Fréttatíminn - 23.11.2012, Blaðsíða 84
Karlakór Grafarvogs
Þannig að ef mér reiknast rétt til má segja að
ég hafi skrifað tvö og hálft orð á mánuði.
Kórsöngur Íris Erlingsdóttir stjórnar
Tveggja kóra tónleikar á Hvolsvelli
Tónleikar tveggja karlakóra
verða haldnir í Hvoli á Hvols-
velli í kvöld, föstudag, klukkan
20.30 en þar munu syngja
Karlakór Grafarvogs og
Karlakór Rangæinga. Kórarnir
eru báðir undir stjórn Írisar
Erlingsdóttur sem jafnframt er
stofnandi Karlakórs Grafar-
vogs. Íris er fyrsta konan hér á
landi sem stofnar karlakór að
eigin frumkvæði.
Karlakór Grafarvogs er
gestur Karlakórs Rangæinga á
tónleikunum, þar sem fjölbreytt
dagskrá verður flutt og syngja
kórarnir margar þekktar inn-
lendar og erlendar söngperlur.
Kórarnir munu syngja megin-
hluta efnisskrárinnar hvor um
sig, en þeir munu einnig taka
lagið sameiginlega undir stjórn
Írisar.
Meðal laga á dagskránni
verða íslensk lög eftir tónskáld-
in Gunnar Þórðarson, Inga T.
Lárusson, Jón Nordal og Sigfús
Halldórsson. Af erlendum upp-
runa má nefna afrísk, amer-
ísk, ensk, skosk og rússnesk
þjóðlög auk söngleikjalaga og
ýmissa þekktra slagara.
Píanóleikari á tónleikunum
Arnbjörg Arnardóttir. Hún
hlaut nýlega styrk til fram-
haldsnáms erlendis úr minning-
arsjóði Birgis Einarssonar apó-
tekara. Auk Arnbjargar munu
félagar í Karlakór Rangæinga
leika með á gítar í einu laganna
á tónleikunum.
Aðgöngumiðar eru seldir við
innganginn.
BæKur FrændsystKin gEFa út BarnaBóK
Flóðhestur leitar
að rassinum á sér
F rændsystkinin Salbjörg Rita Jónsdóttir og Kristján Hjálmarsson blaðamaður hafa sent frá sér barnabókina Flóðhesturinn sem vildi sjá rassinn á sér. Kristján skrifar söguna en Salbjörg mynd-
skreytir bókina en eins og nafnið kannski bendir til þá fjallar hún um
sjálfhverfan flóðhest sem eyðir dögunum í að dást að sjálfum sér
en leiðist að geta ekki séð afturenda sinn.
„Hugmyndin kviknaði hjá mér þegar konan mín gekk
með son okkar,“ segir Kristján. „Þá vorum við eitthvað að
gantast með hversu stór og mikil hún væri orðin og þetta
flóðhestanafn kom upp í gríni. Við héldum þessum leik
áfram og einhvern tíma teiknaði ég mynd af flóðhesti.
Ég er lélegur teiknari þannig að þetta kom svolítið
út eins og flóðhesturinn væri að horfa aftur fyrir sig
og reyna að kíkja á rassinn á sér. Og þaðan er hug-
myndin komin.“
Kristján segir hugmyndina vera ellefu ára gamla.
„Þannig að ef mér reiknast rétt til má segja að ég
hafi skrifað tvö og hálft orð á mánuði. Þannig að
hvert orð er vandlega valið.“ Hreyfing komst á gerð
bókarinnar þegar Kristján fékk Salbjörgu, frænku
sína, til þess að myndskreyta söguna. „Ég var mjög
ánægður með þessar glæsilegu myndir hennar og
þegar önnur frænka okkar, Ólöf María, kom að þessu,
með verkvit, þá var bókin tilbúin til útgáfu á
tveimur mánuðum. Þannig að það sem hafði
tekið tíu ár kláraðist á tveimur mánuðum
eftir að hún kom í þetta.“
Frændsystkinin stofnuðu lítið
félag, Vörðustígsútgáfuna, utan um
bókina en nafnið vísar til þess
sem Kristján kallar ættaróðal- ið,
heimilis ömmu þeirra og afa í Hafn-
arfirði. „Og ef þetta gengur vel er
aldrei að vita nema það verði eitthvert
framhald á útgáfunni.“
Kristján Hjálmarsson ætlaði að
gera bókina um flóðhestinn sem vildi
sjá rassinn á sér til þess að
gleðja börnin sín. „En þau
eru nú kannski orðin of
gömul fyrir bókina
sem er hugsuð
fyrir yngstu
lesendurna.“
Ljósmynd/Hari
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Gallerí Fold 1992–2012
mánudaginn 26. nóvember, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Jóhannes S. Kjarval
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Þórarinn Þórarinsson
toti@centrum.is
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SVARTIR SUNNUDAGAR:
Kl. 20 sunnudag. Aðeins
þessi eina sýning.
60 menning Helgin 23.-25. nóvember 2012