Læknablaðið - 01.01.1928, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ
29
mjólkin hlaupi í maganum, er lítiö eitt af citr. natric. sett í hvert glas.
i'eskeiö af duftinu er gefin í vatni, vel hræröu út, 2. hvern klukkutíma,
eftir mjólkurglas. Tvær teskeiðar eru teknar áöur en sjúkl. fer að sofa, og
ef hann vaknar, á hann að taka inn duft.
Aöra vikuna er duftiö gefiö inn 4—5 sinnum á dag, en eins á kvöldin
og 1. vikuna. Nú má fara að gefa egg út í mjólkina og bæta smátt og
smátt viö brauði og smjöri og rjóma.
Þriöju vikuna er duft gefið 3—4 sinnum á dag og lika um háttatíma.
Nú rná bæta við fiski og dálitlu af kartöflum.
Fjóröu til sjöttu viku er duftið tekið 3 sinnum á dag, seinasti skamt-
ur undir svefn. Nú má bæta við ýmsum léttum fæðutegundum og öll ein-
kenni ættu að vera horfin. Næstu sex vikurnar er duft tekið 2—3 sinn-
um á dag, og hætt síðan við það, nema undir svefn ætti að taka þaö um
langan tima. Stundum koma smáköst af ulcus-einkennum, sem standa
stutt, og ættu sjúkl. þá að lifa á mjólk eingöngu i 1—2 daga og taka
inn duftið 4—5 sinnum daglega. Varast skyldi að borða mjög mikið í
einu. Tóbak veldur mjög oft magaeinkennum og ættu sjúkl. að hætta
við það, og sama er að segja um alcohol.
Greininni fylgja 11 sjúkrasögur með röntgenmyndum og sjást djúp sár
í nische) á sumum þeirra og hefir öllum sjúkl. Iiatnað vel við þessa með-
ferð. G. Th.
J. Heyman: Radiological or operative treatment of cancer of the
uterus. Acta radiologi.ca. Vol. VIII. Fasc. 5. 1927.
Höf. er skurðlæknir við Sabbatsberg Sjukhus í Stokkhólmi, en hefir
jafnframt i mörg ár haft á liendi radiumlækningar við cancer uteri, undir
forustu próf. G. F o r s s e 11 s, á R a d i u m b e m m e t i Stokkhólmi.
Hér fer á eftir útdráttur úr fyrirlestri, er dr. J. H e y m a n flutti á fundi
norrænna skurðlækna í Gautaborg í júnímán. '27
Spurningunni um skurðlækning eða geislalækning við cancer uteri verð-
ur ekki svarað, nema með því að kynna sér skýrslur um þessi efni. Nú
hafa birst svo rniklar skýrslur um þessar lækningar, að auðið er að gera
samanburð á árangrinum af geislalækning og skurðlækning á cancer
c o 11 i uteri. Samanburður er þó erfiöur, vegna þess að skurðlækning
hefir aðallega verið reynd við c. uteri i hyrjun sjúkdómsins, en geisla-
iækning þegar meinið hefir gripið meira um sig.
Cancer colli uteri. Höf. hefir safnað öllum meiri háttar skýrsl-
unr, sem til hefir náðst, um árangurinn af skurðlækningum á c. colli uteri.
Bata hafa fengið 20,2% sjúklinganna. Á hinn bóginn hafa 20,7% fengið
bata, af þeirn sjúklingum, sem Radíum- og (röntgen-)Iækning hlutu á
Radiumhemmet í Stokkhólmi. Við þennan samanburð er að athuga, að
ca. 58% af konunum, sem skornar voru, töldust skurðtækar („operabel"),*
en aðeins 26% af þeim, sem geislaðar voru með radíum. Höf. þykist
þvi mega draga af þessu þá ályktun, að radíumlækning taki skurðlækn-
ingunum fram, með því fyrirkomulagi á geislalækningunum, sem notað
cr á Radiumhemmet, við c. colli uteri.
* Eg kem ekki fyrir mig, að læknar hafi hingað til átt orð um „operabel", og hefir
mér komið til hugar, að „skurðtækur“ geti táknað þessa hugmynd. — Þýð.