Læknablaðið - 01.01.1928, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ
31
þessum efnum sem svo mörgum öörum, en hitt ætlar jafnan aö reynast
torvelt, aö koma almenningi í skilning um, s y n d i n a, kyrking nýgræö-
ingsins, af því aö þetta er ekki gert, af því aö hann er ekki varinn gegn
skaðlegum áhrifum, eins og vera ber.
Bækurnar eru prýöilega skemtilegar aflestrar, meö mörgum mynd-
um, og mannsblær og mannsbragur á þeim.
26. janúar 1928.
Ól. Ó. Lárusson.
Goshanar. — Sleifarlagið.
Þegar eg og mínir jafnaldrar voru í skóla, skeöi þaö stundum að viö
uröum þyrstir. Til að bæta úr því var gengið í tunnu sem stóð í skúrn-
um — opin fyrir öllu og öllum — og drukku „allir hér af“, úr stóreflis
trésleif. Úr sleifinni drukkum viö, án
nokkurs manngreinarálits, hver eftir
annan. Sumir af okkur höföu tær-
ingu, sumir ekki, eins og gengur.
Síðan er nú rnargt og mikiö skeö
á Fróni, og- flestir ef ekki allir skól-
ar i Reykjavík, hafa nú sennilega
fengiö sér „goshana" (er orðið boð-
legt?) aö þamba af, enda hægðar-
leikur, þar sem vatnsleiðsla er í hvert
hús. — En hvernig er þessu háttaö í
skólum úti um land? Er ekki gamla
sleifarlagið þar viö líöi eins og áð-
ur? Mig grunar það.
Þetta þarf þó ekki svo aö vera, og þeim sem vilja bæta úr þessu sleií-
arlagi, vil eg lienda á Hysingjords drikkefontæne, sem hér fylgir mynd
af, og sem ryður sér mikiö til rúms hér í Noregi. Þetta er afar einfalt
,.apparat“ og kostar litiö. Vatnsgeymirinn er kassi, sem settur er upp á
vegg, nokkru neðar viö sama vegg og svo langt frá gólfi, að nær meðal-
liarni ofarlega i bringu, kemur skál, kringlótt í allar áttir sem horisontalt
liggja, en trektmynduö upp og niöur. Niöur úr kassanum gengur pípa i
bugöu sem nær niður fyrir skálina, og þaöan upp í gegnum botninn á
skálinni og meö því aö kippa í dálitla festi, sem hangir niður meö ann-
ari hliðinni á kassanum (eins og telpan gerir á myndinni), opnar maður
loku, sem á kassabotni lokar pípunni, og streymir þá vatnið gegnum
hana og beint upp í túlann á barninu. Þaö af vatninu, sem fer til spillis,
rennur niöur úr skálinni, gegnum pípu og niður í fötu, sem sett er á
gólíið þar undir sem pipan endar. Sumir vilja heldur hafa þessa pípu
svo langa, að hún nái út eða kornist í samband viö skólprör ef nokkur eru.
Þeir sem það vilja, og það er svo sem flesta, geta líka fengiö mund-
laug um leið, siá myndina til vinstri handar. Vatnið kemur í hana frá
sama vatnsgeymi. í gegnum pípu, seni hægt er að loka fyrir og opna eftir
vild, með því að snúa dálitlu handfangi sem til þess er gert, og skólpið
rennur þaðan niður í sönru fötuna sem áður er getið um, eða sömu leið
og vatnið sem fer til spillis þegar drukkiö er. — Eins og sjá má, er þetta
afar einfalt og kostar ca. 100 krónur. — Meðan eg var í Lyngen, fengu