Læknablaðið - 01.09.1956, Qupperneq 31
LÆKNABLAÐIÐ
71
fyrir þessari tegund ofnæmis
og sýndi fram á hvernig það er
bundið við acetyl-salicvlsýru,
en ekki við salicylsýru eða sölt
af lienni.
Para-amino-salicylsýra
(PAS) framkallar hlóðmynd
sem lítur út alveg cins og mo-
nonucleosis. Slíkur faraldur
kom upp i herklaspítala í Chi-
cago og var álitinn vanaleg
mononucleosis, unz grunur féll
á PAS, sem sjúklingarnir liöfðu
allir fengið í stórum stíl og hef-
ur síðar sannast að valdið get-
ur þessum breytingum á blóð-
myndinni.
Alkunnugt er, hve menn geta
verið næmir fyrir aspirini.
Margir fá mikinn bjúg í and-
Ht af því, svo að aldrei má gefa
þeim nein lvf með acetyl-sali-
cylsýru í.
Asthma. Samter flutti einn-
ig ýtarlegt erindi um asthma,en
ekki var mikið um nýjungar í
þvi. Iiann gerði grein fvrir því,
hvernig börnunum hættir við
að fá astlnna á afmælisdaginn
sinn og þegar þau fara í fri
og ferðalög, sem sýnir hvernig
sjúkdómurinn er liáður tilfinn-
ingalífinu. En annars er
astlnna lijá börnum langoftast
ofnæmissjúkdómur. Mótefnin
sitja í bandvefnum, og þegar
antigen kemur og mætir þeim,
myndast histamin, sem orkar
á háræðar, kirtla og vöðva.
Cortison verkar á bandvefinn,
hindur histamin i lionum, svo
að það nær ekki að losna.
Hjá fullorðnum er astlnna
oft allergiskt, en oft að miklu
leyti vagotoniskt. Hjá gömlu
fólki er það oft fibrotiskt, þ. e.
stafar af gamalli fibrosis í
lungum, sem gerir hjartanu
erfitt fvrir.
Sam Rose (Canada) hafði
tekizt að framkalla astlnna
hjá 90% af mönnum með því
að gefa þeim acetylcholin, en
ekki nema hjá 40—60% með
því að gefa þeim histamin.
Hann heldur að mikið af
asthma hjá fullorðnum stafi af
þvi sem hann kallar choliner-
gic substances. Samter hafði
líka fundið að ómögulegt er að
framkalla astlnna hjá heil-
brigðum, sem ekki eru ofnæm-
ir, með því að láta þá anda að
sér histaminúða.
Wittich frá Minneapolis
gerði grein fyrir electrolytum í
samhandi við astlnna. Alkunn-
ugt er að bjúgur er áberandi i
öllum ofnæmissjúkdómum og
því hætt við truflun á jafnvægi
málmsalta. Hann sagði að eft-
irfarandi upplausn liefði
reynzt sér hezt gegn ýmsum
ofnæmissjúkdómum. Þessi
upplausn, sem kennd ,er við
Rutler, er aðallega notuð lil
dæliuga inn i æðar. Hún er
samsett þannig: