Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 30
KJÖTbúðin.is
Grensásvegi 48 - Sími 571 5511 - kjotbudin@kjotbudin.is
hvað hafi valdið þá segir hann að
enginn hafi þrýst á hann heldur
hafi þetta bara verið lífsstíll. Hann
var fimleikastrákur og æfði alla
daga. „Þetta var það sem þurfti til
að geta verið góður í fimleikum,“
segir hann.
Þú hefur aldrei valdið sjálfum
þér vonbrigðum er það?
„Jú, jú,“ hlær Gísli og maður trúir
honum ekki.
Venjulegt fólk ætlar að taka sig á
í ræktinni, breyta mataræðinu, og
nær aldrei alveg að klára dæmið.
En ég held að það sé ekki vandamál
með Gísla Örn Garðarsson. Hann
gerir nákvæmlega það sem hann
ætlar sér og gott betur. Reyndar
reynir hann sjálfur að gera lítið úr
því og segist ekki vakna á morgn-
ana í dag og fara í líkamsrækt.
Og hann vill meina að hann hafi
ekkert alltaf hlakkað til að takast
á við ískalt náttmyrkrið sex og sjö
á morgnana á Íslandi um hávetur.
Þegar hann var fimmtán og sextán
og sautján og nítján og tuttugu en
hann gerði það samt. Hann bar
ekki út blöð fyrir peninga heldur
klifraði í köðlum, tók 200 arm-
beygjur, 300 magaæfingar og svo
framvegis.
„Þú verður að taka með í reikn-
inginn hvað agi er góður,“ útskýrir
Gísli. „Í fimleikum verðurðu háður
aganum og þetta verður því engin
kvöð.“
Er að leika í gamanmynd
Þegar við Gísli hittumst í kaffi um
daginn var létt yfir honum. Hann
sagði skýringuna vera að hann væri
„bara“ að leika í bíómynd þessa
dagana (Ófeigur gengur aftur í
leikstjórn Ágústs Guðmundssonar
– Ilmur Kristjánsdóttir og Laddi
leika á móti honum: „Gamanmynd,“
segir Gísli). Að sögn Gísla er það
bæði krefjandi og erfitt að leika
í leikhúsi. Dag eftir dag. Kvöld
eftir kvöld. Allan daginn fram að
sýningu hangir hún yfir þér. Sama
sýning og í gær. Þú verður að borða
rétt yfir allan daginn, passa að þú
hafir næga orku og það er alltaf
þessi efi um að kannski sértu ekki
í alveg nógu góðu formi. Þú mátt
ekki fá þér hamborgara tveimur
tímum fyrir sýningu. Þá fer þig
langa í borgara. Og svo framvegis.
Það togar samt alltaf í hann, leik-
húsið, þótt þau í Vesturporti hafi
þegar framleitt þrjár bíómyndir
(Börn, Foreldra og Brim) og Gísli
sjálfur leikið í stórmynd Disney.
Hann er líka leikhúsmaður fram í
fingurgóma og Gísla þykir vænt um
áhorfandann. Þannig færði hann
Rómeó og Júlíu Shakespeares aftur
til fólksins á sínum tíma. Það var
enginn spenntur fyrir að sjá enn
eina uppsetninguna á Rómeó og
Júlíu árið 2002 þegar Gísli og þau
í Vesturporti frumsýndu nýja og
skemmtilega nálgun á klassíkina.
Og nú nýverið frumsýndi hann
Hróa hött hjá Royal Shakespeare
Company í London. Sú sýning er
líklega á leið á Broadway. Þar hefur
Gísli verið áður. Faust er líka á leið
til New York og Hamskiptin eru
eftirsótt um allan heim. Allt sýning-
ar sem Gísli hefur sett upp og hafa
slegið í gegn svo um munar. Hann
afþakkaði þjóðleikhússtjórastöðu í
Skotlandi á dögunum. Ég veit ekki
hvað ég á að segja meira. Þjóðleik-
húsið í London hefur fengið hann
til að þróa nýja sýningu í anda þess
sem hann hefur verið að gera. Sú
sýning verður unnin með einmitt
Endo Walsh sem skrifaði fyrstu
verkin sem Vesturport setti upp.
