Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1951, Síða 39

Læknablaðið - 15.03.1951, Síða 39
LÆKNABLAÐIÐ 29 við, að læknar kunni því illa, að geta ekki skrifað þau án þess að baka sjúklingum sín- um mikil útgjöld. Fyrst skal telja B-complex samböndin — vandræðagrip lækna og sjúkra- samlaga. Þau verða ekki greidd béreftir. Kostir þessa lyfs eru þeir, að það inniheldur bæði aneurin, nicotinsýru og lacto- flavin, sem vitað er með vissu að hafa þýðingu í humanpa- thologiunni, en auk þess pantothensýru og pyridoxin, og munu síðasttalin efni vera á- stæðan til þess að lyfið er ekki talið hæft á skrá. Úr þessu hef- ir verið bætt með því að setja í viðaukann lyf úr amerísku lyfjaskránni, sem heitir tab- ellae triasyni B. Það inniheldur aneurin, nicotinsýru og lacto- flavin og er greitt að hálfu leyti. Þótt ýmis önnur óskráð vitaminlyf séu á þessum lista, þá er samt lítil hætta á því að vitamintherapian verði fyr- ir miklum áföllum við það. Fyrir því er séð í 1. kafla. Tabl. magnii trisilicatis c. belladon- ae er ekki greitt nema skrifað sé tabl. magnesii trisilicatis c. belladonnae Ph. Svec. 1 stað auspensio aluminii hydroxydi- eða — phosphatis skal skrifa gelatum aluminii hydroxydi USP eða — phosphatis USP, en þau lvf eru greidd að hálfu levti. I 6. kafla eru ýmis ákvæði. Hið fyrsta er um lyfjanefnd Tryggingastofnunar ríkisins. Skulu tveir nefndarmanna vera læiknar, en sá þriðji lyfja- fræðingur. Væri það ekki heppileg ráðstöfun, að annar læknirinn væri sérfræðingur í lvflæknisfræði? 3. ákvæðið er um lyfseðla, en þá mega sjúkrasamlögin ekki greiða, nema þeir séu undirritaðir af lækni. Eru þar með felldar úr gildi greiðslur fyrir símalyf- seðla. Óneitanlega hefir það sparað fólki mikla fyrirhöfn að geta hringt til læknis og sótt lyfið í lyfjabúðina án verulegr- ar tafar. Það lendir venjulega á húsmæðrum að sjá um lyfja- kaupin, en þær eru flestar hjálparlitlar heimafyrir og eiga erfitt um snúninga áður en krakkarnir eru komnir á legg. Fólk sem vinnur utan heimilis verður að fá frí úr vinnunni til þess að ná í lyf. Ég hefi heyrt margt ljótt orð í símanum í garð S.B. síðan þetta varð að lögum. Það verður fróðlegt að sjá, hve margir liéraðslæknar komast hjá því að brjóta þetta ákvæði. 4. ákvæðið fjallar um greiðslu á hormónlyfjum. Sam- kvæmt því er sjúkrasamlögum óheimilt að greiða viss hor- mónlyf, ef þau eru ætluð börn- um undir 16 ára, en undan- tekningar fást þó, ef um er að ræða ákveðna sjúkdóma, t. d. dystrophia adiposogenitalis og kryptorchismus. Þessi undan- tekning er með öllu óþörf livað

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.