Læknablaðið - 01.09.1956, Side 37
L Æ K N A B L A Ð I Ð
77
eða öllum héraðslæknum í hærri
launaflokk en frumvarpið gerði
ráð fyrir, en ekki bar sú við-
leitni neinn árangur. Hins veg-
ar fékkst nokkur hækkun á
launum nokkurra lækna, sem
vinna við rannsóknastofur eða
sjúkrahús og ekki hafa neinar
verulegar aukatekjur.
Taxtanefnd Ihéraðslækna
i’æddi við landlækni og forráða-
menn Trygginganna um hækk-
un á taxtanum vegna vaxandi
dýrtíðar og hækkandi kaup-
gjaldsvísitölu. Var málaleitan
þeirra tekið alllíklega og um
skeið stóðu vonir til að gjald-
skráin yrði hækkuð um 20 af
hundraði frá og með 1. júní. Á
þessu varð þó dráttur en félags-
stjórninni var gefið fyrirheit
um að hækkunin kæmi til fram-
kvæmda 1. júlí. Af ýmsum á-
stæðum varð enn dráttur á að
endanleg afgreiðsla fenist í
stjórnarráðinu og kom hækkun-
in því fyrst til framkvæmda frá
miðjum júlí. Greiðsla samlag-
anna til héraðslækna fyrir
heimilislæknisstörf hækkuðu þá
að sjálfsögðu úr kr. 5 í kr. 6 á
mánuði eins og gert er ráð fyr-
ir í 7. gr. samningsins.
Héraðslæknar hafa yfirleitt
veiúð óánægðir með samning
þennan og nokkrir þeirra hafa
þegar sagt honum upp og talið
hagkvæmara að vinna eftir
gjaldskrá héraðslækna. Töldu
sumir það harðla ósanngjarnt
uð héraðslæknar þessir bæru
nálega ekkert úr býtum fyrir
læknishjálp í sjúkrahúsum.
Samningurinn kveður svo á, að
héraðslæknar fái aðeins auka-
greiðslu fyrir miklar og mestu
aðgerðir. Tryggingarstofnunin
viðurkenndi að sumir héraðs-
læknar bæru hér skarðan hlut
frá borði og virtist fús til að
greiða einnig fyrir meiri hátt-
ar aðgerðir samkvæmt gjald-
skrá héraðslækna. Er nú eftir
að vita hvort héraðslæknarnir
sætta sig við samninginn með
þessari breytingu.
Stjórn L. í. ræddi s.l. vétur
við Tryggingarstofnunina um
hækkun á greiðslum til prakti-
serandi lækna utan Reykjavík-
ur. Samningaumleitanir milli
L. R. og S. R. stóðu mánuðum
saman og þótti rétt að bíða
frekari aðgerða þar til samn-
ingar tækjust og hafa þá til
hliðsjónar. Samningar við S. R.
urðu á þá lund, að læknar
fengju greidda fulla kaup-
gjaldsvísitölu að frádregnum 6
stigum. Þeir Bjarni Snæbjörns-
son og Jón Gunnlaugsson gengu
nú að samningaborðinu og varð
niðurstaðan, eftir allmikið þóf,
sú að læknar í Hafnarfirði og á
Akureyri skyldu fá greidda
fulla kaupgjaldsviísitölu! að 6
stigum frádregnum en aðrir
practiserandi læknar yrðu að
sætta sig við 15 stiga frádrátt.
Mun Tryggingarstofnunin hafa
haldið því fram að bifreiða-
kostnaður lækna væri verulega