Norska Þjóðleikhúsið hefur boðið
honum fastráðningu sem leikari og
leikstjóri. Og honum tekst að gera
þetta allt og vera pabbi og eigin-
maður og svo framvegis.
„Reyndar er erfitt að eiga fjöl-
skyldu og vera í leikhúsi í London.
Og New York ef út í það er farið. Á
West End og Broadway er vinnu-
dagurinn frá níu á morgnana til tíu
á kvöldin. Þegar ég mæti til dæmis
til vinnu hjá Royal Shakespeare
Company eru leikararnir meira
að segja búnir að hita upp og eru
tilbúnir strax um morguninn. Þetta
er allt öðruvísi umhverfi.”
Ætlaði ekki að verða leikari
Gísli var í fimleikum, eins og fyrr
segir, og hann ætlaði sér aldrei
að verða leikari. Hann var svoldið
týndur eftir MH og leitaði mikið
að sjálfum sér. Ákvað í röðinni
uppi í Háskóla Íslands að skrá sig
í félagsfræði eins og pabbi hans.
Hann hefur skrifað allar þessar
félagsfræðibækur sem mennt-
skælingar lesa. Gísli var í ár að
lesa við HÍ og vann á elliheimilinu
Grund á meðan. Svo fóru þeir Nilli,
Jóhannes Níels Sigurðsson, saman
til Danmerkur í fimleikaháskóla.
Þá var planið að verða fimleika-
þjálfari en fljótlega uppgötvaði
Gísli að það var ekki fyrir hann.
Svo hann endaði í Noregi í Há-
skólanum í Osló að lesa vestur-
evrópsk fræði og æfa með landsliði
Noregs í fimleikum. Svo gerðist
það að sambýlingur hans, sem var
í lögfræði, skráir hann í leikfélag
lögfræðinema. Í einhverju gríni
ákveður Gísli að fara og taka þátt í
uppfærslu með lögfræðinemunum
og þar kviknar áhuginn. Hann
leikur í tveim sýningum og setur
svo sjálfur upp Rocky Horror söng-
leikinn sem floppar algerlega.
„Þarna er ég í raun að taka út
menntaskólaárin. Er á kafi í félags-
lífi og skemmti mér mikið,“ útskýr-
ir Gísli sem snýr heim eftir Rocky
Horror floppið. Hann ætlar að hasla
sér völl í útgáfu á Íslandi. Stofnar
fyrirtæki sem, eins og fyrr segir,
hét Nótt og dagur og hann gaf út
póstkort sem héngu á öllum börum
bæjarins, frí póstkort fjármögnuð
með auglýsingum.
„Ég ætlaði líka að gefa út svona
blað eins og er gefið út í Noregi
og Danmörku og víðar en áður en
ég veit af er ég kominn inn í Leik-
listarskólann,“ segir Gísli að vonum
ánægður með hvert þetta líf hefur
leitt hann.
Að lokum spyr ég hann hvort
hann sé orðinn alveg brynjaður fyr-
ir dómum. Af því að þótt Bastarðar
hafi fengið frábæra dóma í Ríkis-
sjónvarpinu og stórum norrænum
dagblöðum þá var sýningin að fá
jafn slæma útreið í DV og Rómeó
og Júlía fékk í Mogganum á sínum
tíma.
„Nú er ég listamaður en ekki
íþróttamaður. Ég er ekki í sam-
keppni við neinn. Ég er ekki að
kalla eftir samanburði við það sem
aðrir eru að gera og ég ber meiri
virðingu fyrir því sem ég tek þátt
í en að hægt sé að hversdagsgera
það með stjörnugjöf við hliðina á
fréttum um Kim Kardashian. Þeir
sem hafa þörf fyrir að gagnrýna
eða rækta þórðargleðina í sjálfum
sér verða að eiga þann lífsstíl við
sjálfa sig. Sjálfur hef ég bara eitt
markmið: Að halda áfram að skapa
með gefandi fólki,“ segir Gísli.
Ilmur Kristjánsdóttir og Gísli Örn fara með aðalhlutverkið í nýrri mynd, Ófeigur snýr
aftur, sem Ágúst Guðmundsson og leikstýrir og stefnt er að frumsýningu um páska.
30 viðtal Helgin 9.-11. nóvember 2012