Læknablaðið - 01.12.1950, Blaðsíða 24
146
LÆKNABLAÐIÐ
dómsins og hvatti til þess að'
reyna að nema æxlið á brott
í gegn um bronchoskop.
Árið 1942 greindu Clerf og
Bucker frá 243 sjúklingum með
bronchus æxli, bæði ill- og góð-
kynja, sem þeir höfðu rannsak-
að, meðal annars með bronch-
oskopi, á undanförnum 15 ár-
um. 35 þeirra, eða 12%, höfðu
verið með bronchus adenom.
Lowry og Rigler töldu æxlið
ekki eins algengt og Clerf og
Bucker gerðu. Álitu þeir að 6%
allra æxla væru adenom, en
töldu það þó algengast góð-
kynja æxla.
Menn hafa ekki verið á eitt
sáttir um úr hvaða frumum
adenomið myndast og hafa
komið fram þrjár höfuðskoð-
anir um það atriði. Stout held-
ur því fram aö flest æxlin
myndist úr frumum þeim, sem
Hamperl lýsti fyrstur og nefndi
,,onkocyta“. Forster-Carter tel-
ur æxlið svipaðs eðlis og blönd-
unaræxli í munnvatnskirtlum
og að það sé ávallt myndað úr
kirtlum slímhúðarinnar. Willis
styður einnig þessa kenningu.
Loks telja Womack og Graham
að uppruna æxlisins sé að leita
í truflunum á bronchus mynd-
un á fóstursskeiði.
Það er athyglisvert, að æxlið
mun sjaldan eða aldrei mynd-
ast í bronchus, sem er minni
en 1 cm. í þvermál, og auðveld-
ar þetta mjög sjúkdómsgrein-
inguna. Áður fyrr töldu menn
að æxlið yxi einungis inn í
bronchus, en seinni rannsókn-
ir hafa sýnt að svo er ekki,
heldur vex það oftast einnig
út frá bronchus, inn í lungna-
vefinn. Þegar æxlið stækkar,
verður það mjóst um miðbikið,
svipað og stundaglas í lögun.
Sá hlutinn, sem að bronchus
veit, er þá fastur á stilki og
sveiflar með önduninni. Síðar,
þegar æxlið stækkar og fyllir
út bronchus göngin, leitar það
frekar upp en niður eftir
bronchus, vegna hóstans.
Til skamms tíma var sú
skoðun ríkjandi, að adenomið
væri algjörlega góðkynja æxli,
en í seinni tíð hafa þó komið
fram raddir, sem halda því
fram, að æxlið sé ekki eins sak-
laust og fyrr var talið. Telja
þeir að það hafi suma eigin-
leika illkynjaðs æxlis og að þaö
sé að minnsta kosti „poten-
tielt malignt“, þótt skyldleiki
þess við góðkynja æxli sé meiri.
Styðja þeir skoðun sína meðal
annars við nokkur tilfelli, sem
Adams birti lýsingu á 1942,
þar sem hann kvaðst hafa
fundið þrjá sjúklinga með
meinvarp (metastasis) út frá
bronchus adenomi, í einu til-
felli í hryggjarlið, öðru í lifur
og þriðja í bronchus-eitlum.
Anderson hefir sömuleiðis
fundið eitt tilfelli svipaðs eðlis.
Afbrigði þessi, þótt sjaldgæf
séu, eru þeim mun undarlegri
sem öll byggingin ber annars