Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1951, Page 31

Læknablaðið - 15.03.1951, Page 31
L Æ K N A B L A Ð I Ð 21 Það næsta, sem til athugun- ar kemur er hið mjög svo mis- munandi framtal á liáls- og kokeitlastækkun, en þar er um að ræða tölur frá 1% upp í 100%, og er þar, að vísu miðað við sjúkdómseinkennin, en ekki sjúku börnin. (Tafla II). Útaf fyrir sig þarf engan að undra þetta ósamræmi i fram- talningu og nöfnum, það staf- ar einfaldlega af þvi, að engra leiðheininga hefir verið völ í þessu efni. Fræðibækur okkar fást fyrst 'og fremst við að lýsa hinum sjúka líkama, og öll okkar revnsla og þjálfun liefir feng- izt við sjúkrabeð og á lækn- ingastofum. Þegar svo læknirinn í fyrsta sinn kemur i skólaskoðun stendur hann andspænis gjör- óliku viðfangsefni, barni, sem á að vera heilbrigt og ekkert kvartar. Hér verður að mæla á allt annan mælikvarða. og þann kvarða verður læknirinn að húa sér til sjálfur á meðan engra leiðbeininga er völ, þessi mælikvarði á raunar að mæla heilbrigðina, hina jákvæðu heilbrigði, hurtséð frá sjúk- dómum. Sama gildir um nöfn- in, þar ræður hending ein, að einhverjir tveir noti sömu nöfn, nema hér i Reykjavíkur- skólunum, en ekki skal ég dóm á það leggja, hvort eigi sé heppilegri nafna völ. Ég liefi hér aðallega dvalið við mat á háls- og kokeitla- stækkun, og drap áður á van- eldi, en margt fleira kemur til greina, svo sem hryggskekkja, ilsig, naflatog o. fl. o. fl., sbr. töflu I. Skólaeftirlit erlendis. Um miðja 19. öld (1848) fór fram rannsókn á heilbrigði skólanemenda í Frakklandi, sérstaklega til þess að komast eftir bversu manneldi væri háttað meðal nemenda, með til- liti til útbreiddrar kirtlaveiki og beinkramar. Talið var, að dýrafæðu myndi skorta í fæðið, en ekki var þó úr bætt með matgjöf- um, fyrr en Victor Hugo, 12 ár- um seinna, stofnaði til mat- gjafa á eigin kostnað i skóla einum, og varð það til að ryðja brautina. (10). Skólaskoðanir voru síðan teknar upp í sumum ríkjum Bandarikjanna um 1880, upp úr aldamótum i Englandi, á Norðurlöndunum og víðar, og hcfir skólaeftirlitið æ síðan verið í hávegum haft í þessum löndum, og er skoðað, sem einn þýðingarmesti þátturinn i heilsuverndarmálum þjóð- anna. Algent er, að gerðar séu sér- rannsóknir i skólunum auk reglulegrar skoðunar, þar sem notuð eru nýjustu tæki og tækni, með hliðsjón af síðustu

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.