Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 56
Einn af toppum Toskana
Þau er nær óteljandi hin fallegu
þorp sem raða sér ofan á hæðar-
toppana í Toskana. Það móðgast þó
vonandi fáir þótt því sé hér haldið
fram að Pienza sé með þeim allra
fegurstu. Þaðan er útsýnið yfir
hin glæsilega dal Val d' Orcia líka
kynngimagnað enda er dalurinn,
eins og hann leggur sig, á heims-
minjaskrá Unesco. Þrátt fyrir að
ferðamenn séu nokkuð fjölmennir í
Pienza þá er bæjarbragurinn sjarm-
erandi. Fjölskyldur safnast saman
á aðaltorginu á kvöldin og minja-
gripabúðir eru fáar. Þeir sem eru á
flakki um þennan hluta Ítalíu verða
því ekki sviknir af því að dvelja yfir
nótt í þessum einstaka bæ áður en
brunað er niður hlíðina á ný í átt að
næsta þorpi.
Dans(veitinga)hús í Berlín
Clärchens Ballhaus hefur lengi
verið athvarf þeirra sem vilja taka
sporið í Berlín. Staðurinn nýtur
mikilla vinsælda og þar er glatt á
hjalla langt fram á nótt nær alla
daga vikunnar. Á Clärchens Ball-
haus má líka setjast niður og fá
sér að borða og það er leit að jafn-
skemmtilegum veitingastað. Um
kvöldmatarleytið eru nefnilega
haldin dansnámskeið í aðalsalnum
og þá geta matargestir staðið upp
á milli rétta og fengið leiðsögn í
salsa, cha cha cha eða jafnvel tangó.
Maturinn er ekki aðalatriðið á
þessu dansveitingahúsi í Mitte en
það er óhætt að mæla með heim-
sókn þangað.
Aldarafmæli Clärchens Ballhaus
(Auguststrasse 24) verður fagnað í
næsta mánuði.
Sennilega besti snúðurinn
í Stokkhólmi
Jafnvel þó sænska konungsfjöl-
skyldan eigi ættir sínar að rekja
til Frakklands á franskt sæta-
brauð ekki mikinn séns á kaffi-
húsunum í Svíþjóð. Heimamenn
halda nefnilega tryggð við sína
kardemommu- og kanelsnúða og
því fá frönsku hornin ekki breytt.
Þessar gerdeigsbollur eru ríkulega
kryddaðar og sumir bakarar setja
marsipan inn í til að lyfta þeim á
enn hærra plan. Á litlu útikaffihúsi
við höll Viktoríu krónprinsessu í
Haga garðinum, rétt utan við mið-
borg Stokkhólms, er möndluspæni
bætt við uppskriftina og úr verður
kardemommubolla sem á líklega
engan sinn líka í borginni. Vasa-
slätten kaffihúsið er opið frá maí og
fram til loka september.
Safnið í Toronto
Frank Gehry er ekki óvanur því að
teikna stórbrotin hús utan um lista-
söfn. Í heimaborg hans stendur eitt
af meistarverkum hans og hýsir Art
Gallery of Ontario (AGO). Safnið er
stórt og nokkuð margar sýningar í
gangi á sama tíma og fjölbreyttar.
Þar finna því allir eitthvað for-
vitnilegt. En safnabyggingin sjálf
stelur líka svolítið senunni og það
er í raun mun skemmtilegra að
ganga um salarkynni AGO en um
Guggenheim í Bilbao sem Gehry
ber líka ábyrgð á og er sennilega
hans þekktasta verk. Meðal þess
sem hæst ber á safninu í haust er
sýning á búningum, handritum og
ljósmyndum í eigu David Bowie og
verk Kínverjans Ai Weiwei verða
líka til sýnis.
Kristján Sigurjónsson heldur úti
ferðavefnum Túristi.is
56 ferðir Helgin 23.-25. ágúst 2013
Fáðu meira
út úr Fríinu
Viltu afslátt af hótelgistingu,
ókeypis morgunmat eða Frítt
Freyðivín upp á herbergi?
bókaðu sértilboð á gistingu,
ódýr hótel og bílaleigubíla
út um allan heim á túristi.is
T Ú R I S T I
Fararstjóri: Hlín Gunnarsdóttir
Gardavatn & Feneyjar
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sp
ör
e
hf
.
Gardavatn hefur verið einn vinsælasti áfangastaður
Íslendinga til margra ára. Farið verður í áhugaverðar
skoðunarferðir, m.a í siglingu á Gardavatni, til Feneyja
drottningar Adríahafsins og Verónu elstu borgar Norður Ítalíu.
Verð: 209.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
5. - 15. októberHaust 10
Sykurlaus og náttúrulegur staðgengill flórsykurs!
Hefur ekki áhrif á blóðsykur og insúlín líkamans
borgarferðir berlín, stokkhólmur, toskana og toronto
Fjórir ólíkir staðir sem
eru ferðalagsins virði
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Ball í Berlín, bakkelsi í Stokkhólmi, fallegur bær í Toskana og Bowie í Toronto. Það kennir ýmissa
grasa í ferðapunktum Kristjáns Sigurjónssonar.
Á Clärchens Ballhaus geta matar-
gestir tekið snúning á milli rétta.
Pienza er einn af vinsælli áfanga-
stöðum ferðamanna í Pienza en þrátt
fyrir það fer furðu lítið fyrir minja-
gripabúðum í plássinu.
Kardemommubolla að hætti
þeirra í Haga.