Fréttatíminn - 23.11.2012, Blaðsíða 32
Jólaævintýramatseðill 2012
með piparrótarfrauði og rauðrófumauki
Léttsteiktur hörpudiskur
með sætumkartöflum, mangómauki og
rauðvínssoði
Kastaníuhnetufyllt kalkúnabringa
Val á milli 3 aðalrétta:
kremuð með reyktum humri
Vatnakarsa- og blaðlauks súpa
4 rétta:
með beikon kartöflum,
seljurótarmauki og jarðsveppaolíu
Lambafilet Wellington
með fíkjum, eplum og rauðkáli
Andabringur
er eftirréttur með ís og ítölskum
marengs með Grand-Marnier
sæteggjaköku, flamberaður með
koníaki eða rommi
Bakaður Alaska
Verð 8.990.- kr.
restaurant
Aðalstræti 16 | 101 Reykjavík | Sími 514 6060 | fjalakotturinn@fjalakotturinn.is | www.fjalakotturinn.is
Stælóttur Stallone
„Þessi mynd var tekin í Stokk-
hólmi í tilefni af Rambo III,“
segir
Árni um
myndina
af sér og
eiginkonu
hans,
Guðnýju
Ásberg,
ásamt
Sylvester
Stallone.
„Hann kom þarna til Stokk-
hóms og þeir hjá SF, sem áttu
réttinn í Svíþjóð, kölluðu á okkur
þarna yfir en það var glaumur
og gleði í kringum hann. Það
voru voðalega miklir stjörnu-
stælar í kappanum þarna. Hann
heimtaði að fá að hitta kónginn
og fleira sem var nú ekki látið
eftir honum. Svo ef hann og
föruneyti hans fengi ekki ein-
hvern ákveðinn kvöldrétt ætluðu
þau bara að fara í þotunni til
London í kvöldmat. Það var
mikið um svona lagað.
Við hittum hann þarna í
ágætis tíma og það var gaman
að spjalla við hann. Hann var nú
eiginlega á hátindinum þarna
með Rocky og Rambo.“
Travolta er fínn náungi
„Við hittum John Travolta 1983
þannig að þetta var nú bara
stuttu eftir Grease og Saturday
Night Fever. Hann er ungur
þarna, karlinn. Þetta var tekið í
Los Angeles út af spennumynd-
inni Blow Out sem Brian De
Palma leikstýrði. Travolta var
viðkunnanlegur náungi og
gaman
að
spjalla
aðeins
við hann.
Hann var
ekki með
svona
stæla
eins og
Stallone. Allavega ekki þarna á
þessari stundu. Mér fannst hann
reglulega skemmtilegur og fínn
náungi.“
Jon Voigt er góður félagi
„Hann er nú félagi okkar, hann
Jon Voigt, og kom einu sinni til
Íslands að heimsækja okkur.
Hann kom heim þar sem Guðný
gaf honum pönnukökur í eld-
húsinu. Og hann minnist nú oft
á það þegar við hittum hann úti
í Los Angeles hversu pönnukök-
urnar hafi verið góðar hjá henni.
Hann man alltaf eftir þeim. Við
fórum
með
hann út í
Viðey að
borða.
Hann er
góður
kunningi
sem við
hittum
stundum
úti.
Mjög jarðbundinn, ljúfur og hlýr
náungi. Alveg prýðismaður.“
Góðmennið Kevin Spacey
„Þessi var tekin um borð í
snekkju í Cannes fyrir fjórum
eða fimm árum. Það má nú geta
þess til gamans að það voru
mjög margir í þessari veislu um
borð en
hann
kom til
mín og
eyddi
eigin-
lega
öllum
tím-
anum í
að tala
við mig
og tvo
aðra
sem
vorum þarna frá okkar fyrir-
tæki. Og hlustaði bara eiginlega
ekki á aðra þannig að hann var
reglulega skemmtilegur fýr.
Hann er mjög jarðbundinn og
mjög mikið góðmenni.“
Valdamaður í Hollywood
Hér er Árni á góðri stundu með
Michael Eisner sem lengi vel
réði ríkjum hjá Disney. „Þessi
mynd er tekin í Los Angeles
1992 þegar Disney hóaði saman
öllum dreifingaraðilum sínum
í heiminum. Disney var þarna
á hátindinum en hlutirnir fóru
heldur betur að gerast þar eftir
að Frank Welles kom þangað
yfir frá Warner. Welles er talinn
vera heilinn á bak við velgengni
Disney á
níunda
ára-
tugnum
en hann
lést í
þyrluslysi
árið 1994.
Í kjölfar
hans
komu
Michael
Eisner, Jeffrey Katzenberg og
fleiri frá Paramount. Þeir setja
allt af stað og það var gaman
að vinna með þeim. Eisner
hafði mjög gaman af því að
spyrja um Ísland vegna þess
að kunningi hans hafði verið
sendiherra hérna. Þessi maður
var toppurinn í Hollywood árum
saman áður en hann settist í
helgan stein. Þetta var mjög
skemmtilegt boð hjá þeim.“
Árni hefur verið umboðsmað-
ur Disney á Íslandi í þrjátíu ár og
fékk á dögunum viðurkenningu
frá fyrirtækinu, styttu af Walt
Disney að leiða Mikka mús, en
hann er einn elsti viðskiptavinur
Disney.
Jon Voigt borðaði pönnukökur í eldhúsinu heima
Bíókóngurinn Árni
Samúelsson er
goðsögn í lifenda lífi
í íslenskri bíómenn-
ingu en þegar hann
opnaði Bíóhöllina
1982 gerbreytti
hann íslenskri bíó-
menningu. Hann
lagði áherslu á að
fá nýjar myndir til
landsins sem fyrst
en áður var ekki
óalgengt að myndir
bærust hingað
tveimur til þremur
árum eftir frum-
sýningu í Bandaríkj-
unum.
Ævisaga Árna, Árni
Sam – Á fullu í 40 ár,
er komin út en í henni
segir hann frá lífi sínu
og starfi en kvik-
myndasaga Íslands
fléttast óhjákvæmilega
saman við frásögnina.
„Það var annað hvort
að gera þetta núna eða
sleppa því,“ segir Árni
um bókina.
Fréttatíminn fékk
Árna til þess að kíkja
á nokkrar gamlar
myndir sem teknar
hafa verið af honum og
stórlöxum í Hollywood
við ýmis tækifæri.
Árni Samúelsson
opnaði Bíóhöllina
fyrir 30 árum en rak
áður kvikmyndahús í
Keflavík. Hann segir
ævi- og starfssögu sína
í bókinni Árni Sam – Á
fullu í 40 ár.
32 bækur Helgin 23.-25. nóvember 2012