Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.1946, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 01.01.1946, Blaðsíða 34
22 L Æ KNABLAÐIÐ ið liggur við, reyna það, ef önnur lyf hafa komið hitan- um af stað. Útbrot. Öll algengustu sulfalyf geta valdið útbrotum og mjög eru þau breytileg að útliti. Oft líkj- ast þau mislingum, en stund- um svipar þeim mest til skar- latssóltar. Eftir notkun sulfa- thiazols, sjást oft úthrot, sem eru nauðalík erythema nodos- um. Ef ekki er liætt strax við lyfin, geta útbrotin magnast svo, að úr þeim verði derma- titis exfoliativa. Hjá sjúklingi, sem fær sulfalyf í fyrsta sinn verður útbrotanna venjulega fyrst vart eftir rúma viku. Hafi hann áður notað lyfin og orð- ið ofnæmur fyrir þeim, slær útbrotunum stundum út, þeg- ar eftir fyrsta skammtinn. Ráð- legast er að hætta við lyfið und- ir eins og útbrotanna verður vart, láta sjúklinginn drekka mikið eða gefa honum salt- vatn í æð. Þess má geta, að óráðlegt er að láta sól skina á sjúklinga, sem fá sulfalyf, og ekki mega þeir lieldur vera í ljósböðum á meðan. Sumir telja líka röntgengeisla var- Iiugaverða, og telja, að lyfin geri menn stundum ofnæma fyrir hverskonar geislum. Conjunctivitis og scleritis sjást ósjaldan, einkum eftir notkun sulfathiazols, og þykja varhugavei’ðir fvlgikvillar. Leucopenia og agranulocytosis. Leucopenia getur verið af- leiðing alvarlegrar sýkingar og eru þá sulfalyf oft eina rétta meðferðin. Falli liinsvegar tala livítra hlóðkorna ört á meðan lyfin eru notuð og komist hún niður fyrir 4000 (í mm3), má húast við að hætta sé á ferð- um, og er þá ráðlegast að liætta lyfjagjöfinni, nema lífsnauð- syn megi teljast að halda henni áfram. Talað er um agranulo- cytosis, ef hvít hlóðkorn verða færri en 2500 og neutrophil leu- cocytar eru innan við 1000 (í nnn3). Á undan agranulocytos- is fer oft hitaliækkun, sárindi i liálsi, höfuðverkur og magn- leysi. Nauðsyn her til að hætta þegar við lyfið og auka þvag með saltvatnsgjöf. Blóðgjöf get- ur einnig komið að góðu haldi. Talsvert hefir verið um það deilt, livort nota ætti sulfalyf við agranulocytosis af öðrum uppruna. Einmitt hér hafa sumir læknar, að því er virð- ist, fengið góðan árangur af notkun sulfalyfja og telja þeir. að þau séu oft það eina, seir geti hjálpað sjúklingunum til þess að vinna hug á sýkingu, sem jafnan er orsök eða fylgi- fiskur agranulocytosis og ann- ars myndi riða þeim að fullu.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.