Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.11.2012, Síða 80

Fréttatíminn - 23.11.2012, Síða 80
Bíókvöld þeirra Hugleiks Dagssonar, Sigurjóns Kjart- anssonar og Sjóns hafa farið vel af stað í Bíó Paradís en á sunnudagskvöldum velja þeir félagar klassískar „költ“ myndir til sýninga. Á sunnu- daginn fá þeir Pál Óskar til leiks og hann mun kynna leikstjórann Tod Browning. Sá gerði Dracula með Bela Lugosi 1931 og Páll Óskar mun sýna 17 mínútna útgáfu af þeirri mynd úr 8 millimetra filmusafni sínu. Aðalmynd kvöldsins verður svo hin umdeilda Freaks sem Browning gerði 1932. Myndin fjallar um furðufólk í sirkus og áform um að myrða eitt þeirra til þess að komast yfir arf. Brown- ing kærði sig ekki um að nota gervi og förðun og fékk raunveruleg furðufyrirbæri úr sirkus til þess að leika helstu hlutverk. Þótt viðundrin séu upp hópa til heiðarleg og góð í myndinni og skúrkarnir séu tvær „venjulegar“ manneskjur fékk Browning bágt fyrir að nota sirkusfólkið í myndinni og var gerður útlægur úr Hollywood fyrir vikið. 56 bíó Helgin 23.-25. nóvember 2012 Tiffany hefur einnig sína djöfla að draga en býðst til þess að aðstoða Pat við að ná eigin- konunni aftur.  Frumsýnd silver linings Playbook b radley Cooper leikur kennarann fyrr-verandi Pat Solitano sem hefur misst allt. Eiginkonuna, húsið og vinnuna. Eftir áfallið eyddi hann átta mánuðum á stofnun fyrir fólk með geðraskanir en er nú fluttur inn á foreldra sína og er staðráðinn í því að koma lífi sínu aftur á réttan kjöl. Hug- myndir hans um sjálfan sig og líf sitt eru þó dálítið undarlegar og hann botnar ekki alveg í sjálfum sér. Hann er til dæmis ekki síst bjartsýnn á að geta unnið aftur hjarta eigin- konunnar fyrrverandi þótt skilnaðurinn hafi verið þess eðlis að í raun bendi fátt til þess að möguleikar séu á sáttum og að hún hafi fengið á hann nálgunarbann. Foreldrar hans, sem Jacki Weaver og Robert De Niro, leika hafa mun hóflegri hug- myndir um framtíð sonarins og vilja bara að hann rífi sig upp taki þátt í áköfum ef ekki trylltum stuðningi fjölskyldunnar við ruðn- ingsliðið Philadelphia Eagles. Málin flækjast enn frekar þegar Pat kynn- ist Tiffany, dularfullri, ungri konu, sem Jennifer Lawrence leikur. Tiffany hefur einnig sína djöfla að draga en býðst til þess að aðstoða Pat við að ná eiginkonunni aftur gegn því að hann geri dálítíð mjög mikilvægt fyrir hana í staðinn. Á meðan Pat og Tiffany taka þátt í brölti hvors annars myndast sterk tengsl á milli þeirra og þau átta sig á að lífið er kannski ekki jafn glatað og það virtist í byrjun. Leikstjórinn, David O. Russell, sem á meðal annars þær ágætu myndir The Fighter og Three Kings að baki, skrifaði handritið að Silver Linings Playbook upp úr samnefndri skáldsögu eftir Matthew Quick sem kom út 2008 við töluverðar vinsældir. Bradley Cooper hefur verið á jafnri og stöðugri uppleið undanfarið. Hann leikur einn vinanna í The Hangover-myndunum, sýndi harðhausatilþrif ásamt Liam Neeson í The A-Team og lét til sín taka í Wedding Crashers og Limitless. Í fyrra var hann val- inn kynþokkafyllsti núlifandi karlmaðurinn hjá tímaritinu People. Jennifer Lawrence er aðeins 22 ára en þegar búin að festa sig rækilega í sessi sem ein efnilegasta kvikmyndaleikkona sinnar kynslóðar í Hollywood. Hún sýndi frábæran leik í Winter's Bone 2010 og hefur verið á fleygiferð síðan. Hún stóð sig með prýði sem Katniss Everdeen í The Hunger Games og á eftir að leika persónuna í það minnsta í tveimur Hunger Games-myndum til viðbótar. Þá lék hún Mystique í X-Men: First Class í fyrra og er að hita upp fyrir X-Men: Days of Future Past. Lawrence sást síðast í bíó á Íslandi fyrir nokkrum vikum í hrollinum House at the End of the Street. Aðrir miðlar: Imdb: 8.2, Rotten Tomatoes: 90%, Metacritic: 82%. Rómantíska gamanmyndin Silver Linings Playbook hefur gert stormandi lukku frá því hún var frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto. Gagnrýnendur keppast við að ausa mynd- ina lofi og hún þykir til dæmis brakandi fersk á Rotten Tomatoes þar sem hún stendur í 90%. Í myndinni leikur hinn þokkafulli Bradley Cooper mann sem hefur misst allt en er staðráðinn í því að komast aftur á lappir með hjálp dularfullrar konu sem sú frábæra, unga leikona Jennifer Lawrence leikur. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Allslaus ræfill rís upp Pat og Tiffany eru furðufuglar og komin út í horn í lífinu en vinátta þeirra hefur góð áhrif á tilveru þeirra.  svartir sunnudagar browning-kvöld Viðrinin útlæguÁhrif Exorcist Hryllingsmyndin The Possession er sögð byggð á raunverulegum atburðum en hún segir frá ungri stúlku sem illur andi tekur sér bólfestu í eftir að hún opnar fornt skrín sem hefði betur verið lokað áfram. Fráskilinn faðir tveggja dætra kaupir skrínið handa yngri dóttur sinni á garð- sölu. Á því er dularfull áletrun og ekki virðist nokkur leið til þess að opna það. Stúlkan fer þó að heyra raddir sem hún telur koma úr skríninu og þegar henni tekst loks að opna það verður fjandinn laus, bókstaflega. Sam Raimi (Evil Dead, Drag Me To Hell) kann sitt fag þegar kemur að hryll- ingi en hann framleiðir The Possession. Kvikmyndarýnirinn Roger Ebert gefur myndinni ágætis einkunn og segir hana með betri myndum sem gerðar hafa verið undir áhrifum frá hinni sígildu The Exorcist.  Frumsýndar 6 sætið . Gegn átakastjórmálum sameinum þjóðina www.sigsig.is Leiðréttum óréttlætið! Flestum er ofboðið eftir nær fjögurra ára vinstri stjórn. 1. Atvinnuleysi: 6.3%, 11.200 manns 2. Skuldastaða heimilanna: Óásættanleg eignarýrnum 3. Fátækt: Fjölmargir líða skort 4. Verðtrygging lána: Afnemum hana af neytendalánum 5. Atvinnulífið: Forsendan er að koma atvinnulífinu í gang Ég legg áherslu á að leysa úr þessum málum: Prófkjör Sjálfstæðisflokksins 24. nóvember 2012 SIGURÐUR SIGURÐARSON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.