Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.09.1956, Side 39

Læknablaðið - 01.09.1956, Side 39
læknablaðið 79 afsalaði sér henni að lokum. Stjórn sjúkrahússins leitaði þá ekki til fyrri umsækjenda, en hugðist ráða lækni til sjúkra- hússins án þess að auglýsa stöðuna. Stjórn L. f. þótti fyrri umsækjendur ómaklega snið- gengnir og beindi þeim tilmæl- um til lækna, sem hug hefðu á að sækja um stöðuna, að þeir tækjust ekki á hendur að gegna henni fyrr en að veitingu lok- inni. Var staðan því auglýst að nýju en hvorugur fyrri um- sækjenda sótti nú um hana. 1 febrúar s.l. fékk stjórn fé- lagsins vitneskju um að bjóða ætti 4—6 íslenzkum læknum til Rússlands. Var gert ráð fyrir að sú för yrði farin í júnímán- uði. í fyrstu skildist stjórn fé- lagsins að ferðin yrði læknum að kostnaðarlausu en seinna þegar formlegt boð kom frá rússneska sendiráðinu kom á daginn að læknar yrðu að greiða ferðakostnað til og frá Rússlandi, en meðan þar væri dvalizt væru læknar gestir rúss- nesku heilbrigðisstjórnarinnar. Margir höfðu hug á að fara, en kostnaður við ferðalagið og ó- hentugur tími (maí eða júlí) mun hafa valdið því að engir fóru á vegum félagsins. Einn læknir mun þó hafa þegið boð- ið. L. I. var nýlega boðið að senda fulltrúa á aðalfund danska læknafélagsins, sem baldinn verður í haust. Óvíst er hvort nokkur hefur hentugleika á að sækja fundinn. Nýlega barst félaginu bréf frá landlækni, þar sem hann mælist til þess að það tilnefni fulltrúa, er sé heilbrigðis- stjórninni til aðstoðar við samningu reglugerðar um með- ferð deyfilyfja. Læknafélagi Reykjavíkur munu einnig hafa borizt sams konar tilmæli. Fyr- ir tveim árum kaus aðalfundur L. 1. deyfilyfjanefnd, en hún hefur ekki enn skilað áliti. For- maður nefndarinnar mun þó hafa viðað að sér upplýsingum um það hvernig málum þessum er skipað í nágrannalöndunum. Er sízt vanþörf á að taka þessi mál föstum tökum því að deyfi- lyfjaneytendur beita oft mikilli kænsku og hugkvæmni til þess að herja út lyfseðla og víla ekki fyrir sér að falsa þá þegar svo ber undir. Húsnefnd félagsins hefur starfað ötullega. Hún mun hafa haldið allmarga fundi og haft náið samstarf við nefnd frá L. R. Höfðu nefndirnar augastað á glæsilegri lóð við Miklatorg, er bæjaryfirvöldin virtust fús á að láta félögunum í té. Sóttu síðan bæði félögin sameiginlega um lóðina og fjárfestingarleyfi til þess að hefja byggingar- framkvæmdir. Eins og vænta mátti, var synjað um fjárfest- ingarleyfi í bráð. Flestir praktisérandi læknar utan Reykjavíkur hafa gerzt

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.