Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.01.1946, Page 16

Læknablaðið - 01.01.1946, Page 16
4 LÆKNABLAÐIÐ á útbrotin við scarlatina, þó að þau dugi oft vel gegn fylgi- kvillum skarlatssóttar og geti komið að góðu lialdi sem varn- arlyf (propliylacticum). Ekki verður heldur séð, að sulfalyf flýti fyrir myndun mótefna og má því ekki liætla of fljótt við lyfin, þó að bregði til l)ata. Að öðrum kosti má l)úasi við að sýkingin blossi upp á nýjan leik. Sulfalyf eru gerð óvirk af paraaminobenzosýru og öðrum skyldum efnum svo sem novo- caini, benzocaini og ortho- formi. Svipuð áhrif liafa einn- ig peptonar. Sum deyfilyf, einkum novoeain, rugluðu menn allmjög í ríminu lil að byrja með. Efnafræðilega er það svo skylt venjulegu sulfa- lyfi, að bæði valda samskonar litarbreytingu við próf það, sem kennt er við Bra*ton og Marshall. Við rannsókn á magni sulfalyfja í líkamsvess- um, þóttust menn stundum finna fáránlega mikið, vegna þess ao novocain ■>’;;)• notað til staðdevfingar og hafði þá stundum eittlivað af því bland- azt vökanum, sem tekinn var til rannsóknar. Þarf naumast að taka það fram, að aldrei skal nota novocain eða skvld efni við sjúklinga, er fá sulfa- iyf- Paraaminobenzosýra er nauðsynleg fyrir vöxt og við- gang margra sýkla og virðist sýran vera nauðsynlegur liður í enzymkerfi þeirra. Er lialdið að sulfalyfin, vegna skyldleika síns við sýruna, tengist þessari enzymkeðju. En þar fá sýkl- arnir steina fyrir brauð og efnaskipti þeirra bíður alvar- lega hnekki. Tilraunir á dýr- um sýna einnig biokemiskan skyldleika paraaminobenzo- sýru og sulfalyfja. Ef dýrun- um er gefið fóður, sem er sýru- snautt en blandað nokkru af sulfanilamiði, koma að vísu í ljós einkenni um fjörviskort, en þó mun minni heldur en ef sulfanilamiði er slcppt úr fóðr- inu. Enzymkerfi sýklanna teng- ist auðveldar paraaminoben- zosýru heldur en sulfalyfjum, og þarf því mikið af þeim til þess að hamla á móti örlitlu af sýrunni. Til þess að vega á móti einum hluta af paraami- nobenzosýru þarf 1600 hluta af sulfanilamiði, 100 hluta af sulfapyridini og 36 hluta af sulfathiazoli. Efni, sem evða áhrifum sulfalvfja, finnast auk þess í greftri, dauðum sýklum og dauðum eða mjög sködd- uðum vefjum, enda er það löngu sýnt og sannað, að áhrifa sulfalyfja gætir oft næsta litið, eftir að ígerð er komin. Einnig er nauðsynlegt að fægja sár og nema burt skaddaðan vef, áð- ur en sulfalyfin eru borin í þau. Sulfalyf eru í eðli sínu væg- ar sýrur og klofna (dissocier

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.