Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.11.2012, Síða 82

Fréttatíminn - 23.11.2012, Síða 82
58 bækur Helgin 23.-25. nóvember 2012  útgáfa Barna- og unglingaBækur  Skrifuðu Saman Bók í Sitt hvoru heimShvelinu Þ etta gekk furðuvel, við erum svo vön því að vinna saman,“ segir Vera Illugadóttir. Hún er stödd í Svíþjóð þar sem hún nemur arabísku í háskól- anum í Stokkhólmi. Helgi Hrafn er hins- vegar í Buenos Aires í Argentínu þar sem hann nemur og starfar meðal annars við íslenskukennslu. Þrátt fyrir vegalengdina sem aðskilur skrifuðu þau saman Svörtu bókina sem kom út á dögunum og halda úti vefsíðunni Lemúrnum. „Samstarf okkar Veru er einstaklega þægilegt þó við séum á sitt hvoru heimshvelinu,“ segir Helgi Hrafn. Hann segir þau hafa svipaða sýn á hlutina og vera oftast sammála. Við vinnslu bókarinnar notuðu þau Skype og önnur spjallforrit og það gera þau líka til að stýra Lemúrnum. „Það er kannski tímanna tákn,“ segir Helgi, „nú á dögum getur fólk setið við tölvu hvar á hnettinum sem er ,skrifað fyrir tímarit og gefið út bækur, án vesens.“ Vera segir að áhuginn á hryllingssög- unum hafi lengi blundað í sér. Hún segir að þó það hljómi furðulega hafi vinnan við að safna sögunum verið skemmtileg. „Þó efnið sé hræðilegt er þetta eitthvað sem allir hafa áhuga á. Ég held að minnstakosti séu flestir mjög forvitnir um óeðli mann- skepnunar.“ Helgi tekur í sama streng. „Þessi bók varð til því við erum bæði mikl- ir sagnfræðigrúskarar. Ég held að allir sem opni bók um mannkynssöguna reki sig á einhvern hrylling eftir eina eða tvær blaðsíður. Maðurinn er versta ófreskjan á jörðinni og ég held að það sé hættulegt að leiða það hjá okkur. Við verðum að horfast í augu við þá myrku staðreynd.“ Athygli vekur að vegna búsetu hefur hvorugt þeirra séð bókina fullkláraða. En þau bíða komu hennar bæði með póst- inum. „Það er skrýtið að hafa ekki séð ein- tak af bókinni,“ segir Helgi Hrafn og Vera tekur í sama streng. „Við áttum líka að sjá um að auglýsa útgáfupartíið, en hvorugt okkar gat verið á staðnum,“ segir hún og Helgi bætir við: „Einn vinur líkti því við minningarathöfn um okkur, skemmtilega jarðarför.“ Þó að bókin sé fullkláruð, halda þau áfram að vinna saman á milli landa en líkt og áður sagði halda þau úti vefsíðunni Lemúrnum. Enda kannski af nógu að taka. „Þessi heimur er ótrúlega skrýtinn þegar að er gáð,“ segir Helgi. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Gáfu út bók en hafa ekki séð hana Mitt eigið Harmagedón Mitt eigið Harmagedón, unglingasaga eftir Önnu Heiðu Pálsdóttur er komin út hjá bóka- forlaginu Sölku. Dag- björt Elísabet er að verða sextán ára og hefur fengið sumarvinnu á leikskóla þegar líf hennar tekur stakkaskipt- um. Hún er alin upp í samfélagi votta Jehóva en þetta sumar kynnist hún nýjum vinum og heillandi valkostum sem verða til þess að vekja spurningar um þá trú og lífsstíl sem hún hefur treyst á alla tíð. Um haustið þegar Dagbjört byrjar í Fjölbrautaskólan- um í Breiðholti, er hún breytt manneskja og tekst á við námið með nýjum styrk. Rökkurhæðir – Ófriður Bókabeitan dreifði fjórðu bókinni um krakkana í Rökkurhæðum, Ófriði, á dög- unum en þriðja bókin í flokknum, Krist- ófer, kom út í apríl. Bókaflokkurinn hefur notið vinsælda meðal krakka á öllum aldri. Við fyrstu sýn eru Rökkurhæðir eins og hvert annað úthverfi. