Fréttatíminn - 23.11.2012, Qupperneq 42
6 Ævintýri í 100 ár
Það var árið 1920 sem fyrsta
heimsmót skáta var haldið í Englandi
að undirlagi stofnanda Skáta-
hreyfingarinnar, Sir Robert Baden-
Powell. Skátahöfðingi Grikklands,
Konstantinos Melos, stakk síðar upp
á því að heimsmót yrðu haldin á 4
ára fresti, líkt og Ólympíuleikar
íþróttamanna, enda tilgangurinn
hinn sami; að leiða saman skáta frá
öllum heimshornum til að vinna
verkefni í sameiningu.
Íslenskir skátar hafa undanfarið
sent stóra hópa á heimsmót, en
síðasta heimsmót var haldið í Svíþjóð
sumarið 2011. Það sóttu tæplega
300 íslenskir skátar og nú þegar hafa
skátarnir hafið skipulagningu fyrir
för íslenskra skáta á næsta heimsmót
sem haldið verður í Japan 2015.
Heimsmót eru ætluð 14-17 ára
skátum en auk þeirra sækja mótið
þúsundir fullorðinna sjálfboðaliða
sem leiðbeina ungmennunum á
meðan á mótinu stendur. Síðustu
áratugi hefur fjöldi þátttakenda á
heimsmótum skáta verið á bilinu
20-40 þúsund og því ljóst að um er
að ræða allra stærstu viðburði sem
haldnir eru á heimsvísu. Á aðeins
örfáum vikum fyrir heimsmótin er
risastórt mótssvæðið undirbúið
þannig að það geti tekið við þeim
mikla fjölda íbúa sem munu koma
þar upp tjaldbúðum og verja öllum
stundum á svæðinu í um hálfan
mánuð. Á slíku mótssvæði þarf
gífurlega samfélagsinnviði. Á meðan
mótinu stendur eru starfrækt
fjölmörg veitingahús,
læknamiðstöðvar, apótek, bankar,
kapellur og moskur, stórmarkaðir og
jafnvel skemmtigarðar og
stjörnuskoðunarmiðstöðvar.
Landsmót á Íslandi eru vinsæl
á meðal erlendra skáta
Íslenskir skátar sækja ekki aðeins
stórmót á erlendri grundu heldur
halda einnig sín eigin skátamót.
Landsmót á Íslandi eru að jafnaði
haldin á þriggja ára fresti, síðustu ár
til skiptis við Úlfljótsvatn og á
Akureyri. Landsmótin sækja nokkur
þúsund skátar og af þeim er um
helmingur erlendur. Á Íslandi
tíðkast að auk dagskrár fyrir skátana
sjálfa séu svokallaðar fjölskyldubúðir,
þar sem foreldrum gefst kostur á að
kynna sér skátastarfið með beinum
hætti. Landsmót á Íslandi eru títt
rómuð af erlendum gestum, enda fer
þar saman spennandi dagskrá,
einstæð náttúrufegurð og fagleg
skipulagning.
Sérstakt hátíðarlandsmót var
haldið við Úlfljótsvatn sl. sumar til
að fagna 100 ára afmæli íslensku
skátahreyfingarinnar. Mótið sóttu á
sjötta þúsund manns þegar mest var,
en það stóð í rúma viku. Yfirskrift
mótsins var Ævintýrið heldur áfram
og voru gömul mótsþemu nýtt sem
innblástur í dagskrána. Skátarnir
fengust við ýmislegt á meðan á
mótinu stóð, s.s að semja
tónlist,hanna tískufatnað úr
plastpokum, fara í ævintýralegar
hjólaferðir um Þingvallasveit, búa til
litla vatnsmyllu til rafmagns-
framleiðslu, heimsækja fornfálegt
víkingaþorp og tileinka sér
lifnaðarhætti íslenskra land-
námsmanna. Skátarnir elduðu sjálfir
matinn sinn eftir að hafa verslað
hann fyrir sérstakar
landsmótskrónur. Þannig lærðu
ungmennin útsjónarsemi og hagsýni,
auk þess að taka lýðræðislegar
ákvarðanir og tileinka sér færni í
matseld.
