Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.11.2012, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 23.11.2012, Blaðsíða 4
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Srærðir 90 cm 150 cm 200 cm Skoðið úrvalið á www.grillbudin.is GLÆSILEG JÓLALJÓS Mikið úrval jólaljósa frá Svíþjóð Opið laugardag til kl. 16 Íslenskur bjór verðlaunaður í Bandaríkjunum veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Væg hláka og VÍðast rigning eða skúrir. na-hVassViðri nV-til. höfuðBorgarsVæðið: Hægur vindur, þungbúið og rigning með köflum. ekki sVo hVasst, en él, einkum á fjallVeg- um Vestan- og norðantil. hægt kólnandi. höfuðBorgarsVæðið: Skýjað og úromu- lítið. fryStir um kvöldið og nóttina. n-átt, frekar meinlÍtil, en snjókoma um tÍma norðan- og norðaustanlands. höfuðBorgarsVæðið: norðan garri, léttSkýjað og vægt froSt. loks skaplegt veður um helgi fjórðu og síðustu helgina í nóvember er loks- ins útlit fyrir skaplegt vetrarveður! reyndar vantar ekki lægðirnar, en þær verða meira og minna á hringsóli yfir landinu og vindur ekki svo hvass næst þeim. þýðan sem kominn er helst í dag föstudag, en síðan fer hægt kólnandi og á sunnudag er spáð skamm- vinnri n-átt með snjókomu um tíma norðanlands um leið og aftur frystir um mest allt landið. 4 4 2 3 3 1 0 2 1 1 -3 -1 -2 -1 -1 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is OYSTER PERPETUAL ROLEX DEEPSEA Michelsen_255x50_K_0612.indd 1 14.06.12 16:57 Á íslandi er lögum um líffæragjöf þannig háttað að gengið er út frá synjun um líffæragjafar eftir dauðs-  Heilbrigðismál við gætum bjargað allt að Fimm mannslíFum Skrítið að bíða þess að einhver láti lífið Á íslandi neita aðstandendur líffæragjöf í 40% tilfella en í könnunum segjast 80-90% íslendinga vilja gefa líffæri. Árlega deyr fólk á biðlista eftir líffærum og sumir hafa beðið eftir nýju líffæri í áraraðir. Þ að er svo skrítið að bíða þess að einhver láti lífið,“ segir Matthildur Hrönn Matthíasdóttir. Hún er líf- færaþegi sem hefur í tvígang fengið í- grædda lifur. Fyrst árið 2007 og síðan aftur 2008 eftir að líkami hennar hafnaði gjöfinni. „Ég fæddist með erfðasjúkdóm en veiktist mjög skyndi- lega 2007 og var því sett í mikinn for- gang. Líkaminn hafnaði síðan lifrinni og það var mjög skelfileg lífsreynsla. Ég var sett á biðlista á nýjan leik og þó að ég hafi í samhengi við marga aðra ekki beðið lengi eða aðeins um nokkrar vikur þá er það mjög erfitt.“ Hundruð Íslendinga eru á biðlista eftir líffæri og mörg dæmi eru um að fólk láti lífið við biðina. „Þarf ekki að vera svona,“ segir Guðmundur Löve fram- kvæmdastjóri SÍBS. Á Íslandi eru lögum um líffæra- gjöf þannig háttað að gengið er út frá synjun um líffæragjafir eftir dauðs- fall. Þessu er öfugt farið í flestum nágrannalöndum okkar en þar er gengið út frá samþykki. Guðmundur segir Íslendinga vera langt á eftir ná- grannaþjóðunum í líffæragjöfum eftir dauðsfall. Félagið SÍBS kallar eftir breytingum á íslenskum lögum. „Það er okkar krafa að þessi breyting nái fram að ganga og við horfum á að slíkt gæti bjargað allt að 3 til 5 mannslífum á ári,“ segir Guðmundur og bendir á að aðstandendur hafi alltaf síðasta orðið þegar kemur að líffæragjöf, jafnvel þó ein- staklingur sé opinber líffæragjafi geta að- standendur synjað gjöfinni eftir dauðsfall. „Synjanir aðstandenda eru um 40%. Það er allt of hátt ef við gefum okkar að samkvæmt erlendum könnunum sé vilji hjá 90% að gefa líffæri eftir sinn dag.