Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 70
Brogan Davison og Ármann Einarsson setja upp verkið Dansaðu fyrir mig ásamt Pétri Ármannssyni á leiklistarhátíðinni
Lókal í næstu viku.
LeikList LeikListarhátíðin LókaL haLdin í sjötta sinn í næstu viku
Fær útrás fyrir gráa
fiðringinn með dansi
Ármann Einarsson er 48 ára skólastjóri á Dalvík með bumbu. Hann lét gamlan draum rætast
og fékk son sinn og tengdadóttur til að hjálpa sér að setja upp dansverk sem hann leikur
aðalhlutverkið í. Ármann kveðst ekki hafa efni á jeppa eða nenna að standa í framhjáhaldi en
þarna fái hann sína útrás.
É g hef aldrei dansað neitt. Nema kannski þegar ég var sextán ára á böllum. Mér fannst þetta bara fyndið,“ segir Ármann Einarsson,
skólastjóri tónlistarskólans á Dalvík.
Ármann er einn þeirra sem troða upp á leiklist-
arhátíðinni Lókal sem hefst í næstu viku. Lókal
stendur yfir frá miðvikudegi til sunnudags en þetta
er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin. Boðið er upp
á átta leiksýningar á hátíðinni að þessu sinni, þar af
fjögur ný íslensk verk. Erlendir gestir hátíðarinnar
koma frá Finnlandi, Belgíu, Kanada og Noregi.
Ármann er ekki beint steríótýpa af dansara eða
sviðslistamanni og því liggur beint við að spyrja
hann um tildrög verksins Dansaðu fyrir mig sem
hann leikur aðalhlutverkið í.
„Ég var búinn að hugsa um það í mörg ár hvað það
væri fyndið ef kall eins og ég, feitur vitleysingur,
myndi fara að dansa samtímadans. Og athugaðu að
þetta er samtímadans, contemporary. Hann er nýrri
en nútímadans, modern,“ segir Ármann og skellir
upp úr. „Mér finnst alltaf jafn fyndið að tala um
þetta.“
Ármann segir að síðasta sumar hafi sonur hans
og kærasta hans komið norður og búið hjá sér og þá
hafi hann ákveðið að viðra þessar hugmyndir sínar.
Sonur hans, Pétur Ármannsson, er nýútskrifaður
úr leiklistarnámi í Listaháskólanum og tengdadótt-
irin, Brogan Davison, er lærður dansari frá skóla í
London. „Við sátum við eldhúsborðið og ég sagði
þeim að ég hafi lengi látið mig dreyma um að dansa,
að búa til vídeóverk eða gera eitthvað lítið og sætt
fyrir sjálfan mig. Ég tók eftir því að þau hlógu alla
vega ekki að mér. Ég sendi tengdadótturinni svo
bréf nokkru síðar með formlegri beiðni um að hún
hjálpaði mér að setja upp eitthvað danstengt. Þá taka
þau turtildúfurnar sig til og skipuleggja þetta miklu
meira og gera stærra en mig hafði órað fyrir. Hún er
sem sagt danshöfundurinn og hann leikstýrir.“
Dansaðu fyrir mig var sýnt í þrígang fyrir norðan
seinasta vetur og vakti uppátækið talsverða athygli.
„Þegar við sýndum á Akureyri lentum við í því að
þegar við mættum voru biðraðir út að dyrum og allt
orðið uppselt. Og það í Hofi sjálfu. Það komust færri
að en vildu,“ segir Ármann.
Þetta uppátæki hans, að láta gamlan draum
rætast, virðist hreyfa við fólki. „Ég hef fengið tölvu-
pósta frá fólki sem hefur komið á sýninguna þar sem
það segir mér að það vilji láta drauma sína rætast.
Auðvitað eiga allir sér drauma. Ég er sjálfur að
verða fimmtugur og segi oft að ég sé kominn með
gráa fiðringinn en ég hef ekki efni á að kaupa mér
jeppa, ég er ágætlega giftur og nenni ekki að standa
í framhjáhaldi. En ég þarf að fá einhverja útrás og
ég fæ hana þarna. Þó þetta sé sagt í gríni þá er samt
einhver alvara að baki. Maður þarf að fá útrás.“
Það eru ekki bara Reykvíkingar og nærsveita-
menn sem fá tækifæri til að sjá verk Ármanns á
næstunni. Honum hefur verið boðið að sýna í Bris-
bane í Ástralíu og á allt eins von á því að fleiri slík
boð gætu borist. „Svo þurfum við auðvitað að sýna í
Brighton, tengdadóttir mín er þaðan.“
Á sínum yngri árum þótti Ármann liðtækur
íþróttamaður. Árið 1979 setti hann unglingamet í
þrístökki sem stendur enn. „Já, ég var svona íþrótta-
álfur þá. Nú er ég 1,72 og yfir hundrað kíló svo það
er svolítill munur þar á. En ég er ennþá jafn léttur
andlega.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Og athugaðu að
þetta er samtíma-
dans, contemporary.
