Fréttatíminn - 23.11.2012, Blaðsíða 92
Í takt við tÍmann Sunneva SverriSdóttir
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn er að ég held mjög
eðlilegur háskólastíll. Ég geng oftast í
gallabuxum, Converse-skóm og skyrtu
eða peysu við það. Svo er ég að taka
fram Timberland-skóna og 66 gráður
norður úlpuna fyrst það er kominn vetur.
Ég kaupi oftast föt í Topshop, Monki og
H&M, ég versla eiginlega aldrei á Íslandi.
Svo er ég eiginlega alltaf með perlueyrna-
lokka sem ég fékk frá mömmu minni.
Hugbúnaður
Ég bý í 101 þannig að ég fer rosa mikið á
kaffihús. Ég fer helst á Súfistann í Máli
og menningu, mér finnst æðislegt
að fá mér kaffi og lesa blöðin eða
taka með mér tölvuna. Svo fer
ég mikið í sund í Neslaug-
inni, sérstaklega á sumr-
in. Ég er þekkt fyrir það
að verða aðeins of brún
á sumrin, enda geri
ég fátt annað en að
fara þangað. Ég fer
mikið á djammið enda bý ég niðri í bæ og
er á háskólaaldri. Ég fer helst á b5 og Fak-
torý. Uppáhalds sjónvarpsþættirnir mínir
eru 60 Minutes og Modern Family og svo
var ég að byrja að fylgjast með Homeland,
þeir eru frekar skemmtilegir. Ég fer líka
mjög mikið í bíó, örugglega einu sinni í
viku. Ég fer bæði á nýjustu myndirnar og
í Bíó Paradís en ég er með kort þar. Svo
fylgist ég dálítið með enska boltanum og
held með Manchester United. Það er frá
mömmu og pabba komið, það var búið
að setja mig í búninginn áður en ég vissi
hvað Manchester United væri.
Vélbúnaður
Ég er með Macbook Pro, minnstu gerð-
ina, og iPhone. Ég held að ég gæti ekki
verið án iPhone-sins, maður verður ger-
samlega háður honum þegar maður hefur
prófað hann. Ég nota Instagram sem er
mjög skemmtilegt en uppáhaldsappið
mitt er Sound Hound sem þekkir lög
sem maður heyrir í útvarpinu. Ég nota
Facebook en held ég hafi ekki sett inn
status í meira en hálft ár. Facebook er
fínt til að fylgjast með vinum og spjallið
er sniðugt og þetta er náttúrlega drullu-
sniðugt auglýsingatól ef út í það er farið.
Ég er lítið fyrir tölvuleiki en spila þó Tetr-
is Battle og er ógeðslega góð í honum.
Aukabúnaður
Ég elska að vera á bíl og keyri um á
Volkswagen Bjöllu. Ég fer stundum út
að borða og skemmtilegast er að fara á
Grillmarkaðinn en það er bara við sérstök
tilefni. Ég fer oftar á Vegamót því þar er
fínn matur á viðráðanlegu verði. Þegar ég
fer á bari panta ég mér oftast Sommersby
og er rosa sátt við að hann sé kominn á
krana. Stærsta áhugamál mitt er að fara
á snjóbretti og eftir stúdentsprófið tók
ég mér árshlé og fór til Austurríkis til að
kenna á snjóbretti. Ég hef alltaf ferðast
mikið, hef búið í fjórum löndum og
heimsótt margar heimsálfur. Uppáhalds
staðurinn minn er Jamaíka, bæði kúltúr-
inn og náttúran eru ótrúlega heillandi.
Snilldarstaður.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
„MÖGNUÐ ÖRLAGASAGA“
„Konur mu
nu
tala um ha
na og
gráta yfir h
enni.“
MARGRÉT J
ÓNSDÓTTI
R NJARÐVÍK
Ljósmóðirin á Eyrarbakka stóð uppi í hárinu á
yfirvöldum um aldamótin 1900. Hún upplifði
óendanlega gleði – en skuggi dauðans var aldrei
langt undan. Tvívegis fann hún ástina og tvívegis
glataði hún henni. Heillandi saga um horfna tíma,
saga fátækrar alþýðukonu sem vildi fá að vera
höfundur eigin lífs!
„Hrífandi bók.
Mögnuð örlagasaga sem
ég drakk í mig.“
Sirrý - Rás 2
EYRÚN INGADÓTTIR
Sunneva Sverrisdóttir er dugleg að fara á kaffihús og skemmti-
staði, enda býr hún í miðbæ Reykjavíkur. Ljósmynd/Hari
Fékk fótboltaáhuga í vöggugjöf
Sunneva Sverrisdóttir er tvítugur nemi í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Hún er annar stjórnenda þáttarins Tveir + sex
sem sýndur verður á Popptíví á næstunni. Sunneva elskar snjóbretti og ferðalög og heldur með Manchester United.
Tónlistarútgáfa á Íslandi hefur
breyst talsvert undanfarin miss-
eri og nú er svo komið að margir
listamenn af yngri kynslóðinni
leggja mikið upp úr útgáfu á
vínyl. Á morgun, laugardaginn 24.
nóvember, verður þessum menn-
ingargeira gert hátt undir höfði á
Kex Hosteli með stórum íslensk-
um vínylmarkaði.
Markaðurinn stendur frá
klukkan 13 til 17 og verður hægt
að kynna sér og kaupa vínylplötur
hjá eftirfarandi listamönnum og
hljómsveitum: Snorri Helgason,
Borko, Tilbury, Retro Stefson,
Ojba Rasta, múm, Ásgeir Trausti,
Ólöf Arnalds, Sin Fang, Legend,
The Heavy Experience, Prins-
póló, Hjálmar, Sigurður Guð-
mundsson og Memfismafían, Of
Monsters and Men, For a Minor
Reflection, Moses Hightower og
Kira Kira.
Þá munu nokkrir listamenn
og hljómsveitir sömuleiðis troða
upp. Meðal þeirra sem fram koma
eru Borko, Ojba Rasta, Snorri
Helgason, Tilbury, múm og Ólöf
Arnalds.
tónliSt Spennandi markaður og tónleikar
Krakkarnir í Retro Stefson gáfu út frábæra plötu á dögunum og verður hún til sölu á
vínyl á Kex Hostel á laugardag. Ljósmynd/Hari
Íslenskur vínyll
kynntur á Kexi
68 dægurmál Helgin 23.-25. nóvember 2012