Friðarsamfélag til fyrirmyndar
Skátasöngurinn Ging-gang-gúllí-gúllí,
sem íslenskur almenningur hefur
jafnan tengt sterklega við
skátahreyfinguna, var í upphafi
samið af Baden-Powell sem söngur á
tilbúnu tungumáli sem sameinað
gæti allra þjóða skáta, óháð uppruna
eða tungumálafærni. Skátamót eru
einmitt friðsöm samfélög skáta sem
búa saman í sátt og samlyndi, þar
sem allir fá að njóta sín, þroska
hæfileika sína og blómstra, óháð
trúarbrögðum eða litarhætti.
Vandamál eða glæpir eru óalgeng
sjón á skátamótum, þvert á móti
umgangast skátarnir hver annan með
virðingu og forvitni að leiðarljósi.
Víða má sjá skáta frá samliggjandi
löndum sem hafa átt í deilum og
stríði, sitja saman og spjalla yfir
hádegisverði. Þannig stuðla
skátamót að tengslamyndun
ungmenna sem er brýnn þáttur í
friðarmenningu framtíðarinnar.
Skátamót er stór þáttur í
skátastarfi og vafalaust það sem
stendur upp úr á skátaferli hvers
skáta. Hvort sem um er að ræða 40
manna mót í þýsku dalverpi eða
alþjóðlegt stórmót á Íslandi, þá er
upplifun skátans ógleymanleg og á
stóran sess í að þroska ungmennið til
þess að verða, eins og leiðarljós
Bandalags íslenskra skáta segir,
„sjálfstæðir, virkir, hjálpsamir og
ábyrgir einstaklingar í samfélaginu.”
SKÁTAMÓT AF ÝMSUM STÆRÐUM OG GERÐUM
Tjaldstög og tillitsemi
andrúmsloftinu verður vart lýst með orðum. að stíga inn á mótssvæðið er eins og að
varpast inn í nýja veröld; -sérstætt samfélag sem byggir á bræðralagi barna, fremur en
reglum fullorðinna. skátamót eru vettvangur skáta til þess að koma saman og deila
lífskjörum í nokkra daga eða jafnvel nokkrar vikur. á skátamótum gista skátar yfirleitt
í tjöldum, setja upp ýmsa nauðsynlega samfélagsinnviði og taka þátt í dagskrá sem
miðar að því að læra að bjarga sér í náttúrunni, vinna í teymi og lenda í ævintýrum.
Unglingar að elda mat
á hverjum degi standa
táningsskátar við prímusinn
og keppast við að malla
gúllassúpu eða steikja fisk.
Uppblásin moska
Allir eru velkomnir á
skátamót, hverrar trúar
sem þeir kunna að vera.
á heimsmóti í svíþjóð
í fyrrasumar mátti sjá
uppblásna mosku til
þess að mæta þörfum
múhammeðstrúaðra skáta.
Útihátíð án áfengis
á landsmóti skáta skemmta
allir sér án áfengis og eftir
hátíðarkvöldvökur dansa
skátarnir fram á rauða nótt,
án þessa að vín sjáist á
nokkrum manni.
Palestínsk og ísraelsk börn
í sömu tjaldbúð
skátastarf gerir ekki
greinarmun á fólki eftir trú
eða þjóðerni og það gera
skátarnir sjálfir ekki heldur.
skátar úr stríðandi fylkingum
búa því í sátt og samlyndi
enda erum við, þegar öllu
er á botninn hvolft, öll bara
manneskjur.
Ótrúleg umgengni
Oft má sjá tjaldsvæði í
skelfilegu ástandi eftir
stórmót og útihátíðir. skátar
skilja alltaf betur við svæðið
en er þeir koma að því. á
skátamótum er allt gert til
að draga úr neikvæðum
áhrifum á umhverfið. meðan
á mótinu stendur leggja
skátarnir vinnu í að græða
upp mótsvæðið.
5 hlutir sem aðeins má sjá á skátamótum