“ SÍBS hóf á dögunum vakningarátak tengt líffæragjöfum. „Fyrst og fremst viljum við þrýsta á stjórnvöld að breyta lögum í ætlað samþykki en einnig viljum við hvetja fólk til þess að kynna sér vilja ættingja sinna í þessum efnum og virða hann við dauðs- fall.“ Guðmundur segir Íslendinga eiga í skuld við alþjóðlega líffærabanka. „Við erum aðilar að alþjóðlegum líffærabönkum og stöndum ekki við okkar skuldbind- ingar þar, þvert á móti erum við í miklum mínus. Það er hægt að rekja beint til ætluðu synjunarinnar. En ekkert annað norrænt land utan Danmerkur stendur jafn illa. En í Danmörku er ekki heldur gengið út frá ætluðu samþykki.“ Hann segir einstaklinga á íslenskum biðlistum skipta hundruðum og hver dagur skipti gríðarlegu máli fyrir það fólk. Matthildur Hrönn er sama sinnis og hvetur fólk til þess að kynna sér mikilvægi líffæragjafa. „Ég hafði sjálf aldrei hugsað út í þetta fyrr en ég þurfti sjálf á því að halda,“ segir hún og bætir við. „Það var tilfinning ólík öðrum að þiggja líffæri úr öðrum, en mér finnst ég ekkert öðruvísi í dag. Ég er svo ótrúlega þakklát og horfi óneitanlega öðruvísi á lífið. Mér finnst að allir ættu að gerast líffæragjafar,“ segir Matthildur. maría lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is guðmundur löve, framkvæmdastjóri SíbS matthildur Hrönn matthíasdóttir. íslenski bjórinn lava, sem bruggaður er í ölvisholti, er einn af 25 áhugaverðustu bjórunum sem komu á markað í bandaríkjunum í ár. þetta er niðurstaða tímaritsins life on tap, draft. í tímaritinu er stað- hæft að rúmlega sjö þúsund bjórtegundir komi á almennan markað í bandaríkjunum þetta árið. blaðið lét framkvæma blinda smökkun á bjórunum og komst lava í hóp 25 áhugaverð- ustu bjórum ársins. fyrr á þessu ári hlaut lava gullverðlaun í sínum flokki í einni stærstu opnu bjórkeppni bandaríkjanna. þá voru smakk- aðir yfir 1.600 bjórar alls staðar að úr heiminum. lava bjórinn frá ölvisholti fellur vel að smekk bandaríkjamanna. amma full með barn í bílnum í vikunni var amma nokkur stöðvuð af lögreglu en hún reyndist ölvuð við stýrið en með henni í bílnum var „ólögráða barnabarn hennar“ eins og það er orðað á vef lögreglunnar, logreglan. is. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gerist það mánaðarlega að foreldrar séu teknir fullir undir stýri með barn í bílnum. Hinsvegar er fáheyrt að afar og ömmur keyri full með barnabörnin. „en svo bregðast krosstré sem önnur tré,“ segir lögreglan. gengið gegn kyn- bundnu ofbeldi Samtökin un Women á íslandi standa fyrir ljósagöngu á sunnudaginn, klukkan 19. Gangan hefst í alþingisgarðinum en þar hefst um leið undirskriftarsöfnun þar sem þátttakendur í göngunni geta skrifað undir áskorun þar sem þess er krafist að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að útrýma ofbeldi gegn konum, hér heima og erlendis. 4 fréttir Helgin 23.-25. nóvember 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.