Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1955, Page 31

Læknablaðið - 15.10.1955, Page 31
LÆKNABLAÐIÐ 139 delta í hug um þá Fæueyjagikki íslenzkrar læknastéttar, sem að því er virðist fyrir einnar sam- an fordildar sakir bera annars góð og gild fræðsluerindi á borð fyrir ólæknislært fólk á þeirri andhælislegu djöfla- þýzku, sem þeir kalla islenzkl læknamál og engum öðrum en læknum er ætlandi að grynna nokkuð i. Þeir læknar, ef nokkrir kvnnu að vera, sem betur mega, en halda því þó lil streitu að ræða og rita um fræði síu ó því brakináli, mættu bugleiða málfar sitt frá al- mennu þrifnaðarsjónarmiði. Vera má, að einhverjir þeirra kæniust að þeirri niðurstöðu, að með því óvirði þeir ekki eingöngu þjóð sína og tungu, tilheynendur og lesendur, lield- ur einnig sjálfa sig með þeim andlega óþrifnaði, sem verður ekki til annars jafnað en þess að vanrækj a þrif líkama síns, ösla á forugum skóm inn i vistai'verur óviðkomandi fólks og láta vaða ekki einungis á öll gólf heldur upp um alla veggi. Svo ósamboðinn sem slíkur ódámsháttur er mennta- mönnum yfirleitt, sæmir liann, eins og annar subbuskapur, læknum sýnu verst. Það er einna líkast því að ganga að læknisverkum með kámugar hendur. Enga trú hef ég' á því, að þró- un niðurlægingar islenzkrar læknastéttar sem mennta- mannastéttar verði svo rökrétt, ’að stéttin afsali sér af eðlilegri hógværð öllu tilkalli til að heita menntamannastétt og breyti sér i hljóðláta iðnaðarstétt. Slíkt mundi illa samræmast stefnu tímanna, sem er berlega sú, að mestu skipti að heita vel, hvað sem því liður að vera. í háskólann verður lækna- fræðslan vafalaust sótt um langa framtíð, en ekki i iðn- skólann, að maður ekki tali um Landsmiðjuna, enda þólt nán- ast kunni að verða staðið und- ir merkjum liennar. En jafn- vcl þótt menn láti sér þetta vel lika, þarf til einhverra ráða að grípa, áður en íslenzk lækna- slétt stendur gersamlega mál- laus uppi með alla læknisfræð- ina „í lúkunum“. Og þróunin er ,einsýn, þó að hún sé ekki alls kostar liugnanleg. Hin margsérgreinda læknastétt hlýtur að koma sér upp einni sérgreininni ,enn, og sérfræð- ingur þeirrar greinar verður að fvlgja hverjum þeim lækni annarra sérgreina, sem ein- hverju hefur að miðla, jafnvel upp í sjálfa háskólastólana, þ. c. Oehlenschláger með hverj- um Thorvaldsen, til að tala fvrir hann, skrifa fyrir hann og — hugsa. 17. júni 1955. -----♦------

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.