Hann er nýrri en
nútímadans, modern.
MÁ BJÓÐA ÞÉR
SÆTI Á BESTA STAÐ?
Fjórar sýningar
á 13.900 kr.
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fös 30/8 kl. 19:30 Sun 1/9 kl. 19:30 Lau 7/9 kl. 19:30
Lau 31/8 kl. 19:30 Fös 6/9 kl. 19:30 Sun 8/9 kl. 19:30
"Fullkomin útfærsla á skáldsögunni" SÁS Fréttablaðið
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 25/8 kl. 14:00 Aukas. Sun 1/9 kl. 14:00 Aukas. Sun 8/9 kl. 14:00 Aukas.
Örfáar aukasýningar í haust - komnar í sölu
Maður að mínu skapi (Stóra sviðið)
Lau 14/9 kl. 19:30 Frums. Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 8.sýn
Fim 19/9 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/9 kl. 19:30 6.sýn
Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 7.sýn
Nýtt íslenskt leikrit eftir Braga Ólafsson!
Hættuför í Huliðsdal (Kúlan)
Sun 8/9 kl. 16:00 Frums. Lau 21/9 kl. 13:00 6.sýn Lau 28/9 kl. 16:00 11.sýn
Lau 14/9 kl. 13:00 2.sýn Lau 21/9 kl. 16:00 7.sýn Sun 29/9 kl. 13:00 12.sýn
Lau 14/9 kl. 16:00 3.sýn Sun 22/9 kl. 13:00 8.sýn Sun 29/9 kl. 16:00 13.sýn
Sun 15/9 kl. 13:00 4.sýn Sun 22/9 kl. 16:00 9.sýn
Sun 15/9 kl. 16:00 5.sýn Lau 28/9 kl. 13:00 10.sýn
Hugrakkir krakkar athugið - aðeins þessar sýningar!
Harmsaga (Kassinn)
Fös 20/9 kl. 19:30 Frums. Lau 21/9 kl. 19:30 2.sýn
Nýtt leikrit eftir Mikael Torfason
Gleðilegt nýtt leikár!
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 6/9 kl. 19:00 1.k Fös 13/9 kl. 19:00 5.k Fös 20/9 kl. 19:00 9.k
Lau 7/9 kl. 19:00 2.k Lau 14/9 kl. 19:00 6.k Lau 21/9 kl. 19:00 10.k
Sun 8/9 kl. 15:00 3.k Sun 15/9 kl. 15:00 7.k
Fim 12/9 kl. 19:00 4.k Fim 19/9 kl. 19:00 8.k
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Rautt (Litla sviðið)
Fim 5/9 kl. 20:00 1.k Fim 12/9 kl. 20:00 3.k Fös 20/9 kl. 20:00 5.k
Sun 8/9 kl. 20:00 2.k Sun 15/9 kl. 20:00 4.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Fös 4/10 kl. 20:00 frums Sun 6/10 kl. 20:00 3.k Fös 11/10 kl. 20:00 5.k
Lau 5/10 kl. 20:00 2.k Fim 10/10 kl. 20:00 4.k Lau 12/10 kl. 20:00 6.k
Benni Erlings, Bragi Valdimar og Megas seiða epískan tón - sjónleik
Menning FjöLbreytt dagskrá í hoFi á akureyri í vetur
Erró og Laddi fara norður í land
Vetrardagskrá menningarhúss-
ins Hofs á Akureyri var kynnt í
vikunni. Þetta er fjórða starfs-
ár Hofs og áhugasamir hafa úr
ýmsu að velja þennan veturinn.
Auk fastra liða fá Norðlend-
ingar tækifæri til að sjá leiksýn-
ingar frá bæði Þjóðleikhúsinu
og Borgarleikhúsinu. Englar al-
heimsins, leikrit ársins á Grímu-
verðlaunahátíðinni, verður sett
upp og tvær nýjar sömuleiðis;
Óskasteinar eftir Ragnar Braga-
son og Jeppi á fjalli í leikstjórn
Benedikts Erlingssonar. Auk
þessa kemur Laddi norður með
sýninguna Laddi lengir lífið og
Mið-Ísland treður upp með uppi-
stand.
Í október kemur sýning á verk-
um Errós á vegum Listasafns
Reykjavíkur í Hof. „Verkin sem
eru litrík og lifandi munu njóta
sín einstaklega vel á gráu sjón-
steypuveggjunum í Hamragili og
það er mikill heiður fyrir okkur
að fá að sýna verk eftir svona frá-
bæran listamann í Hofi,“ segir
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri Hofs.
Sýning á verkum Erró verður sett upp í Hofi á
Akureyri í október. Mynd/Nordicphotos/Getty
70 menning Helgin 23.-25. ágúst 2013