Læknablaðið - 01.09.1956, Síða 29
LÆKNABLAÐIÐ
69
legt að ofnæmiseinkenna verði
vart hjá fjölda fólks, sem hefur
tilhneigingu og tækifæri til
þess.
Og það eru ekki aðeins þeir,
sem liafa fengið penicillini
dælt í sig, sem geta orðið of-
næmir. Möguleikarnir eru
margir til þess að skapa við-
kvæmnina fvrir því. Penicillin
er notað í ýms tannkrem og
þannig geta þeir, sem þau nota,
orðið viðkvæmir fyrir því. í
Roquefort osti er penieillin,
nægilega mikið til að valda við-
kvæmni hjá þeim, sem hans
neyta. í mjólk láta framleið-
endur stundum penicillin,
einkum þar sem kýr er með
júgurbólgu, til þess að halda
streptokokkunum niðri. Er
þetta auðvitað óleyfilegt, en
hefur þráfaldlega verið gert í
Ameríku. Þá geta menn orðið
ofnæmir fvrir penicillini ef
dælur, sem því er dælt með, eru
ekki hreinsaðar nægiLega áður
en dælt er með þeim í aðra
sjúklinga. Sumir læknar kunna
að hugsa sem svo, að ekkert sé
athugavert við að nola dælu til
þess að gefa lvf, ef hún er ný-
soðin og .ekkert hefur verið í
henni annað en penicillin.
Þetta er óverjanlegt, því að í
dælunni er nóg penicillin til
þess að sjúklingur með ofnæm-
istilhneigingu getur orðið við-
kvæmur fyrir því, svo að hann
þoli ekki penicillin þegar liann
þarf að fá það seinna. Allar
dælur og nálar, sem notaðar
liafa v,erið til þess að gefa með
antibiotica verða að hreinsast
vandlega og skolast áður en
þær eru notaðar handa öðrum.
I mænusóttar-bóluefni, sem
notað liefur v,erið í Bandarikj-
unum, hefur verið penicillin
og er það galli sem þvrfti úr
að bæta, því að meiri ofnæmis-
hætta virðist stafa af penicil-
lini en af öðrum antibiotica.
l7lestar hættulegar afleiðing-
ar af penicillini hafa komið
fram eftir dælingar, ,en dæmi
eru þess einnig að menn hafa
dáið af að taka það inn, þótt
það komi miklu sjaldnar fyr-
ir. Hætlulegt ofnæmi hefur
einnig sést eftir penicillin-úða
(aerosol) og eftir smyrsli, sem
er þó sjaldgæft, þótt þau geti
valdið útbrotum.
Penicillin-ofnæmið kemur
fram með tvennu móti:
1: Sem serum-veiki. þannig
að sjúklingurinn fær eftir ca.
10 daga ofsakláða, liðabólgur,
hita o. s. frv. Tíminn sem lið-
ur frá penicillingjöfinni getur
verið mislangur, allt frá einum
degi upp i 18 daga. Iaetta of-
næmisform verður að sama
skapi algengara, sem menn
hafa fengið penicillin oftar.
2: Ofnæmislost (anafylakt-
iskl schock). Eftir nokkrar sek-
úndur eða mínútur frá penicil-
língjöfinni fær sjúklingur
svæsið lost, svo að hætt er við
að hann deyi skyndilega, Það