Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1951, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.03.1951, Blaðsíða 33
LÆKNABLAÐIÐ 23 slaðar eru sérstakir skóla- læknar, sem ekkert gera ann- að, en fullt eins vel hefir gefizt, að starfandi læknar hafi á hendi eftirlilið, og skipti þá tíma sínum á milli skólaeftir- litsins og almennra læknis- starfa, og má skólaeftirlitið ekki verða hornreka fvrir öðr- um störfum, eða algjört auka- starf, þá er Iiætt við að áhug- inn slævist. Þess vegna má ekki húta starfið alltof mikið niður, þar sem öðru verður við komið. Niðurlagsorð. 1. Hugleitt hefir verið í upp- hafi þessa erindis, hversu geysi þýðingarmikið velrækt skóla- eftirlit getur verið fyrir fram- tíðarheilbrigði horgaranna, og hversu víðtækl það starf raun- verulega þarf að vera. 2. Lýst hefir verið í stuttu máli sögu og framkvæmd skóla lækninga hér á landi og nokk- uð drepið á erlent skólaeftirlit. 3. Bent hefir verið á, að al- gerlega hafi verið vanrækt áð framfylgja settum lögum um skólaeftirlit, með því að láta undir höfuð leggjast að semja reglugerðir og leiðbeiningar, sem nauðsvnlegar verða að teljast, og koma á eftirliti og skipulagi, sem er undirstaða velrækts skólaeftirlits. Hér liafa framkvæmdastjórnir heilbrigðismála og fræðslu- mála i landinu lmndsað tvenn lög, sem Alþingi hefir sett, fræðslulögin frá 1936 og fræðslulögin frá 1946, hvað þetta snertir. Hins vegar hefir ekkert verið til sparað að fram- kvæma lögin að öðru leyti, og með ærnum kostnaði í skólum og kennaraliði, að hneppa börnin i sem lengst skyldu- nám, án tillits til hæfni og vilja, og þannig oft ofbjóða andlegri og líkamlegri heilsu þeirra. 4. Vegna þessa skipulags- leysis í skólaeftirlitinu, ríkir enn hið mesta ósamræmi í nafnanotkun og í mati ein- stakra skólalækna á heilbrigð- inni annars vegar og sjúk- dómseinkennum hins vegar, og skortir þannig enn allan grund- völl undir samanburð, og fer þannig mikið starf í súginn, er annars gæti orðið til uppörv- unar og hvatningar, og gæti sýnt svart á hvítu, hvernig heilbrigði skólabarna raun- verulega væri í hverju hverfi miðað við aðra staði. 5. Það er augljóst, að hér er brýn nauðsyn aðgerða ef skóla- eftirlitið á, í framtíðinni, að geta skipað þann sess í heil- brigðismálum þjóðarinnar, er því her. 6. Það þarf að hvetja fræðslu- málastjórnina til að fram- kvæma XI. kafla laga um fræðslu barna (nr. 34. 29. apríl 1946), ]jað er kaflann um lieil- brigðiseftii'lit i skólum.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.