðir þar sem innihaldið er
sniðið að áhuga og þörfum.
„Það eru margir sem vilja láta útbúa
fyrir sig pakkaferðir og við tökum að
okkur að skipuleggja brúðkaupsferðir,
fermingaferðir og bara nefndu það.“
„Það sem ég fæ út úr þessu og gerir
starfið mjög skemmtilegt er að fólk er
að fara að gera spennandi hluti. Það er
gaman að taka þátt í því og fá svo góðar
kveðjur með myndum frá ánægðum
viðskiptavinum eftir velheppnaða ferð,“
segir Þór Bæring Ólafsson að lokum.
Hópur frá Gaman Ferðum var á tónleikum U2 í London.
Jól í Tívolí í Kaupmannahöfn. Gaman Ferðir skipuleggja sex Julefrokost-ferðir til Kaupmannahafnar í
nóvember og desember.
Njáll og Matthildur voru ánægð með ferðina
á White Hart Lane þar sem þau sáu heimaleik
Tottenham.
Þór Bæring Ólafsson og Bragi Hinrik Magnús-
son, eigendur Gaman Ferða, fóru saman á leik
Barcelona og Real Madrid.