Læknablaðið - 01.12.1928, Qupperneq 13
LÆKNABLAÐIÐ
næst diagnosis, a'Ö stinga upjt á þvi sem möguleika, að unt echinococcus
væri að ræða. Annars kom hið sanna fyrst í ljós post mortem.
Dévé tilfærir eftir öðrum, að Jónassen hafi að eins eitt sinn fundið
hjartasull á fslandi. (Eg hefi ekki enn fundið það i bók hans), en hann
hætir við, að engan þurfi að undra, þó að slikt hafi ekki oftar fundist, þar
sem lieita megi að engar krufningar hafi tíðkast á íslandi fyr en um 1912
(og fáar siðan hefði hann mátt bæta við).
Dévé er trúaður á, að takast megi í nálægri framtíð, bæði að greina
hjartasulli og að skera þá burtu. Minnir hann á hve hjartakirurgiunni hefir
fleygt fram á seinni árum, svo að liæði ameriskir og þýskir læknar hafa
ráðist i að gera við lokugalla meö sérstökum verkfærum og tekist furð-
anlega.
Hinar stuttu greinargerðir um tilraunir viðvíkjandi sullsmitun, scolices-
eyðingu og bólusetningu hafa fátt nýtt að bjóða. Af sjö kaninum sem
fengu sullhausagraut (sable hydatique) spýttan inn í camera anterior, voru
tvær það sterkastar á svellinu, að augun héldust eftir sem áður jafngóð.
Hinar 5 urðu hálfgert eða alveg blindar á hinu smitaða auga, og óx þar
fram sullur, mismunandi greinilega að vísu, sem fylgja mátti í framþró-
un dag frá degi. Líklega fæst engin thermostat hetri til sullræktunar en
camera anterior.
Doktorsritgerðin, sem síðast er nefnd, segir nákvæmlega frá ræktun
sullhausa, eins og Dévé hefir hugkvæmst að koma henni fyrir. En þar
finst fátt nýstárlegt. og hefi eg áður skýrt frá niðurstöðunni í Læknabl.
ökt.—-nóv. 1926.
Ekki hafa tekist tilraunirnar að immunisera dýr með sullvökva eða ,,sable
tyndallisé". Og Lipijodol hefir reynst áhrifalaust til að drepa sullhausa.
Dévé er óefað mesti sullfræðingur sem nú er uppi. Við íslendingar
þurfum að sýna honum sóma, og sýna um leið, að við kunnum öðrum
þjóöum fremur að meta hans mikla vísindastarf og ágætu viðleitni í að
berjast gegn þeim sjúkdómi, sem lengi hefir sett blett á land vort og þjóð.
Læknafélag íslands og Háskóli vor ættu (eins og eg hefi áður sagt), að
gangast fyrir því, að Alþingi veiti styrk til þess að honum verði boðið
hingað til landsins á komandi hausti.
Stgr. Matthíasson.
Umburðarbréfið og undirtektirnar.
Ur því að komin eru áramót, finst mér tími kominn til þess að
gera nokkra grein fyrir svörum lækna, þó ekki hafi allir svaraö enn — eft-
ir 7 mánuði! Nokkur afsökun er það, að útsending bréfsins hefir bersýni-
lega lent í fyrstu í einhverri óreiðu, þó ekki viti eg hvað valdið hefir, því
margir læknar fengu það alls ekki. Þegar þetta kom upp úr kafinu, var
það sent á ný til allra utan Rvíkur, sem ekki höfðu svarað. Og þó er ástæða
til þess, að minna lækna á, að það er háskalegur vani og ekki samboðinn
góðum mönnum, að ,,salta“ bréf sín og skýrslur. Allir hafa tima til aS svara,
ef þeir kunna að svara stutt og gagnort!