Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1951, Blaðsíða 16

Læknablaðið - 15.03.1951, Blaðsíða 16
6 L Æ. K N A B L A Ð I Ð verkjum er physiurgisk, hiti, nudd, hvíld, harður heður, mjaðmabelti. Stundum er sjrk- urblöndu spýtt inn í vöðvana eða impletol eða ómengaðri novocain upplausn og er þá deyfilyfinu sprautað í vöðv- ana og alla leið inn á liryggj- arhoga. Er stundum ágætur árangur af þessu, en venjulega ekki varanlegur. Ef hönd togna verða þau aum og sárs- auki kemur við hreyfingu. Vöðvarnir dragast þá saman til þess að hindra hreyfinguna — defence musculaire — en þverrákóttir vöðvar þola elcki langvarandi samdrátt, þá fer að verkja í þá. Innspýtingar brjóta þennan defence. Venjulega dugar physio- therapia til þess að halda þessu fólki vinnufæru og óþæginda- litlu oftast nær, sérlega ef það getur hlíft sér við erfiði. Dug- ar enda oft að skipta um at- vinnu þeirn, sem það geta. En þó nokkuð margir verða eftir, sem eru óvinnufærir löngum og oft illa lialdnir þrátt fyrir fullkomna phvsiurgiska með- ferð og ekki geta allir setzt í helgan stein. Húsmóðir verður að gæta hús og harna. Hún er á stjái myrkranna á milli og lengur oft og tíðum. Hún verður að standa við matseld, þvo gólf og þvotta. Mikill minni hluti heimila er þannig settur að hann geti borgað fyrir full- komna húshjálp og þau fáu, sem geta, fá hana varla. Stúlk- ur vilja vinna í verksmiðjum eða veitingastofum og taka flest fram yfir hússtörf. En heimilið verður að ganga, hús- móðirin má ekki leggja upp laupana. Maður hefir stundað sjó alla sína ævi. Hann hefir misst af einu skiprúmi eftir annað vegna þess að hann hefir orð- ið að leggjast í land æ ofan í æ vegna þrauta. Hann kann ekki til annarra verka og þó hann kynni, eru þau vandfeng- in. Ekki geta allir verið á skrif- stofum og raunar vafamál hvort við stöndum undir öllum þeim skrifstofuháknum, sem hér hafa risið upp. Svona má lengi telja. Þessu fólki má hjálpa með því að festa neðstu hryggjar- liðina einn eða tvo við sacrum. Er það í rauninni það sama og að lengja spjaldhrygginn um einn eða tvo liði upp á við. Með þessu er numin í burtu or- sökin til verkjanna, óeðlilegur hreyfanleiki liðanna eða skökk áreynsla á liðamót, ofrevnsla á höndum o. þ. u. 1. En það er með þessa aðgerð eins og aðr- ar, að maður þarf að vera hæfilega íhaldssamur. Þetta er nokkuð stór aðgerð og fólkið er tekið úr umferð í 5—8 mán- uði. Þurfa þvi að vera ákaflega sterkar líkur fyrir því að verk- irnir stafi af losi eða anomali-

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.