Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1951, Side 27

Læknablaðið - 15.03.1951, Side 27
LÆKNABLAÐIÐ 17 kvæðrar heilbrigði er að vísu að finna í skipulagi bæjarhlut- ans, sem við búum í, og í vatns- og skolpleiðslum hverfisins, og hvar á hnettinum við kunnum að eiga heima, o. s. frv. En að þessu slepptu verður, þegar miðað er við einstakl- inginn, makaval foreldranna, og sköpun heilbrigðs fjöl- skyldulífs grundvallandi fyrir framtíðarheilbrigðina, — að vissu marki. Svo kemur mæðra- og ung- barnaeftirlitið til sögunnar. Þá er hér hjá oss glompa í kerfinu, sem eigi lokast fyrr en við sjö ára aldur, en þá er tal- ið, eins og nýlegar rannsóknir sýna, sem síðar verður getið nánar, að aðeins rúmur þriðj- ungur barnanna séu kvillalaus, ef tannsk. eru undanþegnar. Skólaeftirlitið og heilbrigð- isráðstafanir i sambandi við það,byggist á tveim megin- staðreyndum. 1. Skólalífið er börnunum að sumu leyti óeðlilegt, og þarf því að draga úr og fvrir- byggja hættur, sem af því kann að leiða fyrir þau með stöðugu og nákvæmu eftirliti, og að- gerðum í sambandi við það. Og nú nýlega hefir námið enn verið þyngt og skólatím- inn lengdur. Hér er um að ræða: a. Nýtt umhverfi, fjarri vernd heimilanna. h. Of miklar lcjærsetur og innivera. c. Fjölmenni, með aukinni smithættu. d. Námskröfunum virðist oft lítt í hóf stillt, þegar litið er til skólasetunnar, heimavinnu og ferða til og frá lieimili og skóla. e. í heimavistarskólunum ska^ja mataræðið, frítím- arnir og allur aðbúnaður ný vandamál. 2. Á liinn hóginn gefa skól- arnir ágætt tækifæri til að stunda heilsuverndarstarfsemi, þar sem þar er hægt að ná til og fylgjast með hverju einasta barni í landinu um margra ára bil. Loks eru svo sérstök atriði, sem koma við og snerta skóla- eftirlitið meira og minna, en þar er helzt að geta þessara: a. Vandræðabörn. b. Fávitar. c. Mataræði skólaharna. d. Matgjafir i skólum þeg- ar svo ber undir, þar með talið lýsi og mjólk. e. Ljóslækningar. f. Tannlækningar. g. Veil börn. h. Nýbvggingar skóla. i. Utiskólar. j. Upplýsingastarfsemi. Af þessu öllu má verða Ijóst, að hér eru næg verkefni fyrir höndum. Við höfum séð og fylgzt með

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.