Læknablaðið - 01.01.1946, Qupperneq 18
6
LÆKNABLAÐIÐ
Þó hafa margir læknar tekið
upp þann undarlega sið, að á-
vísa sulfapyridini, sulfathiazol
og sulfadiazini í suppositoria.
Lyf, sem þannig eru gefin,
koma oft að sáralitlu haldi, og
mætti nærri því eins vel kasta
lyfjastautum þessum í kopp-
inn. Sulfanilamið nýtist þó all-
vel, ef það er gefið í retentions-
clysma, en mun betra er þó að
taka það inn.
Eftir að sulfanilamið er kom-
ið inn í blóðið, dreifist það
nokkurn veginn jafnt um ali-
an líkamann, nema hvað líl-
ið finnst af því í fitu og bein-
um. í magasafa finnst mcira
af þvi en i öðrum líkamsvess-
um, og það eins þó að lyfið
hafi verið gefið undir húð eða
inn i æð. Sama er að segja um
sulfapyridin. Bæði þessi lyf
valda oft ldígju og uppköstum
og kj'iitiii þau óþægindi að ein-
hverju leyti að eiga rót sina
að rekja til þess, að magakirtl-
arnir taka þessi efni úr blóð-
inu og ski'a þeim inn i mag-
ann. Af sulfathiazc li og sulfa-
pvridini hefir fni.dizt mun
meira í galli heldur ei: i blóði
og mætti þvi ætla, að þessi lyf
kæmu að nokkru gagni við sýk-
ingar i gallvegum. Við chole-
cystitis hafa þó lyf þessi, eins
og vænta má, oft brugðizt von-
um lækna.
Slufalyf skiptast oft harla
misjafnt milli plasma og blóð-
korna. Sé lyfjamagnið í plas-
ma sett 100, þá finnst í blóð-
kornum sulfanilamið nokkuð
yfir 100, sulfapyridin 60, sulfa-
thiazol 30 og sulfadiazin 50—
60. Litur út fyrir, að lyfin séu
ekki holl fyrir rauðu blóðkorn-
in, því að stundum ber á an-
æmia hæmolytica og einna oft-
ast eftir notkun sulfanilamiðs.
Sulfalyf siast ekki öll jafn
greiðlega inn i liquor cerebro-
spinalis. Ef miðað er við plas-
ma sem 100, verður útkoman
í mænuvökva: Sulfanílamið
80, sulfapyridin 65—75, sulfa-
thiazol 30 og sulfadiazin 60—
80. Er talið, að lyfið bindist
nokkuð plasmaeggjahvítu, og
þess vegna sé magnið svo mik-
ið minna í liquor. Ætti því
mikið af sulfathiazol að bind-
ast eggjahvítunni, en lítið af
sulfanílamíð. Mætti því ætla,
að sulfathiazol væri gagnslítið
við meningitis, enda telja flest-
ir, að sulfadiazin sé þar áhrifa-
mesta lyfið. Sumum hefir þó
reynzt sulfathiazol furðu vel
við meningitis og kynni gata
þess að vera nokkuð greiðari
inn í mænuvökvann, þegar
bólga er í heilahimnum.
Nokkur hluti sulfalyfja teng-
ist í líkamanum, sennilega i
lifrinni, við acetyl. Sulfanila-
mið hreytist þvi í acetylsulfa-
nilamið, og er það lítill eða
enginn læknisdómur eftir þá
breytingu. Hins vegar er til all-
gott lyf, sem nefnist sulfaceta-
mið. Er það að því leyti frá-
L