Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 78
SamfélagSmál Eyþór Darri hEfði orðið tvítugur fyrr í ágúSt
Vildi að Eyþór
Darri gæti séð þetta
Verk eftir Eyþór Darra Róbertsson heitinn er hluti af Götusýningunni 2013 sem Arion banki heldur í
tilefni Menningarnætur. Móðir hans segir það ylja sér um hjartarætur að sjá verkið hans á Lækjar-
torgi. Eyþór Darri hefði orðið tvítugur þann 15. ágúst og hélt móðir hans kaffiboð af því tilefni.
é g er stolt fyrir hans hönd. Ég vildi bara að hann gæti verið hér líka til að sjá þetta,“ segir Lilja Huld Steinþórsdóttir, móðir Eyþórs
Darra Róbertssonar sem lést í bílslysi þann 14.
ágúst 2011. Verkið er hluti af Götusýning-
unni 2013 sem Arion banki heldur í
tilefni Minningarnætur og stendur
það við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Lilja fór þangað seinni hluta
miðvikudags til að athuga hvort
verkið væri komið upp og vildi þá
svo til að hún mætti á sama tíma og
mennirnir sem komu því fyrir. „Þeir
voru akkúrat að fara að setja það upp
þegar ég kom,“ segir hún.
Eyþór Darri var farþegi í bíl vinar
síns sem ók Mýrargötu á ofsahraða
þegar slysið varð og var sá dæmdur í
sex mánaða skilorðsbundið fangelsi
og sviptur ökuréttindum í þrjú ár. Lilja
segist hafa spurt mennina sem settu
upp verkið hvort staðsetningin hefði
verið valin sérstaklega en drengurinn
var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur.
„Við erum auðvitað búin að vera mikið í
þessu húsi. En maðurinn sagði þetta al-
gjöra tilviljun og spurði hvort mér fyndist
þetta óþægilegt. En mér finnst þetta flott
staðsetning,“ segir hún.
Eyþór Darri lést daginn fyrir 18 ára af-
mælið sitt og kom fjöldi fólks saman við slysstaðinn
á afmælisdaginn. Hann hefði orðið tvítugur þann 15.
ágúst síðastliðinn og hélt móðir hans kaffiboð af því
tilefni. „Mér þótti afskaplega vænt um hvað margir
gáfu sér tíma til að koma,“ segir hún.
Faðir Eyþórs Darra, Róbert Ólafsson, sendi
verkið inn þegar Arion banki óskaði eftir myndum
en það var hluti af lokaverkefni Eyþórs Darra í 10.
bekk Langholtsskóla. „Það blundaði alltaf
í honum að hanna og eftir að hann lauk
skólanum stenslaði hann þetta á boli
sem hann seldi,“ segir Lilja. Það eru
því þó nokkrir sem eiga bol eftir
Eyþór Darra með einmitt þessu
verki og Lilja á sjálf þannig bol.
„Mér þykir vænt um að sjá
myndina hans þarna. Það
yljar manni um hjartarætur.
Við viljum minnast á hann
sem oftast þannig að hann
gleymist ekki. Þetta verð-
ur til þess að fólk muni
hvað gerðist,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Lilja Huld Steinþórsdóttir við verk Eyþórs Darra sem stendur við Héraðsdóm Reykjavíkur. Ljósmynd/Hari
Eyþór Darri Róberts-
son sumarið 2011
Valtýr forritaði gagnagrunn og vefinn skolaskra.is því honum
fannst allir vera að spyrja hvern annan sömu spurningarinnar:
„Í hvaða framhaldsskóla ertu að fara?“ Ljósmynd/Hari
Megas og vínyll á Kexi
Íslenskar hljómplötur verða til sölu á
plötumarkaði á KEX Hostel á Menningar-
nótt milli klukkan 12 og 18. Alls kyns plötur
og íslensk tónlistarmenning verður þar í
forgrunni. Auk markaðarins verður hægt
að skoða ljósmyndasýninguna Portrett
af íslenskum tónlistarmönnum á Kexinu.
