Fréttatíminn - 23.11.2012, Blaðsíða 34
J
ú, ég hætti í ágúst eftir
sextán ár,“ segir Katrín
Hall dansari sem gegndi
starfi listræns stjórnanda
Íslenska dansflokksins
og var alla tíð óumdeild. Hún tók
tiltölulega lítinn og neóklassískan
dansflokk og gerði að nútímadans-
flokki. Frá því hún tók við 1996 hef-
ur íslenskt danslíf breyst til muna
og sjálf hefur hún lagt mikið á sig
við að auka veg og virðingu dansins
á Íslandi. Hún er einn aðaldómari í
vinsælum sjónvarpsþætti um dans;
Dans, dans, dans, og hún viður-
kennir að henni finnist talsverð við-
brigði að vera hætt sem stjórnandi
Íslenska dansflokksins. Engu að
síður kemur hún sjálfri sér á óvart
og nýtur þess að vera hætt: „Þetta
er hollt og gott og ég er virkilega að
njóta lífsins þessa dagana.“
Katrín ólst upp á Seltjarnarnesi.
Elst þriggja systkina (hún á tvo
yngri bræður sem segja báðir að
hún hafi strax verið mikill leiðtogi).
Pabbi hennar, Frank Hall vélstjóri,
var sjómaður (lengst) framan af, og
mamma hennar, Guðlaug Magnús-
dóttir, vann í banka og rak um tíma
sitt eigið fyrirtæki. Frank nafnið er
þannig til komið að „pabbi er hálfur
Bandaríkjamaður,“ segir Katrín en
amma hennar giftist Kana í stríðinu
og það gekk svo ekki upp: „Saga
ömmu er saga sem mig langar að
segja einhvern tíma. Hún er alveg
ótrúlega dramatísk, eins og saga
margra kvenna.“
Ekki frek: Ákveðin
Í viðkynningu er Katrín róleg og
yfirveguð en það sést samt glitta
í mjög ákveðna konu sem veit ná-
kvæmlega hvað hún vill. Bræður
hennar, Frank Hall (tónlistarstjóri
og leiklistarráðunautur í Borgar-
leikhúsinu) og Bjarni Lárus Hall
(söngvari Jeff Who), staðfesta það.
Þeir muna báðir að á þeirra æsku-
heimili var það Katrín sem stjórnaði
því hvernig jólatréð var skreytt.
„Hún vildi ráða,“ segir Frank og
hlær. „Það var sérstaklega erfitt að
skreyta jólatréð með henni. Ég var
átta árum yngri en hún og vildi oft
setja ljótu hallærislegu kúlurnar á
tréð en það tók hún ekki í mál.“
Bjarni tekur undir orð bróður
síns. Það eru fimmtán ár á milli
þeirra Katrínar en hann hefur heyrt
þvílíkar sögur af ákveðni systur
sinnar („ekki segja frekju,“ segir
hann): „Hún var bara lítil stelpa
þegar hún sat uppi í sófa fyrir jól
með kassa af jólaskrauti og skipaði
mömmu og pabba fyrir um hvert
hver jólakúla átti að fara,“ segir
Bjarni sem man líka eftir að stóra
systir hans hafi verið að þvælast
með hann um allt. Hún var dugleg
að passa yngri bræður sína þrátt
fyrir að vera strax mjög upptekin og
metnaðarfull ung danskona.
Katrín gekk í Mýrarhúsaskóla úti
á Seltjarnarnesi og Valhúsaskóla
áður en hún fór í MR. Með MR
dansaði hún í Íslenska dansflokkn-
Hætt eftir sextán ár hjá
Íslenska dansflokknum
Katrín Hall hætti í ágúst sem listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins en því starfi hafði hún gegnt í sextán ár. Nú er hún sjálfstætt starfandi
listamaður og einn aðaldómari vinsælasta sjónvarpsþáttar landsins; Dans, dans, dans.
um en amma hennar, Katrín Hall, var
reyndar sú sem hvatti hana til að taka
inntökupróf í Listdansskóla Þjóðleik-
hússins á sínum tíma. Eftir útskrift úr
MR fékk hún námssamning við Íslenska
dansflokkinn og loks samning. Fljótlega
var hún svo farin til Köln þar sem hún
dansaði með Tanz-Forum, dansflokkinn
við óperuhúsið í Köln, í níu ár.
Á tvö einkabörn
Áður en Katrín hélt utan sem ungur
dansari hafði hún kynnst manninum
sínum, Guðjóni Pedersen leikstjóra, en
þau léku saman í Gæjum og píum í Þjóð-
leikhúsinu. Þá var Guðjón, eða Gíó eins
og hann er kallaður, nýútskrifaður leik-
ari. Þau eiga að tuttugu og átta ára sögu
saman og tvö börn: Frank Fannar sem
er tuttugu og tveggja ára og Mattheu
Láru sem er tólf („það eru tíu ár á milli
þeirra þannig að ég á tvö einkabörn,“
segir Katrín). Frank Fannar er atvinnu-
dansari í Þýskalandi en hann flutti til
Barcelona aðeins nítján ára („þú getur
rétt ímyndað þér hvað var erfitt að sjá á
Svo er það bara
bein útsending
með Nigel
Lithgoe í dóm-
arasætinu og
eina sem hægt
er að gera er
að krossleggja
fingur og vona
það besta.
34 viðtal Helgin 23.-25. nóvember 2012