Fréttatíminn - 23.11.2012, Síða 46
10 Ævintýri í 100 ár
Á daginn rekur hann sína eigin
lögfræðistofu á Suðurlands-
brautinni en kvöldunum,
helgunum og vafalaust flestum
hádegishléum ver hann í
tómstundastarfið sem hann hefur
eytt flestum frístundum sínum í
síðastliðin 32 ár. Bragi Björnsson
ber hina ýmsu titla, aðra en þann
að vera lögfræðingur. Bragi er
faðir, eiginmaður, Seltirningur,
áhugaljósmyndari og mikill
brandarakarl. Áhugaverðasti
titillinn er þó vafalaust sá titill sem
hann ber einn landsmanna; -Bragi
Björnsson er skátahöfðingi
Íslands!
Skátahreyfingin stendur nú á
tímamótum. Það er gaman að líta
yfir farinn veg en engu minna
spennandi að horfa til framtíðar þar
sem ný ævintýri bíða. Ritstjóri
afmælisritsins settist niður með
skátahöfðingjanum rauðhærða og
fékk hans sýn á stöðu
hreyfingarinnar í dag og það sem
bíður hennar á komandi árum.
„Það er ekki sjálfgefið að
sjálfsprottið æskulýðsstarf eins og
skátahreyfingin hafi lifað í hundrað
ár enda hefur fjöldi annarra
æskulýðssamtaka og íþróttafélaga
vissulega horfið af sjónarsviðinu á
liðinni öld.“ Bragi segir skýringuna
á því að skátastarf sé nú stærsta
æskulýðshreyfingin í heiminum
meðal annars vera þá að gildi
skátahreyfingarinnar hafi staðið
tímans tönn. „Skátastarf á alveg jafn
mikið erindi við ungt fólk í dag eins
og fyrir hundrað árum og munum
eiga erindi við ungmenni um
ókomna tíð.“
Bragi segir gaman fyrir þá sem
hafa starfað lengi innan skáta-
hreyfingarinnar að horfa til baka í
ölduróti nútímans og skoða hvernig
þjóðfélagsbreytingar hafa mótað
skátastarfið. „Þeim bandalögum
skáta sem hafa verið trú
grunngildum skátastarfs hefur í raun
farnast best. Þess vegna fórum við
nýverið í endurskoðun á starfs-
grunninum okkar og niðurstaðan á
þeirri endurskoðun er að við
hverfum aftur til framtíðar! Með
öðrum orðum; við leitum til
upphafsins og sjáum að þannig erum
við best í stakk búin til að mæta
kröfum framtíðarinnar.“
„Skátahreyfingin var upphaflega
stofnuð með það að leiðarljósi að
breiða út boðskap um frið“ segir
Bragi. Skátahreyfingin hélt nýverið
alþjóðlega friðarráðstefnu í Hörpu
þar sem húsið fylltist af ungum sem
öldnum friðarsinnum sem sýndu frið
í verki. Bragi segir eina leið til þess
að fræða ungt fólk um frið vera að
kynna þeim alþjóðastarf. „Með því
að leyfa ungmennum að kynnast
„framandi slóðum“ og gefa þeim færi
á að kynnast öðru fólki, menningu
og siðum, er hægt að eyða
fordómum sem jafnan eru
uppspretta ófriðar manna á milli.
Það var einmitt sú leið sem stofnandi
skátahreyfingarinnar, Sir Robert
Baden-Powell, taldi besta til að
stuðla að friði í heiminum.“
Fjölbreytt tækifæri fyrir
fullorðið fólk
Þær áskoranir sem skátastarf stendur
frammi fyrir á þessum tímamótum
eru í fyrsta lagi að mæta auknum
kröfum samfélagins. Í dag krefjast
bæði foreldrar og hið opinbera þess
að vera vel upplýst um skátastarf og
að eftirlit sé haft með starfinu. Enn
fremur eru gerðar ríkari kröfur um
óformlega menntun skátaforingja.
Þessum kröfum vilja skátar mæta
með því að fá fleiri fullorðna
leiðbeinendur til þess að starfa með
hreyfingunni og gefa um leið ungu
fólki tækifæri til að stunda
hefðbundið skátastarf mun lengur,
allt
þar
til
það hefur náð 22 ára aldri.
„Til þess að fá fullorðið fólk til
starfa verðum við að bjóða upp á
spennandi valkosti fyrir það , s.s.
fræðslu og símenntun sem nýtist
ekki bara í skátastarfi heldur líka í
einkalífi.“ Bragi bætir við að einnig
þurfi starfsumhverfið að vera
áhugavert og verkefnin bæði
fjölbreytt og krefjandi.
„Það er engin launung á því að
þetta kallar á aukinn kostnað. Þess
vegna er mér efst í huga, á þessum
tímamótum, sá mikli niðurskurður
sem hefur verið á fjárlögum hins
opinbera til skátastarfs. Framlög
ríkissins hafa á engan hátt fylgt
auknum kröfum og verðlagsþróun“.
Bragi segir það dapurt að
skátahreyfingin á Íslandi sé
nauðbeygð til þess að skera niður
starf sitt enda bitni það beint á
börnunum sjálfum.
