Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1951, Page 15

Læknablaðið - 15.03.1951, Page 15
LÆKNABLAÐIÐ 5 ar, sjúkling tekur í bakið þeg- ar fæti er lyft beinum. Verk- irnir geta orÖið mjög sárir, svo að þeir halda vöku fyrir sjl. um nætur og jafnvel svo, að hann berist lítt af, ef hann ætlar að hreyfa sig. Hann hlíf- ist við að liósta og hnerra því hvorttveggja eykur verkinn stórlega. Verkurinn er ekki allt af bundinn við bakið eitt, oft eða oftast leggur hann út í lendar og stundum niður gang- lim. Stundum fylgja ischias- þrautir með tilfinningatruflun- um, reflex-hreytingum og jafn- vel minnkuðum krafti í rétti- vöðvum fótar. Er þá ógerlegt að greina þetta frá hryggþófa- sprungu og raunar venjulega álitið vera það. í þessum til- fellum sést oft þykknun á liga- mentum flavum og rótin getur verið hálfföst rétt eins og þeg- ar hún riður á þófakjarna. Venjulega er þá neðsti lenda- liður óvenju laus og hreyfan- legur. Næsta foramen inter- vertebrale ofan spjaldhryggj- ar er minna en hin sem ofar koma, en fyrsta sacral-rótin, sem gengur þar út, er gildasta taugarótin. Ef nú hryggþófinn þynnist, minnkar gatið enn og má þá ekki miklu muna til þess að þrýsti á taugina, a. m. k.við sumar hreyfingar. Ekki er samt víst að ischias-verkur- inn stafi ætíð frá þrýstingi á taugarót, sem liggur út í n. ischiadicus, heldur getur líka verið um svokallaðan „reflect- ed pain“ að ræiða. Sársaukinn getur raunverulega verið í höndum eða liðum, sem eru innerveraðir frá öðrum seg- mentum, en skammhlaup verð- ur í sársaukabrautum svo sjl. finnst verkurinn koma annars staðar frá en raunverulegt er. Eins og fyrr var sagt getur margt orsakað verk i baki neð- anverðu annað en anomaliur eða los á neðstu lendaliðum. Hér er ekki tími fyrir langar upptalningar, en þó þykir lilýða að nefna það, sem al- gengast er eða sízt má sjást yfir. I. Kvillar í nýrum, ureteres, prostata, vesiculae sem- inalis eða þvagblöðru. II. Kvillar í grindarlíffærum kvenna, legskekkjur, æxli i legi, æxli eða cystur í eggjastokkum, salpin- gitis, endometritis. III. Sjúkdómar í neðstu hryggjarliðum, tubercul- osis, lues, ostemyelitis, tumorar, spondylarthritis. IV. Tumorar í cauda equina. V. Sjúdómar í articulatio sacro-iliaca annari eða báðum. VI. Þykkni og herpingur í fascia lata. Þarf að sjálfsögðu að greina þessa sjúkdóma frá áður en til meðferðar kemur þvi annað á við þeim. Tíðasta meðferð á þessuni

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.