Læknablaðið - 01.09.1956, Qupperneq 34
74
LÆKNABLAÐIÐ
Læknin^nleTÍi séra Jakftlis (■iiftiiiiMiri*-
sonai* á SaiiAak'irili
1 ritinu Læknum á Islandi,
bls. 57, sbr. neðanmálsgrein á
bls. VIII, létu höfundar þess
getið um séra Jakob Guðmunds-
son á Sauðafelli í Dölum, að
þeim hefði ekki tekizt að finna
órækar heimildir fyrir því, að
séra Jakob hefði haft formlegt
lækningaleyfi, þótt víða sé vikið
að því í ritum, að hann hafi
haft slíkt leyfi. Úr því að leyfið
var aldrei birt, var helzt ætlað,
að um tímabundið amtmanns-
leyfi til lækninga hefði verið að
ræða, sem nokkrum sinnum var
veitt leikmönnum, án þess að
hirt væri um að birta. Síðan hef
ég rekizt á fullnægjandi gögn
fyrir því, að séra Jakob hefur
þó haft leyfi æðstu stjórnar-
valda til að stunda lækningar. I
ofnæmisbreylingar af matar-
tegundum eiga læknarnir á-
reiðanlega eftir að læra margt í
náinni framtíð, en merkilegt
hv.e lílið er enn farið að skrifa
um ])essa hluti, sem skipta
miklu máli í dlaglegu starfi
læknisins og ganga undir ýms-
um nöfnum öðrum en ]>ví
rétta.
skjalasafni landlæknis geymist
landshöfðingjabréf, dags. 1. des-
ember 1879, þar sem landlækni
er tilkynnt, að ráðgjafinn hafi í
bréfi, dags. 3. nóvember s. á.,
fallizt á að veita séra Jakobi
veniam practicandi í Dalasýslu,
samkvæmt 6. gr. tilskipunar 5.
september 1794, þannig að hann
sem aðstoðarlæknir eigi að vera
háður eftirliti hlutaðeigandi
héraðslæknis (þ. e. héraðslækn-
is í Stykkishólmi).
Það hefur því ranglega verið
haft af séra Jakobi, að hann
væri tekinn upp í sjálft lækna-
talið í nefndu riti með mynd og
tilheyrandi æviágripi, þar sem
hann á heima meðal leikmanna,
sem fengið hafa formleg lækn-
ingaleyfi hér á landi, sbr. 5. lið
í skráningarreglum ritsins á
bls. VII—VIII.
Ég bið Læknablaðið fyrir
þenna fróðleik, svo að hann
geymist á vísum stað til leið-
beiningar þeim, sem síðar gera
úr garði íslenzkt læknatal, hver
sem tekur sig nú fram um að
leggja þar hendur að.
27/3 1956.
Vilm. Jónsson.
♦