Fréttatíminn - 23.08.2013, Síða 46
Námskeið Helgin 23.-25. ágúst 201346
Námskeið FullorðiNsFimleikar síviNsælir
Aldrei of seint að byrja
Nokkur fimleika-
félaganna bjóða
upp á fullorðins-
fimleika sem
njóta mikilla
vinsælda. Ekki
er nauðsynlegt
að hafa neina
grunnþekkingu í
fimleikum til að
mæta á æfingar
og geta fullorðnir
vel lært flikk og
heljarstökk þó
það taki kannski
aðeins lengri tíma
en hjá þeim sem
yngri eru.
F ullorðnir geta vel lært að fara í skrúfu, flikk og önn-ur fimleikastökk þó þjálf-
unin taki kannski aðeins lengri
tíma en hjá börnunum,“ segir
Erla Ormarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Fimleikafélags Akureyrar
en félagið er eitt þeirra sem
bjóða upp á fimleika fyrir full-
orðna og hafa þeir notið mikilla
vinsælda. „Það er alltaf ákveðinn
kjarni sem mætir á æfingar og
sumir hafa verið með frá upp-
hafi,“ segir Erla. Hjá Fimleika-
félagi Akureyrar er ýmist hægt
að æfa fullorðins fimleika einu
sinni eða tvisvar sinnum í viku
og segir Erla er ekki nauðsynlegt
að hafa neina grunnþekkingu í
fimleikum til að hefja æfingar og
stendur fólki til boða að mæta í
einn prufutíma til að sjá hvernig
því líkar. „Á æfingunum er öflug
upphitun sem reynir bæði á þol
og styrk. Svo er farið grunnæf-
ingar og reynt að koma til móts
við kunnáttu hvers og eins.“
Fimleikafólki í fullorðinshópi
hjá Fimleikafélagi Akureyrar
stendur einnig til boða að keppa
á innanfélagsmótum og myndað-
ist góð stemmning í kringum
mótið í fyrra og var þátttaka full-
orðna fimleikafólksins góð. „Fólk
fyllist keppnisskapi og ætlar
að ná hlutunum. Það hafa ýmis
afrek verið unnin hérna því allt
er hægt ef viljinn er fyrir hendi,“
segir Erla.
Hjá fimleikadeild Fjölnis í
Grafarvogi er boðið upp á fim-
leika og stendur innritun yfir
þessa dagana. Að sögn Kar-
enar Jóhannsdóttur þjálfara
hefur fólk sem aldrei áður hefur
stundað fimleika náð ótrúlegum
árangri og farið í heljarstökk og
gert ýmsar aðrar kúnstir. „Við
leggjum mikið upp úr því að hafa
æfingarnar skemmtilegar og full-
orðið fólk skemmtir sér oft betur
í stórfiskaleik en börn,“ segir
Karen en iðkendahópurinn hjá
Fjölni er á aldrinum átján ára til
fimmtugs. „Æfingarnar eru bæði
fyrir byrjendur og lengra komna
og fær fólk að æfa á sínum hraða.
Oft er það þannig að fimleikar
eru eina líkamsræktin sem
fólk stundar og því reynum við
• Finnur þú fyrir veikleika í grindarbotni, eins og áreynsluþvagleka,
þreytu eða þyngslatilfinningu í grindarbotninum?
• Er grindarbotninn að trufla þig í ræktinni?
• Finnur þú fyrir tíðri þvaglátsþörf og tíðum þvaglátum?
• Ertu með varnarspennu eða verki í grindarbotni og
óþægindi vegna þess?
8 vikna námskeið, einu sinni í viku fyrir konur sem vilja bæta líðan sína og lífsgæði, hefst þriðjudaginn
3. september kl. 16.30 og 17.30 í Táp sjúkraþjálfun, Hlíðasmára 15, Kópavogi.
Takmarkaður fjöldi
Leiðbeinandi:
Þorgerður Sigurðardóttir
sérfræðingur í meðgöngu- og
fæðingarsjúkraþjálfun
Skráning og nánari upplýsingar:
grindarbotn@gmail.com
eða í síma 564-5442
Grindarbotn
Kvennaheilsa
S J Ú N
Fimleikaiðkendur
þurfa ekki á neinum
auka búnaði að halda,
aðeins að mæta í þægi-
legum fötum. Myndir/
NordicPhotos/Getty
Námskeið Hlutaverkasetur bauð upp á Námskeið í Faðmlögum
Meirihlutinn þiggur faðmlag
Ókeypis faðmlög verða að venju í
boði Hlutverkaseturs á Menningar-
nótt en í ár var bryddað upp á þeirri
nýbreytni að bjóða fólki upp á ör-
námskeið í faðmlögum. Elín Ebba
Ásmundsdóttir iðjuþjálfi sem er
með þungavigtarpróf í faðmlögum
leiðbeindi á námskeiðunum í vik-
unni. „Það eru töluvert af fólki búið
að koma. Ebba hefur talað um gildi
faðmlaga, hvað er eðlilegt í faðmlög-
um og hún hefur farið yfir að það
er mismunandi hvernig fólk upplifir
snertingu og finnst jafnvel óþægi-
legt að faðma,“ segir Helga Ólafs-
dóttir hjá Hlutverkasetri.
Hlutverkasetur býður upp á hvatn-
ingu og stuðning fyrir þá sem vilja
halda virkni á markvissan hátt og
er markmiðið að fólk komist út á al-
mennan vinnumarkað, fari í nám eða
auki lífsgæði. Leiðarljós Hlutverka-
seturs er virk samfélagsþátttaka og
árið 2008 ákváðu starfsmenn set-
ursins í fyrsta sinn að bjóða upp á
faðmlög á Menningarnótt til að vekja
athygli á starfsemi Hlutverkaseturs.
Uppátækið heppnaðist svo vel að það
er nú orðinn fastur liður.
Helga segir almennt mikla gleði
fylgja því að bjóða upp á ókeypis
faðmlag. „Það skemmtilegasta er að
meirihlutinn þiggur faðmlag. Fólk
verður svo hissa og þeim finnst þetta
bæði innilegt og gaman. Í gegn um
árin er þetta orðinn ansi mikill fjöldi
sem hefur fengið faðmlag á Menn-
ingarnótt,“ segir hún.
Þeir sem vilja þiggja, eða þá bjóða,
ókeypis faðmlag er bent á að mæta
fyrir framan Janusbúðina á Lauga-
vegi 25 á Menningarnótt. -eh