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að svo er ekki. Grimmsystur: Ævintýraspæjarar Fyrsta bókin í bókaflokknum um syst- urnar Sabrínu og Dagnýju Grimm, Ævintýraspæjarar eftir Michael Buckley, er komin út. Systurnar komast að því að þær eru afkomendur hinna frægu Grimmsbræðra. Útgefandi er Bókabeitan. Heimili fröken Peregrine fyrir sérkennileg börn Þegar Jakob er lítill strákur segir afi Portman honum sögur af dularfullu barnaheimili sem hann ólst upp á og sýnir honum furðulegar ljósmyndir af munaðarlausum börnum. Sextán ára gam- all er Jakob hættur að taka mark á þessum lygilegu sögum og það er ekki fyrr en eftir fjölskylduharmleik sem hann fer að gruna að kannski sé eitthvað hæft í frásögn afa hans. Jakob fer til afskekktrar eyju við strönd Wales að leita að barnaheimilinu en þar fer líf hans að flækjast með hætti sem hann hefði aldrei getað órað fyrir. Æsispennandi saga um dularfulla eyju, sérkennileg börn og merkilegt barna- heimili. Twentieth Century Fox hefur þegar keypt kvikmyndaréttinn. Salka gefur út. Mary Poppins endurútgefin Bókin Mary Poppins eftir P.L. Travers hefur verið endurútgefin hjá bóka- forlaginu Sölku. Í nútímasam- félagi þar sem allir eru uppteknir af því að skilgreina sjálfa sig minnir Mary Poppins okkur á að það sem mestu máli skiptir er að vera maður sjálfur og reyna ekki að vera eitt- hvað annað. Sjálf er hún ekki dæmigerð að neinu leyti, hvorki sem barnfóstra, kennari, vinkona né kvenmaður. Íslensk þýðing Hallur Hermannsson. Fimm forvitnilegar bækur fyrir yngri kynslóðina Vinirnir unnu bókina í gegnum samskipta- miðla. Þau eiga líka reglulega fundi í gegnum Skype forritið þegar kemur að því að stýra Lemúrnum, (lemurinn.is).  ritdómur herra hjúkket Ljóð jafn mikilvæg og morgunkaffið Ásta Fanney semur ljóð og blandar við þau súrrealískri myndlist. Hún fagnar útgáfu ljóðabókarinnar Herra Hjúkket í dag. Ljósmynd/Hari „Ég vinn mikið með blöndun mynd- listar og ljóða og set því líka myndir í bækurnar,“ segir Ásta Fanney Sigurðar- dóttir sem gefur út sína fyrstu ljóðabók í dag. Bókin heitir Herra Hjúkket og er önnur í röðinni í bókaflokknum „með- gönguljóð“. Bókaflokkurinn saman- stendur af ljóðabókum sem eiga það sameiginlegt að vera ódýrar, eða á verði við kaffibolla. Með því hyggjast útgefendur fá fólk til þess að grípa með sér ljóð út í daginn með morgunkaffinu. „Bækurnar eru svo seldar á kostnaðar- verði og þannig aðgengilegar flestum. Ég held það geri öllum gott að lesa svo- lítið af ljóðum,“ segir Ásta Fanney. Ásta Fanney útskrifaðist úr mynd- listardeild Listaháskóla Íslands í vor. Hún hefur fengist mikið við súrr- ealíska blöndun ljóða og teikninga í myndlist sinni. Bók Ástu einskorðast ekki aðeins við ljóðlistina en hún er einnig myndskreytt af höfundinum sjálfum. „Mér finnst mjög gaman að ímynduðum heimi og því að leyfa sér að flakka um hugann. Ég leitast við að fanga þann heim þegar ég skapa. Hvort sem það eru ljóð eða myndir.“ Hún segir að ljóðin hjálpi sér að takast á við daglegt amstur. Þau spegli því líðan hennar og upplifanir hverju sinni. „Þau hjálpa mér að takast á við allt sem kemur upp í lífinu og losa um vandamál. Mér datt ekki í hug fyrst að bókin yrði svona dramatísk,“ segir hún og hlær, „en hún er mjög einlæg. Ég sendi það frá mér sem kom frá dýpstu hjartarótum.“ Ásta Fanney rekur einnig í samstarfi við fleiri, galleríið Kunstlager á Rauðarárstíg. „Okkur langaði til að skapa vettvang fyrir ný útskrifað listafólk til að setja upp sýningar og einnig stað þar sem almenningur gæti fjárfest í myndlist sem kostar ekki milljónir.“ María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Vera Illugadóttir og Helgi Hrafn Guðmundsson gáfu út Svörtu bókina á dögunum. Bókin er samsafn af hryllingssögum af voveiflegum atburðum í sögunni. Morðingjasögum og öðrum hryllingi. Áhugi þeirra á hryllingssögunum hefur að þeirra sögn lengi verið til staðar. Þau hófu að skrifa þær í kringum 2008 en þá unnu þau saman á tímaritinu Skakki turninn. Aðstæður eru þó töluvert breyttar frá þeim tíma þar sem þau búa nú í sitt hvoru heimshvelinu. Bókina unnu þau í gegnum samskiptamiðla á borð við Facebook og Skype. Reynum að draga fram hið sérstaka og ein- kennilega í mann- legri til- veru. Vera í ískulda í Stokkhólmi og Helgi Hrafn í hlýjunni í Buenos Aires. Fjarlægðin hefur lítil áhrif á samstarfið. Hryllingssögur krydd- aðar með húmor og innsæi höfunda.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.