Þar sýna þeir Magnús Andersen og Daníel
Starrason ljósmyndir sínar af þjóðþekktum
tónlistarmönnum. Dagskránni lýkur svo
með tónleikunum Megakex í bakgarði
Kexins en þeir hefjast klukkan 18. Þar koma
fram hljómsveitarnar Borko, Retro Stefson
og sjálfur Megas með stórsveitinni UXI.
ungmEnni gagnagrunnur yfir framhalDSSkólanEma
Forritaði gagnabanka til að svara algengustu spurningunni
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Valtýr Kjartansson verðandi MR-
ingur var orðinn þreyttur á að
heyra félaga sína spyrja sömu
spurningarinnar og forritaði því
gagnagrunn og setti upp vefsíðu
sem leysti vandamálið. Spurningin
var: „Í hvaða framhaldsskóla ertu
að fara?“ og vefurinn með svörin
er skolaskra.is.
„Það eru alltaf allir að velta því
fyrir sér í hvaða framhaldsskóla
hinir og þessir séu að fara og því
ákvað ég að búa til vef sem veitir
aðgang að þessum upplýsingum,“
segir Valtýr sem er áhugaforritari
og hannaði vefinn frá grunni með-
fram garðyrkjustörfum sínum í
sumar. Hann útskrifaðist úr Haga-
skóla í vor og er á leið í MR í haust.
Vefurinn er nýopnaður og nú
þegar hafa um 500 nemendur sent
inn upplýsingar um skólavist sína.
Tugþúsundir uppflettinga sýna,
að sögn Valtýs, þörfina á þessum
gagnagrunni og hvetur hann alla
framhaldsskólanemendur til að
skrá sig á vefinn.
Enn sem komið er eru einungis
upplýsingar um nafn og skóla við-
komandi og Facebook-tenging, en
hugsanlega verður þeim sem skrá
sig gert kleift að setja upp eigin
prófíl á vefnum.
Aðgangur að síðunni er ókeypis
og er Valtýr að leita að styrktarað-
ila til að fjármagna rekstur hennar.
Spurður hvort hann ætli að
leggja fyrir sig forritun í framtíð-
inni segir Valtýr: „Ég hef ekki hug-
mynd um hvað ég ætla að verða,
ég hef áhuga á öllu milli himins og
jarðar, nema kannski boccia og út-
saumi, og veit ekkert hvað verður
fyrir valinu þegar ég er búinn með
menntaskólann.“
18 þúsund á 2 Guns
Íslenskir kvikmyndaaðdáendur flykktust á nýjustu
mynd Baltasars Kormáks, 2 Guns, fyrstu dagana eftir
að hún var frumsýnd. Um 6.500 manns sáu myndina
um frumsýningarhelgina og í vikubyrjun höfðu 12
þúsund manns séð hana. Samkvæmt nýjustu tölum
er hún komin í 18 þúsund manns. Því er spáð að
haldi þessar vinsældir áfram verði 2 Guns vinsælasta
mynd ársins áður en yfir lýkur.
Riff að taka á sig mynd
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík,
Riff, verður haldin í tíunda sinn í lok septem-
ber. Eftir að leyst var úr vandræðagangi
skipuleggjenda með fjármögnun, styrki og
ýmsa óánægju er skipulagning nú í fullum
gangi. Tilkynnt hefur verið um fyrstu tíu
myndirnar sem sýndar verða á hátíðinni
og miðasala er hafin á Riff.is. Meðal þeirra
mynda sem sýndar verða er Mistaken for
Strangers sem er heimildarmynd um hljóm-
sveitina The National sem bróðir söngvara
hennar gerði. Einnig vekur athygli heimildar-
myndin Greedy Lying Bastards sem fjallar
um loftslagsbreytingar og hóp og samtök
sem breiða út efasemdir um loftslagsvísindi
og staðhæfa að gróðurhúsalofttegundir
komi ekki hegðun mannsins við. Nánari upp-
lýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar.
78 dægurmál Helgin 23.-25. ágúst 2013