Fréttatíminn - 23.11.2012, Blaðsíða 70
Helgin 23.-25. nóvember 201246 tíska
St. 36-40 Verð 9.995.-
St. 41-46 Verð 9.995.-
St. 28-35 Verð 5.295
Grensásvegur 8 - S ím i : 517 2040
TILBOÐ
TILBOÐ
SKÓ
MARKAÐURINN
S KÓ M A R K A Ð U R
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
Grensásvegi 8
TÍSKA Eygló MArgréT láruSdóTTir fATAhönnuður
Sækir innblástur í
geimverur og náttúruna
Eygló Margrét Lárusdóttir er frækinn fatahönnuður sem hefur hlotið heimsathygli fyrir flíkurnar
sínar sem meðal annar eru seldar í Japan, New York og Kaupmannahöfn. Hún er nýkomin heim fá
Svíþjóð þar sem hún lagði lokahönd á yfirlitsbók fyrir sumalínu næsta árs. Sú lína er innblásin af
íslensku „camoflage“.
f atahönnuðurinn Eygló Mar-grét Lárusdóttir hannar undir eigin nafni Eyglo.
Hönnun hennar hefur hlotið mikla
athygli og er seld víða um heim.
Vetralína Eyglóar er athyglis-
verð vegna frumlegra sniða og
einnig vegna munstursins en
hönnuðurinn segist hafa verið
innblásin af geimverum. „Þetta
eru tvö prent. Annarsvegar yfir-
borðið á Mars og hinsvegar akur.
Ég vildi hafa svolítið drungalega
stemningu yfir því en ég var á því
tímabili að tapa mér í geimveru-
pælingum. Þar byrjaði ég með
að skoða „cropcircles“ eða akur-
hringi og endaði með að prenta
bara akurinn á bómull. Munstrið
frá yfirborði Mars kemur frá Nasa
en ég lét prenta það á þykkt og
djúsí silki. Eins og oftast er svo-
lítil sportleg stemning í fötunum,“
segir hún og bætir við, „svona
sparisport.“ Eygló blandaði einnig
saman ólíkum efnum í flíkurnar.
„Ég prófaði að nota virkilega ljótt
efni, einskonar grisju með silkinu
og það kom assgoti vel út,“ segir
hún og hlær.
„Fyrir vetrarlookbókina mína,
eða yfirlitsbókina, notaði ég líka
táknmál og það eru því dulin skila-
boð í línunni. Gangi ykkur vel að
ráða þau.“
Eygló segir þægilegt vinnuum-
hverfi vera mikilvægast vettvang-
ur sköpunarinnar. „Ég er með
vinnustofu á Klapparstígnum. Það
er „penthouse“, án djóks, en það
skiptir rosalega miklu máli að líða
vel á vinnustaðnum sínum. Ég
sé þar bæði Esjuna og Snæfells-
jökul.“ Í sumarlínuna fyrir næsta
ár var Eygló því nokkuð innblásin
af íslenskri náttúru. „Fyrir næsta
sumar bjó ég til íslenskt „camouf-
lage“ eða felumunstur úr grjótinu
á Þingvöllum. Ég tók klisjuna með
íslensku náttúruna í þetta skiptið
en það hefur alltaf verið dálítið
mikið tabú að nota það.“
Vörur Eyglóar er hægt að nálg-
ast í Kiosk á Laugaveginum en um
helgina verður hún svo einnig á
pop-up markaði í Hörpu. „Þar verð
ég meðal annars með sundbolina
vinsælu,“ segir Eygló.
Notaði
táknmál í
vetrarlín-
unni. Þar
leynast
því skila-
boð.
Eygló var innblásin
af geimverum og
akurhringjum við
hönnun vetrar-
línunnar.
Sportlegar línur einkenna oft fatnað
Eyglóar, „svona sparisport,“ útskýrir hún.
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012