Læknablaðið - 15.03.1951, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐIÐ
27
klíniska gilcli lyfjanna grund-
völlurinn fyrir flokkuninni.
I 1. kafla A eru skráð lyf
og önnur almenn lyf, sem eru
greidd að hálfu leyti. í saman-
burði við önnur þýðingarmeiri
er matið á lyfjunum í þessum
flokki vafalaust rétt í flestum
tilfellum, en þó ekki í öllum.
Strophantin, tabl. fol. digitalis,
nitroglycerin og þvi skyld lyf,
astlnnalyf og thiouracilsam-
hönd geta verið lífsnauðsvnleg,
og eru alltaf nauðsynleg til þess
að sjúklingar geti fengið starfs-
orku og haldið henni. Væri því
full ástæða til þess að greiða
þessi lyf að % hlutum, eða að
öllu leyti, og það því fremur
sem sjúklingar þurfa að nota
þau lengi. Það vekur undrun
að finna amphetamin í þessum
flokki og það í fleiri en einni
mynd. Síðastliðið ár hefir þetta
lyf verið háð hinum sömu
reglum og nautnalvf með þeirri
afleiðingu, að notkun þess hef-
ir minnkað að miklum mun.
Lyfið hefir mjög takmarkaða
klíniska þýðingu, en er hættu-
legt, vegna þess hve það er
misnotað, og væri því rétt að
athuga, hvort sjúkrasamlög
ættu að greiða það án sam-
þykkis trúnaðarlæknis. Skjald-
kyrtillyfið tahl. threoideae er
ýmist greitt að hálfu leyti eða
öllu, shr. 1. og 3. kafla. Lyf
þetta er lífsnauðsynlegt þegar
um hvpothyreoidismus er að
ræða, en í öllum tilfellum
öðrum er verkun þess mjög
vafasöm, og getur verið lífs-
hættuleg, t. d. þegar lyfið er
gagnrýnislaust notað sem
megrunarlyf, en að því kveður
töluvert hæði hérlendis og
annars staðar. Það er því á-
stæðulaust að gefa læknum
undir fótinn til þess að nota
lyfið í þeim tilgangi, en það er
greinilega gert á hls. 57.
Allmörg ný lyf eru í þessum
reglum, sem ekki voru í þeim
gömlu, og eins hafa ýms lyf,
sem áður þóttu góð og gild, ver-
ið felld hurt, bæði vegna þess,
að þau liafa ekki reynzt raun-
hæf, og eins vegna þess, að
önnur ný og betri hafa gert
þau úrelt. Hvað þetta snertir
hefði öllum að skaðlausu mátt
hreinsa betur til. Hvgg ég að
fáir læknar telji sig nú hafa
mikla þörf fyrir eftirtalin Ijrf:
aconitinum, agaricinum, aeth-
eroleum santali, decoctum
uvae ursi, extractum colocyn-
thidis, podophyllinum, spart-
eini sulfas, og tinctururnar —
-asae foetidae. -capsici, -digi-
talis, -gallae, -lobeliae, -pim-
pinellae. Fleiri dæmi mætti
nefna um lyf, sem nú má telja
úrelt, t. d. járnsamhönd, sem
að aðalefni innihalda ferricar-
bonat og ýms gömul hægða-
lyf.
í 1. kafla B eru flokkuð ýms
sérlyf, sem greidd eru að hálfu
leyti. Er það stuttur listi í sam-
anburði við þann fjölda, sem