Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.1928, Side 13

Læknablaðið - 01.03.1928, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ 43 og þaÖ þó eftir valinkunnan og vanan referent sé, eins og próf. G. H. — Eg verÖ aS reyna aö hugga mig við (þó léleg huggun sé), aS fleiri munu þó finnast breyskir í þessu tilliti meðal lækna, en eg. ■?— Próf. G. H. kemst þannig að orði i útclrætti sínum: „Orsök blindunnar er oftast glau,coma, eins og hér á landi. En hvers- vegna kveður svo mikið að þessum kvilla í Færeyjum? Höf. færir rök fyrir því, að sjúkd. liggi í ættum, og hafi færst svo mikið í aukana við það að náskyldir giftist" etc. Út af þessu kemst eg svo að orði í júnígrein minni í Lbl.: „Kemst hann (þ. e. Dr. R.) að þeirri niðurstöðu, að glauioma sé aðal- orsök blindunnar, og erföir og skyldmennagiftingar séu fyrsta orsök til þessa glaucoma, — eða jafnvel sú eina.“ Eg legg það undir dóm lesenda, hvort hér sé óráðvandlega með hin- ar notuðu heimildir farið.— En nú hefi eg komist að raun um, að útdráttur próf. G. H. er ekki allskostar nákvæmur. — Því: Höf. færir engin rök fyrir því, að glaucoma liggi í ættum. Hann nefnir bygðarlög, þar sem fólkiö er óvenjulega mikið skylt innbyrðis, en hann minnist ekki einu orði á, að þarna sé meira um glaucoma, heldur en ann- arsstaðar í sönut eyju, þar sem fólkið er blandaðra. Höf. minnist hvergi á, að glaucoma í Færeyjum hafi færst í aukana, eða sé að færast í aukana. En aftur á móti tekur hann það oftsinnis fram, að blindan sé að minka. — Eg skal því fúslega viðurkenna, að hefði eg lesið' ritgerðir Dr. R. jafn- hliða útdrætti próf. G. H., þá rnyndi eg að líkindum hafa lagt minna til málanna. Ef til vill látið ntér nægja, aö benda á ónákvæmni útdráttar- ins, og leiðrétt tölu blindra á íslandi, eins og próf. G. H. gaf hana upp, sem að öllum líkindum stafar af því, að í ritgerð Dr. R. er talað um blindratöluna á íslandi u m s í ð u s t u a 1 d a m ó t, og átti hún þá að hafa verið 33. — a d. 2. En hvað sem öðru líður, þá finst Dr. R. auðsjáanlega, að eg geri ekki nógu mikið úr erfðum og skyldmennagiftingum, sem orsök til glaucoma, sérstaklega gl. simplex. Sjálfur hefir hann „gengið út frá því sem gefnu", að glaucoma „gangi mjög oft í erfðir", vitnar sér til stuðnings í kenslubók Dr. Ask, og til- færir eftir honum þetta meðal annars: i „Arftlighet inom vissa familjer er omisskánnlig. dár glaucomet upp- tráder som dominant Anomali" etc. Þetta þýðir ekki annað en það, að höf. (Dr. Ask) segir, að g 1 a u- com geti óefað stundum gengið í erfðir, en þar með er hvergi sagt, að hann álíti að þaö „gangi mjög oft í erfðir“. — Óneitan- lega nokkur munur. En hvað hefi eg nú sjálfur sagt? — Tek hér helstu dæmin úr júni- grein minni: „Eg er sjálfur á þeirri skoöun, aö erföir og skyldmennagiftingar eigi nokkurn þátt i tiðleika glaucomanna, en er hinsvegar algerlega mótT.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.