„Allar rannsóknir sýna að þau
samfélög sem standa best að vígi í
kjölfar kreppu og annarra áfalla, s.s.
náttúruhamfara, eru þau samfélög
sem hafa hlúð að svo kölluðum
þriðja geira, - þ.e.a.s. fjölbreyttum,
frjálsum félagasamtökum. Því ættu
stjórnvöld að kappkosta við að styðja
vel við bakið á frjálsum félögum, því
þau sinna ákveðnum verkefnum sem
annars myndu lenda á herðum hins
opinbera. Í því fellst sparnaður fyrir
ríkið.
Fólki hættir til að horfa á
stuðning við skátastarf sem nokkurs
konar ölmusu og áttar sig ekki á
þeim hag sem þjóðfélagið hefur af
starfi skáta.“ Bragi bætir við að þar
eigi hann ekki aðeins við óbeinan
hag þjóðfélagsins heldur
fjárhagslegan hagnað í beinhörðum
peningum.“ Á undanförnum árum
hafa nefnilega þúsundir erlendra
skáta tekið þátt í alþjóðlegum
viðburðum á vegum íslenskra skáta.
Þetta hefur skapað
mikil verðmæti í
ferðaþjónustu. „Þó
að flestir þeirra fari,
líkt og hefðbundnir
ferðamenn, í
hvalaskoðun og
vélsleðaferðir, þá er
það líka einkenni
þessara ferðamanna
að þeir eru öðrum
fremur til í að kanna
ókunnar slóðir sem
er einstaklega
dýrmætt fyrir jaðarferðamennsku.“
Landsmót skáta eru að jafnaði
haldin þriðja hvert ár og þar skipa
erlendir skátar um helming
þátttakenda. Ennfremur hefur
íslenskum skátum verið treyst til þess
að halda World Scout Moot 2017,
-alþjóðlegt skátamót fyrir skáta á
aldrinum 18-26 og telur Bragi að
mótið muni verða einn stærsti
alþjóðlegi viðburður sem haldinn
hefur verið á Íslandi.
Mýs eða sænskt kóngafólk
„Þegar spurt er hvers vegna
miðaldra, hvítur karlmaður sem
rekur sína eigin lögmannsstofu, kýs
að verja frítíma sínum í það að hlúa
að annarra manna börnum, þá er því
til að svara að tólf ára lofaði ég að
gera skyldu mína við ættjörðina, -og
í því felst að leggja mitt af mörkum
til samfélagsins“ er svar Braga þegar
hann er spurður hvers vegna hann
taki enn svo virkan þátt í skátastarfi.
„Í ljósi þess hve mikið ég, sem
einstaklingur, hef grætt á skátastarfi,
bæði í einkalífi og í minni vinnu, þá
vil ég gera öðrum kleift að upplifa
slíkt hið sama. Ég svara einfaldlega
ákalli J.F. Kennedy sem sagði: „Ekki
spyrja hvað landið getur gert fyrir
þig, heldur hvað þú getur gert fyrir
landið“. Þrátt fyrir að ég hafi starfað
í skátahreyfingunni í ríflega þrjá
áratugi, þá verða stöðugt nýjar
áskoranir á vegi mínum.“
Bragi segir að þegar litið sé
yfirfarinn veg, þá
uppgötvi maður öll
þau tækifæri sem
skátastarfið hafi
gefið manni.
„Mikilvægasta
tækifærið sem
skátastarf gefur er
vafalaust tækifærið
til að stofna til
vináttu við
einstaklinga sem
maður hefði annars
aldrei kynnst.“ Bragi
á góða vini í Chile sem hann
kynntist á Heimsmóti skáta 1998 og
heldur ennþá reglulegu sambandi
við. „Minningarnar úr skátastarfi
eru mér allar jafn mikilvægar enda
spanna þær allt litróf lífsins. Maður
lærir af upplifunum sínum, hvort
sem þær eru að takast á við að mús
komst í nestið manns í köldum
skátaskála að vetrarlagi eða að skoða
hollensk skátafélög með Svíakonung
sér við hlið. Þetta eru tækifæri sem
mér hefðu annars ekki boðist í mínu
daglega lífi.“
Bragi sér fram á að stunda
skátastarf um ókomna tíð. Hann
telur að fullorðið fólk sem stundar
skátastarf geri það líklega fyrst og
fremst af því að það vilji hafa áhrif til
góðs á sér yngri einstaklinga.
„Endurgjaldið kemur þegar þú
upplifir að þú hafir virkilega skipt
máli í lífi einhvers. Þess vegna er ég
skáti.“
„Skátastarf á jafn mikið
erindi við ungt fólk í
dag eins og fyrir
hundrað árum“
fólki hættir til
að horfa á stuðning við
skátastarf sem nokkurs
konar ölmusu og átta
sig ekki á þeim hag
sem þjóðfélagið hefur
af starfi skáta
Í ljósi þess hve mikið
ég, sem einstaklingur, hef
grætt á skátastarfi, bæði í
einkalífi og í minni vinnu,
þá vil ég gera öðrum kleift
að upplifa slíkt hið sama